Fréttablaðið - 10.03.2010, Page 25
MIÐVIKUDAGUR 10. MARS 2010 7fermingar ● fréttablaðið ●
María Nicole Baldelovar ferm-
ist í Landakotskirkju að kaþólsk-
um sið. Hún byrjaði í fermingar-
fræðslu í október og fer í hana að
lokinni sunnudagsmessu í hverri
viku. María Nicole þekkir vel til
starfsins í Landakotskirkju enda
hefur hún farið í messu með for-
eldrum sínum á hverjum sunnu-
degi um margra ára skeið. Það var
því lítið sem breyttist þegar ferm-
ingarfræðslan hófst.
„Mér finnst mjög skemmtilegt
að fara í messu. Þar er mikið sung-
ið og svo hittist fólk á eftir, fær sér
kaffi og spjallar.“
Rúmlega tuttugu börn eru með
Maríu Nicole í fermingarfræðsl-
unni og segist hún ekki halda að
fræðslan sé mjög frábrugðin þeirri
sem börn í Þjóðkirkjunni frá. „Við
lærum og tölum um Biblíuna.“
Fermingarsakramentið er þó að-
eins frábrugðið, að sögn Séra Patr-
iks í Landakotskirkju.
„Einungis biskup getur veitt
fermingarsakramentið auk þess
sem það er ekki aðeins endurnýjun
á skírnarheitinu heldur meðtaka
börnin einnig heilagan anda til að
styrkja trúna enn frekar. Þá eru þau
ekki að meðtaka altarissakramentið
í fyrsta sinn eins og í Þjóðkirkjunni
því börnin hjá okkur ganga til altar-
is frá átta til níu ára aldri.“
María Nicole hlakkar mikið til
fermingarinnar og er þegar farin
að velta fyrir sér kjól og greiðslu.
Hún mun síðan halda áfram að
rækja trúna eins og hún er vön. - ve
Finnst gaman í messu
María Nicole fermist í Landakotskirkju að kaþólskum sið. Hún fer í messu alla sunnu-
daga og því lítið sem breyttist þegar hún byrjaði í fermingarfræðslu í haust.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Ýmis trúfélög eins og hvíta-
sunnumenn, mormónar og
baptistar eru ekki með ferm-
ingar heldur svokallaða trú-
aðraskírn. Þau hafna þá barna-
skírninni en skíra í staðinn þá
sem taldir eru nægilega gamlir
til að skilja inntak athafnarinn-
ar. Er því nokkuð misjafnt eftir
trúfélögum við hvaða aldur er
miðað. Þá finnast annars konar
vígsluathafnir, manndóms-
vígslur, hjá öðrum trúarhópum.
Þannig tíðkast að ungir menn
úr röðum ástralskra frum-
byggja verji einni viku
í eyðimörkinni til að
teljast fullorðnir
karlmenn og sums
staðar gerast pilt-
ar sem aðhyllast
búddatrú tíma-
bundið munkar.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
41
15
3
ð ð ð ð ð ð ð ð ðððáð ð ðð ðð íðð ððð ð ð ð ðþð íð ððáð ð ð ð ð ð ðð ð
ð ð ð ðð ðð ð ð ðð ðþúðð ðð ððððððð ð ðð ðð ðð ð ð ð ððð ðáðð ð ðíððð ðð ðð ð ð
ð ð ðð ðð ðð ð ð ðæð ðð ðð ð ð ðöð ð ððáðð ðð ð ð ð ðð ððð ðð ðöð ð
ð ð ð ðð ð ðþáðð ð ðð ð ððð ð ððð ð ð ðð ð
Þúððæð ðð
ð ð ð ð
Til að verða karlmaður
meðal frumbyggja
þurfa piltar að undi-
gangast vígslu.
Sumir drengir
gerast tíma-
bundið búdda-
munkar.
Aðrar helgiathafnir