Fréttablaðið - 13.03.2010, Síða 2
2 13. mars 2010 LAUGARDAGUR
DÓMSMÁL „Við börnin fljúgum heim á miðvikudag-
inn,“ segir Borghildur Guðmundsdóttir, sem í gær
fékk fullan umgengnisrétt yfir sonum sínum tveim-
ur fyrir dómstóli í Kentucky í Bandaríkjunum.
Samkvæmt dómnum deilir Borghildur forræðinu
með föður drengjanna, Richard Colby Busching.
Borghildur hefur verið með strákana í Kentucky
síðan í ágúst í fyrra, eftir að Hæstiréttur úrskurð-
aði að hún hefði ekki mátt fara með þá frá Banda-
ríkjunum til Íslands, í kjölfar lögskilnaðar hennar
og mannsins árið áður.
„Ég fékk allt sem ég bað um“, segir Borghildur.
Hún telur þetta vera í fyrsta skipti sem íslensk kona
fær álíka niðurstöðu í sambærilegu máli. Þetta
kunni að hafa fordæmisgildi, að minnsta kosti í
Bandaríkjunum.
Dómarinn hafi sérstaklega fært rök fyrir því að
hægt væri að leyfa henni að fá börnin í ljósi aðildar
Íslands að alþjóðasamningum.
„Þetta er stórmál fyrir íslenskar konur, því það
er fullt af konum sem þurfa að vera hér bara út af
börnunum sínum,“ segir hún.
Borghildur segir að álagið á fjölskyldunni hafi
verið afar mikið. „Og sonur minn sagði áðan:
„Mamma, guð hlustar,“ en hann hafði daginn áður
beðið til guðs að fá að fara til Íslands. - kóþ
Sigurgeir, kemur þetta Lands-
björgu til bjargar?
„Já, það má segja það. Þetta fjár-
framlag sem annað kemur félaginu
og málstað þess til góða.“
Slysavarnafélagið Landsbjörg hlaut Sam-
félagsverðlaun Fréttablaðsins og milljón
í verðlaunafé. Sigurgeir Guðmundsson er
formaður Landsbjargar.
FÓLK „Það er lifandi fiskur úti í
móa,“ kallaði Eva Dögg Stein-
arsdóttur Röver, 10 ára stúlka,
í Stekkjarhvammi í Hafnarfirði
þegar hún kom hlaupandi inn um
dyrnar heima hjá sér í fyrrakvöld.
Foreldrar hennar trúðu ekki eigin
eyrum og varla eigin augum þegar
þeir sáu fiskinn. Allt bendir til að
þetta sé styrjutegund.
Eva Dögg segist hafa heyrt eitt-
hvað skella til jarðar fyrir aftan sig
þegar hún var að leika sér í móanum,
rétt hjá heimili sínu. „Það voru fugl-
ar fyrir ofan mig og ég var að leika
mér og heyrði eitthvað fyrir aftan
mig,“ segir hún. Þar var spriklandi
fiskur. Eva Dögg telur líklegast að
hann hafi fallið úr fuglsgoggi niður
í móann. Hún hljóp heim til sín og
sótti skál með vatni til að reyna að
halda fisknum lifandi; „en hann dó
á leiðinni,“ segir hún.
Jónbjörn Pálsson, sérfræðing-
ur hjá Hafrannsóknastofnun, fékk
fiskinn í hendur í gær. Hann segir
að þetta sé einhvers konar styrja.
Hann ætlar að greina tegundina
um helgina til að taka af allan vafa.
„Það hafa nokkrum sinnum fund-
ist styrjur hér við land,“ segir Jón-
björn. Hingað til hafa þær komið í
veiðarfæri skipa.
Hvar fuglinn fann styrjuna sem
hann missti ofan í móann þar sem
Eva Dögg var að leika sér er ráð-
gáta, sem óvíst er hvort leysist í
bráð. Fjölskylda Evu Daggar hefur
velt þessu mikið fyrir sér. Til eru
tugir tegunda af styrju. Sumar geta
orðið nokkrir metrar að lengd. Þær
hrygna í ferskvatni og gefa af sér
styrjuhrogn, öðru nafni kavíar.
