Fréttablaðið - 12.03.2010, Qupperneq 12
12 12. mars 2010 FÖSTUDAGUR
Aðalfundur 2010
Aðalfundur Tryggingamiðstöðvarinnar hf. verður haldinn föstudaginn 19. mars
2010 kl. 9.00 árdegis í húsakynnum félagsins, Síðumúla 24, Reykjavík.
Dagskrá: 1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins á síðastliðnu starfsári.
2. Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár ásamt skýrslu endurskoðenda lagður
fram til staðfestingar.
3. Ákvörðun um ráðstöfun tekjuafgangs félagsins eða hvernig mæta skuli halla.
4. Ákvörðun um tillögu stjórnar um starfskjarastefnu félagsins.
5. Tillaga um breytingu á 19. gr. samþykkta félagsins um skipan varastjórnar.
6. Ákvörðun um þóknun til stjórnar.
7. Kosning stjórnar félagsins, þ. á m. að teknu tilliti til fyrirhugaðra breytinga
á samþykktum um skipan varastjórnar.
8. Kjör endurskoðenda (endurskoðunarfélags).
9. Önnur mál löglega fram borin.
Framboð til stjórnar skal tilkynna skriflega til félagsstjórnar, Síðumúla 24, Reykjavík, skemmst fimm dögum fyrir
aðalfundinn. Í tilkynningunni skal greina nafn frambjóðanda, kennitölu, heimilisfang, upplýsingar um aðalstarf,
önnur stjórnarstörf, menntun, reynslu og hlutafjáreign í félaginu, hagsmunatengsl við helstu viðskiptaaðila og
samkeppnisaðila félagsins, sem og hluthafa sem eiga meira en 10% í félaginu.
Reikninga félagsins og tillögur má nálgast á vef TM, www.tm.is, eða á aðalskrifstofu félagsins viku fyrir fundinn.
Stjórn Tryggingamiðstöðvarinnar hf.
TM Síðumúla 24 // Sími 515 2000 // tm@tm.is // www.tm.is
Allir velkomnir!
Á staðnum verða bílar til sýnis sem aðlagaðir hafa verið
að þörfum fatlaðra ásamt fjórhjólum og Polaris Ranger.
Einnig verður til sýnis umhverfisstjórnunarbúnaður fyrir
fatlaða.
www.oryggi.is
Opið hús, laugardaginn 13. mars
kl. 12–15 að Askalind 1, Kópavogi.
OPIÐ HÚ
S!
Komdu,
skoðað
u
– og pró
faðu. Farartæki
fyrir fatlaða
PI
PA
R
\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
0
0
6
9
6
MENNING Tæp 43 prósent sækjast
mun eða heldur meira eftir inn-
lendu efni en erlendu í sjónvarpi.
Þetta kemur fram í nýrri könnun
Félagsvísindastofnunar Íslands
um menningarneyslu á Íslandi.
Um 40 prósent þátttakenda sækj-
ast jafn mikið eftir innlendu og
erlendu efni og rúm sautján pró-
sent sækjast frekar eftir erlendu
efni en innlendu.
Athygli vekur að lægst er hlut-
fall þeirra sem kjósa fremur inn-
lent efni en erlent í hópi háskóla-
menntaðra, eða 35 prósent. Í
öðrum innlendum menningar-
viðburðum er hlutfallsleg aðsókn
einna mest í hópi þeirra sem lokið
hafa háskólaprófi.
Í sömu könnun kemur fram að
um 76 prósent svarenda fóru í bíó
einhvern tímann á tólf mánaða
tímabili frá og með haustinu 2008.
Tæplega helmingur þeirra, um 46
prósent, sá íslenska mynd.
