Fréttablaðið - 12.03.2010, Page 50
30 12. mars 2010 FÖSTUDAGUR
sport@frettabladid.is
N1-deild karla:
FH-Haukar 31-25 (15-13)
Mörk FH (skot): Bjarni Fritzson 9/4 (14/4), Ólafur
Guðmundsson 5 (12), Ásbjörn Friðriksson 4 (6),
Örn Ingi Bjarkason 4 (7), Benedikt Kristinsson
3 (5), Ólafur Gústafsson 3 (6), Jón Heiðar
Gunnarsson 3 (3).
Varin skot: Pálmar Pétursson 15/1 (39/4) 38%.
Hraðaupphlaup: 5 (Bjarni 2, Ólafur 2, Ásbjörn).
Fiskuð víti: 4 (Jón, Ásbjörn, Sigurgeir, Ólafur
Guðm.)
Utan vallar: 10 mín.
Mörk Hauka (skot): Elías Már Halldórsson 7 (8),
Sigurbergur Sveinsson 7/4 (14/5), Freyr
Brynjarsson 4 (5), Pétur Pálsson 2 (3), Jónatan
Jónsson 2 (3), Björgvin Hólmgeirsson 2 (10).
Varin skot: Birkir Ívar Guðmundsson 14 (40/3)
35%, Aron Rafn Eðvarðsson 5 (10) 50%.
Hraðaupphlaup: 1 (Freyr).
Fiskuð víti: 5 ( Freyr 3, Elías, Björgvin).
Utan vallar: 8 mín.
Dómarar: Gísli Hlynur Jóhannsson og Hafsteinn
Ingibergsson, virkuðu stressaðir og margir
furðulegir dómar litu dagsins ljós.
Fram-Valur 26-25 (11-13)
Markahæstir hjá Fram: Haraldur Þorvarðarson 7,
Magnús Stefánsson 5, Andri Berg Haraldsson 5.
Markahæstir hjá Val: Arnór Gunnarsson 7/2,
Fannar Friðgeirsson 6/2, Sigurður Eggertsson 5.
HK-Grótta 29-24 (18-12)
Mörk HK: Bjarki Már Elíasson 7, Valdimar Fannar
Þórsson 6, Ragnar Hjaltested 5, Atli Ævar
Ingólfsson 4, Ólafur Víðir Ólafsson 3, Sverrir
Hermannsson 3, Bjarki Már Gunnarsson 1.
Mörk Gróttu: Hjalti Þór Pálmason 7, Jón Karl
Björnsson 4, Anton Rúnarsson 3, Matthías Árni
Ingimarsson 2, Heiðar Aðalsteinsson 2, Arnar
Theódórsson 2, Davíð Hlöðversson 2, Halldór
Ingólfsson 1.
STAÐAN:
Haukar 15 11 2 2 384-354 24
FH 15 9 1 5 423-393 19
HK 15 9 1 5 410-386 19
Akureyri 14 8 2 4 368-350 18
Valur 15 7 2 6 374-359 16
Grótta 15 4 0 11 372-408 8
Fram 15 3 1 101 387-423 7
Stjarnan 14 3 1 10 326-371 7
IE-deild karla:
Keflavík-Njarðvík 82-69 (37-23)
Stig Keflavíkur: Draelon Burns 20, Gunnar
Einarsson 16, Sigurður Þorsteinsson 12, Þröstur
Leó Jóhannsson 12, Uruele Igbavboa 7, Hörður
Axel Vilhjálmsson 4, Gunnar Stefánsson 4,
Sverrir Sverrisson 3, Jón Nordal Hafsteinsson 2,
Davíð Þór Jónsson 2.
Stig Njarðvíkur: Magnús Þór Gunnarsson 15, Nick
Bradford 13, Friðrik Stefánsson 12, Guðmundur
Jónsson 11, Páll Kristinsson 8, Jóhann Ólafsson
5, Egill Jónasson 4, Kristján Sigurðsson 1.
Breiðablik-Hamar 74-73
FSu-Tindastóll 73-99
Stigahæstir FSu: Christopher Caird 25, Aleksas
Zimnickas 22, Orri Jónsson 13, Jake Wyatt 5,.