Hafnfirska styrjan er aðeins um
25 sentimetra löng. Kristín Röver,
móðir Evu Daggar, las á Netinu að
til eru dvergstyrjutegundir sem eru
ræktaðar í tjörnum. Hvort sú stað-
reynd skiptir máli við lausn þessar-
ar gátu er óljóst, að svo stöddu.
peturg@frettabladid.is
Fann lifandi furðu-
fisk á þurru landi
Eva Dögg Steinarsdóttir Röver heyrði eitthvað skella til jarðar þegar hún var að
leika sér úti í móa í Hafnarfirði. Henni brá þegar hún sá spriklandi fisk liggja í
grasinu. Sérfræðingur hjá Hafró telur að um styrjutegund sé að ræða.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/VA
LLI
FURÐUFISKUR Systurnar Eva Dögg og Elín Sif Steinarsdætur
Röver. Eva heldur á styrjunni, sem hún fann í móanum við
Stekkjarhvamm í Hafnarfirði í fyrradag.
BANDARÍKIN Fall bandaríska stór-
bankans Lehman Brothers, sem
hratt af stað heimskreppunni
haustið 2008, stafaði af mistökum
bæði stjórnenda og endurskoð-
enda bankans.
Mistökin eru allt frá röngum
ákvörðunum til vísvitandi rang-
færslna í reikningum bankans
til að fegra stöðu hans skömmu
fyrir fallið.
Í nýrri skýrslu sem bandarísk-
ur gjaldþrotadómstóll lét gera
kemur einnig fram að viðskipta-
stefnan sem stjórnendur bankans
fylgdu hafi hvatt þá til að taka
mikla áhættu og þannig átt mik-
inn þátt í því hvernig fór. - gb
Fall Lehman-bræðra:
Röð mistaka og
falsað bókhald
HÖFUÐSTÖÐVAR HRUNSINS Bygging
Lehman-bræðra í New York.
NORDICPHOTOS/AFP
EFNAHAGSMÁL Hrun íslensku krón-
unnar árið 2008 má rekja beint til
íslensku viðskiptabankanna sem
gengu allt of langt í kaupum á
erlendum gjaldeyri mánuðina fyrir
hrun. Seðlabankinn hafði ekkert
eftirlit með viðskiptum bankanna,
heldur þvert á móti rýmkaði heim-
ildir um kaup á gjaldeyri þegar
eðlilegt hefði verið að þrengja þær.
Bankinn hefði átt að kaupa gjaldeyri
á þessum tíma til að verjast stöðu-
töku bankanna, en skellti skollaeyr-
um við varúðarmerkjum.
Þetta er niðurstaða Bjarna Kristj-
ánssonar, hagfræðings og fyrr-
verandi gjaldeyrismiðlara Lands-
bankans, í skýrslu um orsök og
aðdraganda falls krónunnar sem
Kastljósið fjallaði um á fimmtu-
dagskvöld.
Skýrsluna hefur Bjarni boðið
útgerðarfyrirtækjum og lífeyris-
sjóðum sem standa í málaferlum við
skilanefndir bankanna um uppgjör
gjaldeyrisskiptasamninga.
Í skýrslu Bjarna segir að bank-
arnir hafi leikið tveimur skjöldum.
Á sama tíma og þeir gerðu fram-
virka samninga við sjóði og fyrir-
tæki tóku þeir stöðu gegn krónunni
með fyrrgreindum hætti.