Hlutfallslega fleiri konur en
karlar sáu íslenska mynd á þessu
tímabili, 51 prósent á móti 40. Þá
má sjá að aðsókn á íslenskar mynd-
ir er meiri í eldri aldurshópum;
mest var hún í hópi bíógesta á sex-
tugsaldri, 58 prósent, en minnst
hjá aldurshópnum 30 til 39 ára, 35
prósent. - bs
Viðhorf til innlendrar kvikmynda- og dagskrárgerðar:
Flestir vilja frekar inn-
lent efni í sjónvarpi
VIÐ UPPTÖKUR Á HAMRINUM Samkvæmt könnun Félagsvísindastofnunar vilja 43
prósent meira af innlendu efni en erlendu í sjónvarpi.
FERÐAÞJÓNUSTA Hópur níutíu Færeyinga flaug í gær í
beinu flugi frá heimalandinu til Akureyrar þar sem
dvelja á fram á sunnudag við skíðaiðkun og aðra
skemmtan.
Að sögn Guðmundar Karls Jónssonar, forstöðu-
manns Hlíðarfjalls, valdi fólkið Akureyri að þessu
sinni fremur en aðra skíðastaði í Evrópu. Segir hann
Færeyinga almennt áhugasama um skíðaíþróttina og
stunda hana víða.
Guðmundur segir skíðafólk vilja vera snöggt á stað-
inn og snöggt í burtu. Akureyri uppfylli það skilyrði
þar sem aðeins taki sjö mínútur að ferðast frá flug-
velli og í brekkurnar. Sambærilegt ferðalag getur
tekið margar klukkustundir víða í álfunni.
Auk þægilegra samgangna njóta erlendir ferða-
menn þess nú um stundir að gengi íslensku krónunn-
ar er lágt. Leggst því allt á eitt við að gera Akureyri
ákjósanlegan áfangastað erlendra skíðaunnenda. - bþs
Hópur Færeyinga flaug til Akureyrar og ver fjórum dögum á skíðum í Hlíðarfjalli:
Brekkur og gengi heilla skíðamenn
KALT Í FENEYJUM Dúnmjúk snjóþekja
lá yfir Feneyjum í gærmorgun og
óhreyfðir gondólarnir ekki líklegir til
afreka. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SVÍÞJÓÐ, AP Tólf gömul skipsflök
hafa fundist í Eystrasalti, það
elsta hugsanlega 800 ára gamalt
en hin líklega frá sautjándu, átj-
ándu og nítjándu öld. Sum þeirra
eru óvenju vel varðveitt.
Flökin fundust þegar starfs-
menn gasfyrirtækisins Nord
Stream unnu að því að leggja
gasleiðslu milli Rússlands og
Þýskalands.
Ekki er víst hvort reynt verð-
ur að ná einhverjum skipanna á
land, en kafarar verða sendir til
að rannsaka þau á hafsbotni.
Þúsundir misgamalla skips-
flaka hafa fundist í Eystrasalti,
en þar eru ekki trjámaðkar sem
eyða skipsflökum í saltari sjávar-
vötnum. - gb
Merkur fundur í Eystrasalti:
Fundu æva
gömul skipsflök
NÝFUNDIÐ FLAK Elsta flakið er allt að
800 ára gamalt. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
ÞÝSKALAND, AP Kaþólska kirkjan í
Þýskalandi ætlar á næstu vikum
að gera tvær viðamiklar rann-
sóknir á misnotkun barna innan
vébanda kirkjunnar.
Annars vegar verður rannsak-
að hvað gerðist í barnakór í Reg-
ensburg fyrir um fimmtíu árum,
en Georg Ratzinger, bróðir Bene-
dikts páfa, stjórnaði þeim kór á
árunum 1964-94. Hins vegar fer
fram almenn rannsókn á því hvað
yfirmenn kirkjunnar, allt upp í
páfa sjálfan, vissu um það hvaða
meðferð börn máttu þola. - gb
Kaþólska kirkjan í Þýskalandi:
Tvær rannsókn-
ir á barnaníðiFR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/H
EIÐ
A
.IS
SPENNANDI DAGAR FRAMUNDAN
Hópurinn stillti sér upp til mynda-
töku á flugvellinum, rétt áður en
brunað var upp í fjall.