Stigahæstir hjá Tindastóli: Friðrik Hreinsson 25,
Svavar Birgisson 21, Cedric Isom 16.
STAÐAN:
KR 19 16 3 1787-1530 32
Keflavík 20 15 5 1862-1582 30
Njarðvík 20 14 6 1770-1554 28
Grindavík 19 14 5 1770-1524 28
Snæfell 19 13 6 1800-1584 26
Stjarnan 19 13 6 1609-1526 26
Hamar 20 7 13 1686-1771 14
Tindastóll 20 7 13 1654-1789 14
ÍR 19 6 13 1589-1733 12
Fjölnir 19 6 13 1506-1658 12
Breiðablik 20 5 15 1555-1816 10
FSu 20 1 19 1502-2023 2
Evrópudeildin:
Lille-Liverpool 1-0
1-0 Hazard (84.)
Atletico Madrid-Sporting Lisbon 0-0
HSV-Anderlecht 3-1
Rubin Kazan-Wolfsburg 1-1
Benfica-Marseille 1-1
Juventus-Fulham 3-1
1-0 Legrottaglie (9.), 2-0 Zebina (25.), 2-1 Etuhu
(36.), 3-1 Trezeguet (45.)
Panathinaikos-Standard Liege 1-3
Valencia-Werder Bremen 1-1
ÚRSLIT
> Stórleikir í körfunni í kvöld
Þrír leikir fara fram í Iceland Express-deild karla
í kvöld og tveir þeirra eru af stærri gerðinni.
Íslandsmeistarar KR sækja Stjörnuna
heim í Garðabæ. KR er á toppnum með
32 stig en Stjarnan í sjötta sæti með 26
stig, en baráttan hjá sex efstu liðunum
er mjög jöfn. Grindavík sækir Snæfell
heim í Fjárhúsið og þar er ekki síður
mikið undir. Grindavík er með 28 stig
en Snæfell með 26. Þessi lið mættust
einmitt í úrslitum bikarsins á dögunum og
þá hafði Snæfell betur.
Undanúrslitin í Iceland Express-deild kvenna fara af stað á morgun
þegar Hamar og Keflavík mætast í Hveragerði. Fyrsti leikur KR og
Hauka verður svo á sunnudagskvöld. KKÍ kynnti í gær úrvalslið
deildarinnar fyrir umferðir 12-20.
„Þetta er fyrst og fremst viðurkenning fyrir liðið
sem hefur unnið mjög flotta og mikilvæga sigra
í undanförnum leikjum,“ segir Ágúst Björgvins-
son, þjálfari Hamars, en hann var valinn
besti þjálfari umferðanna. „Fjörið er að byrja.
Þegar úrslitakeppnin fer af stað fá allir annað
tækifæri og fjögur mjög jöfn lið eru að fara að
berjast um þennan Íslandsmeistaratitil.“
Ágúst segir það skipta mjög miklu máli að fá
að byrja heima. „Okkur líður mjög vel heima. Við
erum að fara að mæta Keflavík sem hefur mikla
sögu og mikla hefð. Það skiptir því miklu máli
að fá að byrja heima.“
Heather Ezell (Haukum) var valin besti leikmaðurinn en auk
hennar eru í úrvalsliðinu Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir (KR),
Signý Hermannsdóttir (KR), Helga Hallgrímsdóttir (Grindavík)
og Birna Valgarðsdóttir (Keflavík).
Birna er full tilhlökkunar. „Þetta eru þvílíkir leikir fram
undan og ég er verulega spennt fyrir þessu. Við glopruðum
heimaleikjaréttinum í síðasta leiknum í deildinni en þurfum
hvort sem er að vinna úti svo það er alveg eins gott að
taka tvo þar,“ segir Birna.
Benedikt Guðmundsson, þjálfari KR, hefur áhyggjur
af því að hvíldin sem hans lið fékk fyrir einvígið gegn
Haukum sé of löng. „Við höfum hvílt í tæpar tvær vikur á
meðan þær eru að koma úr flottri viðureign. Svona löng
bið er aldrei af hinu góða. Þú missir allt tempó úr þínum
leik. Við höfum reynt að bregðast við þessu en hvort það
verður nóg kemur í ljós,“ segir Benedikt Guðmundsson.