Bjarni segir að hagnaður bank-
anna mánuðina fyrir hrun verði rak-
inn beint til þessara viðskipta og á
aðeins 1000 dögum hafi bankarnir
keyrt krónuna í kaf, eins og Bjarni
orðar það í skýrslunni. - shá
Bankarnir báru höfuðábyrgð á falli krónunnar segir í skýrslu gjaldeyrismiðlara:
Eftirlitið brást hjá Seðlabanka
KAUPÞING Bjarni segir bankana hafa
keypt upp allt sitt eigið fé í gjaldeyri, og
gott betur. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
HJÁLPARSTARF Rauði kross Íslands
og Slökkviliðið senda í dag Sig-
urjón Valdimarsson, sjúkra-
flutninga- og slökkviliðsmann,
til starfa á Haítí.
Sigurjón verður að störfum
við tjaldsjúkrahús norska
Rauða krossins, um sjötíu kíló-
metra fyrir utan höfuðborgina
Port-au-Prince, en Rauði kross-
inn heldur þar úti tveimur
skurðlækningateymum. Hann
mun starfa við sjúkraflutninga
og sem bráðatæknir.
- kóþ
Rauði krossinn og Slökkviliðið:
Senda mann til
starfa á Haítí
EFNAHAGSMÁL Jóhanna Sigurðar-
dóttir forsætisráðherra fundaði í
gær með sendinefnd frá Evrópu-
nefnd þýska
þingsins. Nefnd-
in mun fjalla um
umsókn Íslands
um aðild að Evr-
ópusambandinu.
Á fundinum
var rætt um
stöðu mála
gagnvart
aðildarumsókn
og afgreiðslu
hennar, stöðu
efnahagsmála og samstarf við
Alþjóðagjaldeyrissjóðinn.
Jóhanna áréttaði að staða mála
varðandi Icesave-viðræður ætti
ekki að hafa áhrif á öðrum vett-
vangi. - jhh
Jóhanna ræðir við Þjóðverja:
Icesave-málið á
ekki að smita
JÓHANNA
SIGURÐARDÓTTIR
DÓMSMÁL Karlmaður hefur verið
dæmdur í fimm mánaða skilorðs-
bundið fangelsi fyrir peninga-
fals. Hann var ákærður fyrir að
hafa sett í umferð tvo fimm þús-
und króna seðla sem hann vissi
að voru falsaðir. Seðlana notaði
hann til þess að greiða mat.
Héraðsdómur Reykjavíkur
hafði sýknað manninn en sá
dómur var kærður til Hæsta-
réttar, sem vísaði málinu aftur í
hérað. Að þessu sinni var maður-
inn sakfelldur. - jss
Notaði falsaða seðla:
Dæmdur fyrir
peningafals
Skjálfti við Bárðarbungu
Jarðskjálfti sem mældist 3,4 á Richter
reið yfir Vatnajökul um kaffileytið
í gær. Hann átti upptök sín við
Bárðarbungu. Fjöldi smáskjálfta hefur
skekið jörð undir Eyjafjallajökli að
undanförnu.
JARÐHRÆRINGAR
SAMFÉLAG Fjallað verður um íbúa-
kosningar og aukin afskipti og
áhrif hins almenna borgara í
ákvarðanatöku, í fyrirlestri sem
Grétar Þór Eyþórsson, prófessor
í stjórnmálafræði við Háskólann
á Akureyri, heldur í Þjóðmenn-
ingarhúsinu í dag.
Ræddar verða tilraunir sem
gerðar hafa verið til að efla lýð-
ræði í nágrannalöndunum, eink-
um íbúakosningar í sveitarfélög-
um. - kóþ
Vísindafélag Íslendinga:
Fjallað um
íbúakosningar
BORGHILDUR OG SYNIRNIR Borghildur telur þetta í fyrsta sinn
sem íslensk kona nær slíkri niðurstöðu á erlendri grundu.
Vann forræðismál í Bandaríkjunum í gær og flýgur til Íslands á miðvikudaginn:
Fær að koma heim með börnin
SPURNING DAGSINS
Auður Capital veitir ábyrga
fjármálaþjónustu
Opinn kynningarfundur
þriðjudaginn 16. mars kl. 17:15
að Borgartúni 29.
Allir velkomnir
Hverjum treystir þú
fyrir þínum sparnaði?
Eignastýring og
séreingarsparnaður