ICELAND EXPRESS-DEILD KVENNA: UNDANÚRSLITIN FARA AF STAÐ Á MORGUN ÞEGAR HAMAR MÆTIR KEFLAVÍK
Fjögur mjög jöfn lið berjast um meistaratitilinn
HANDBOLTI FH braut stóran sál-
fræðilegan múr í gær er liðið náði
að vinna Hauka, 31-25. Þetta var
fjórða viðureign liðanna í vetur
og Haukar höfðu betur í fyrstu
þrem leikjunum. Síðustu tveir leik-
ir voru einnig í Krikanum og þar
voru FH-ingar klaufar að fá ekki
meira út úr leikjunum.
Það var vel mætt á leikinn í gær
en ekki troðfullt út úr dyrum eins
og í síðustu leikjum. Stemning-
in engu að síður fín og það virtist
vera nokkur skrekkur í leikmönn-
um sem og dómurum í upphafi
leiks. Þó svo Haukar hafi stig-
ið langt út í Ólaf Guðmundsson í
leiknum gekk sóknarleikur FH-
ingana betur og þeir tóku strax
frumkvæðið. Haukarnir þó aldrei
langt undan og munurinn aldrei
meira en þrjú mörk í hálfleikn-
um.
Varnarleikur beggja liða var
frekar slakur en markvarslan þó
ágæt út allan leikinn. Það hafði
kannski sitt að segja að varnirnar
spiluðu óvenju heiðarlega sem er
ekki alltaf raunin er þessi lið mæt-
ast. Vörn FH með Sigurgeir Árna
í broddi fylkingar hrökk á undan í
gírinn og það hjálpaði heimamönn-
um við að leiða í hálfleik. 15-13 var
staðan þá fyrir.
FH-ingar voru mikið ákveðnari
strax í upphafi síðari hálfleiks.
Ólafur Guðmundsson lét loksins
aðeins til sín taka og varnarleik-
urinn var betri en í fyrri hálfleik.
Á sama tíma var mikill vandræða-
gangur á sóknarleik Haukanna og
varnarleikurinn var aldrei í þeim
gæðaflokki sem hann venjulega er
hjá Haukum.
Elías Már, Freyr og Birkir Ívar
gerðu sitt besta til þess að halda
Haukum í leiknum en það dugði
ekki til. FH-ingar juku sífellt for-
skotið og þegar níu mínútur voru
eftir af leiknum náði FH sex
marka forskoti, 26-20, og leikurinn
búinn. Þó svo FH-ingar hefðu áður
misst niður forskot gegn Haukum
þá var það aldrei að fara að gerast
í þessum leik. Til þess voru FH-
ingarnir of einbeittir og Haukarn-
ir of slakir.
„Ég get alveg viðurkennt að það
er mikill léttir að hafa loksins náð
að vinna Haukana. Það tók mikið á
að tapa síðustu tveim leikjum gegn
Haukunum. Þá vorum við að spila
vel á löngum köflum og það var
hrikalega fúlt að tapa þeim leikj-
um,“ sagði Einar Andri Einarsson,
þjálfari FH, brosmildur eftir leik
en hann var ekki búinn að gleyma
klúðrum síðustu leikja og slakaði
því ekki á fyrr en seint í leiknum.
„Ég var ekki öruggur með sigur
fyrr en 4 sekúndur voru eftir.
Strákarnir voru ískaldir og ég
vissi að við myndum vinna þennan
leik. Við lögðum mikið í undirbún-
inginn og strákarnir ætluðu aldrei
að tapa þessum leik.“
Aron Kristjánsson, þjálfari
Hauka, virtist ekki vera hissa á
því að hans lið hefði tapað leikn-
um en Haukarnir náðu sér aldrei á
strik og voru ólíkir sjálfum sér.
„Ég hef haft þessa tilfinningu
eftir bikarúrslitaleikinn að það
kæmi eitthvað spennufall í mitt
lið en samt sem áður náðum við
að vinna bæði Val og Gróttu sem
var flott. Í dag var FH að spila við
Hauka en við gegn liði í deildinni.
Þar lá munurinn og menn mega
ekki mæta með slíkt hugarfar í
leik FH og Hauka. Það vantaði blóð
á tennurnar okkar sem og grimmd-
ina og viljann,“ sagði Aron en hann
óttast ekki framhaldið þrátt fyrir
ein mistök. henry@frettabladid.is
FH-ingar gátu loksins brosað í gær
Eftir þrjú töp í röð fyrir Haukum náði FH loksins að leggja Íslandsmeistarana af velli. Það gerðu FH-ingar
með sóma og voru miklu betri í Hafnarfjarðarslagnum í gær. Haukar voru að sama skapi andlausir.
ALLT REYNT Örn Ingi Bjarkason, leikmaður FH, er hér í strangri gæslu í Hafnarfjarðarslagnum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
KÖRFUBOLTI Keflvíkingar unnu
annan stóran sigur á nágrönn-
um sínum á árinu 2010 þegar
þeir unnu Njarðvík 82-69 í bar-
áttuleik í Toyota-höllinni í gær.
Keflavík tók annað sætið í deild-
inni af erkifjendunum en tókst
þó ekki að ná betri árangri í
innbyrðisviðureignum þar sem
Njarðvík vann fyrri deildarleik
liðanna með 14 stigum.
Keflvíkingar lögðu gruninn
að sigrinum í öðrum leikhluta
alveg eins og í bikarleiknum á
dögunum.
Njarðvíkingar skoruðu ekki
stig á fyrstu sex og hálfri mín-
útu leikhlutans og á sama tíma
skoruðu Keflvíkingar 10 stig í
röð og komust í 33-18. Njarðvík-
ingar náðu aldrei að vinna aftur
upp það forskot.
Njarðvíkingurinn Nick Brad-
ford var með 13 stig á móti
sínum gömlu félögum en hann
tapaði líka 11 boltum í leiknum
og allt Njarðvíkurliðið tapaði
alls 30 boltum í þessum leik.
- óój
Körfuboltalið Keflavíkur:
Fór aftur illa
með Njarðvík
FÓTBOLTI Franska liðið Lille fer með 1-0 forystu á
Anfield í seinni leik sinn gegn Liverpool í sextán
liða úrslitum Evrópudeildarinnar. Óvíst er hvort
það sé nægjanlegt veganesti. Skemmtanagildi
leiksins í Frakklandi í gær var mjög takmarkað.
Eina mark leiksins kom sex mínútum fyrir
leikslok en það skoraði Eden Hazard úr auka-
spyrnu sem gestirnir misreiknuðu illilega. Stev-
en Gerrard og Fernando Torres fengu bestu færi
Liverpool en Mickael Landreau í marki Lille var
vel á verði.
„Við vorum ekki að spila nægilega vel, það er
augljóst. Það er þó ekki öll nótt úti enn. Við eigum
seinni leikinn eftir á heimavelli og þessu ein-
vígi er langt í frá lokið. Við þurfum samt að sýna
okkar bestu hliðar ef við ætlum okkur áfram.
Okkur hefur gengið erfiðlega að undanförnu en
við þurfum að takast á við það bara,“ sagði Javier
Mascherano, leikmaður Liverpool.
Rafael Benítez, stjóri Liverpool, segist sjá
framfarir á sínu liði. „Ég er ósáttur við úrslitin
en ánægður með framlag leikmanna. Við getum
unnið öll lið á góðum degi á Anfield. Ég væri með
áhyggjur ef menn hefðu ekki lagt sig svona fram í
kvöld,“ sagði Benítez.
„Á heimavelli höfum við magnaðan stuðning,
það eru enn eftir 90 mínútur af þessu einvígi.
Lille er gott lið, með flotta leikmenn sem geta
skapað mikla hættu. Við töluðum um það fyrir
leikinn að leggja okkur fram og valda stuðnings-
mönnum ekki vonbrigðum. Okkur tókst það að
mínu mati.
Allir leikir eru mikilvægir fyrir okkur núna.
Næst er komið að leik gegn Portsmouth og svo
hugsum við út í seinni leikinn,“ sagði Benítez. - egm
Liverpool tapaði fyrri leik sínum í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar:
Engin frægðarför til Lille
VONBRIGÐI Fernando Torres í baráttunni í leiknum í gær.
NORDICPHOTOS/GETTY