Fréttablaðið - 13.03.2010, Side 4
4 13. mars 2010 LAUGARDAGUR
Í frétt blaðsins í gær var rætt um pen-
ingamarkaðssjóði. Þar er ranghermt,
hið rétta er peningamarkaðsreikn-
ingar.
LEIÐRÉTTING
SAMFÉLAG Það eru góðar fréttir að
ríkisstjórnin hefur samþykkt frum-
varp um „sanngirnisbætur“ til
handa þeim sem orðið hafa fyrir
misgjörðum á stofnunum fyrir
börn. Mikilvægust er þó viðurkenn-
ingin sem í þessu felst fyrir fórnar-
lömbin, á aðstæðum þeirra og mis-
réttinu sem þau máttu þola. Svo
segir Bárður Ragnar Jónsson, for-
maður Breiðavíkursamtakanna.
„Við erum sáttir og finnst að
helstu áherslur okkar hafi verið
samþykktar,“ segir hann. Einnig
séu fyrrverandi vistmenn á Breiða-
vík fegnir því að málinu fari nú að
ljúka, eftir svo langan tíma.
Gert er ráð fyrir að frumvarp-
ið verði lagt fyrir Alþingi í næstu
viku, en samkvæmt því geta börn
sem hlotið hafa varanlegan skaða,
hvort sem það er líkamlegur, and-
legur eða félagslegur skaði, fengið
allt að sex milljónir króna í bætur.
Þá verður hægt að fara fram á
bætur vegna „missis tækifæra“, að
því er segir í tilkynningu frá for-
sætisráðuneyti.
Sönnunarbyrði í slíku máli verð-
ur minni en gengur og gerist í
skaðabótamálum.
„Við hefðum kannski viljað sjá
hærri bætur en við verðum að
horfa til þess að við búum á Íslandi
og að þetta er samt betra en það
sem hefur viðgengist. Þessar bætur
gætu reyndar hækkað í meðförum
þingsins,“ segir Bárður og tekur
fram að frumvarpið hafi verið
unnið í samvinnu við samtökin, sem
sé fagnaðarefni út af fyrir sig.
Lögin gilda um fyrrverandi
skjólstæðinga ýmissa vistheim-
ila ríkisins. Bárður býst við því
að nánast allir sem voru vistað-
ir á Breiðavík á árunum 1952 til
1978 sækist eftir sanngirnisbót-
um. Þetta gætu verið 160 manns,
en af þeim eru um 35 látnir. Börn
látinna vistmanna kunna einnig að
eiga rétt á bótum, en Bárður vill
ekki giska á hversu mikið verði um
að þau reyni það. Hinir látnu hafi
margir hverjir svipt sig lífi á unga
aldri og ekki skilið eftir afkomend-
ur.
Umboðsmaður barna María Mar-
grét Sigurðardóttir, segir jákvætt
að farið sé að takast á við slík mál
og að ríkið axli ábyrgð í þeim.
„Þetta er auðvitað hræðilegt
mál, en það er gott að umræðan
hefur verið tekin. Þetta hefur von-
andi þau áhrif að réttarstaða barna
verði betri í framtíðinni,“ segir
hún. klemens@frettabladid.is
Breiðavíkurdrengir
eru sáttir og fegnir
Formaður Breiðavíkursamtaka segist sáttur við væntanlegt frumvarp um bæt-
ur til Breiðavíkurdrengja og feginn að biðinni sé að ljúka. Hann telur að nánast
allir drengirnir reyni að fá bætur. Umboðsmaður barna fagnar einnig.
ÚR BREIÐAVÍK Breiðavíkurheimilið á Snæfellsnesi var skilgreint sem heimili fyrir
afvegaleidda drengi. Það var rekið af ríkinu á árunum 1952 til 1978. Forstöðumenn
voru Björn Loftsson, Hallgrímur Sveinsson og Þórhallur Hálfdánarson.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
MARGRÉT MARÍA
SIGURÐARDÓTTIR
BÁRÐUR RAGNAR
JÓNSSON
TAÍLAND, AP Taílendingar búa sig
enn á ný undir fjöldamótmæli
sem óttast er að geti snúist upp
í óeirðir og átök við lögreglu og
her. Að þessu sinni eru það hinir
rauðklæddu stuðningsmenn
Thaksins Shinawatra, fyrrver-
andi forseta, sem ætla að fjöl-
menna um helgina til að krefj-
ast þess að núverandi stjórn segi
af sér.
Fyrstu mótmælaaðgerðirnar
voru í gær en skipuleggjendur
stefna á mótmælagöngu milljón
manna í höfuðborginni Bangkok
á sunnudag. - gb
Átakahelgi í Taílandi:
Milljón manna
mótmælaganga
EINN MÓTMÆLENDA Með höfuðbúnað
í líkingu minnismerkis um lýðræði í
Bangkok. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
13°
12°
4°
6°
6°
1°
4°
4°
19°
10°
13°
10°
23°
1°
7°
13°
-2°Á MORGUN
Heldur vaxandi vindur
þegar líður á daginn.
MÁNUDAGUR
Víða fremur hægur
vindur.
3
5 3
3
24
6 3
2
-1
6
6
4
3
2
-1
-1
6
6
7
1
4
6
1
1
5
2
3
5
4
3
10
1
KÓLNAR Það kóln-
ar heldur á landinu
nú um helgina og
má búast við snjó-
komu eða slyddu á
Norðausturlandi í
dag og aftur seinni-
partinn á morgun.
Sunnanlands verð-
ur úrkomulítið í
dag en rigning eða
slydda á morgun.
Ingibjörg
Karlsdóttir
veður-
fréttamaður
STJÓRNMÁL Viðurkennt lögbrot
Ásbjörns Óttarssonar, þingmanns
Sjálfstæðisflokks, verður ekki rann-
sakað af efnahagsbrotadeild ríkis-
lögreglustjóra, enda gera refsi-
ákvæði kröfu um að ásetningur hafi
legið að baki, svo refsa megi fyrir
brotið.
Ásbjörn hefur skýrt brotið fyrir
sitt leyti og erfitt er að hrekja þær
útskýringar, segir Helgi Magnús
Gunnarsson, saksóknari efnahags-
brotadeildar ríkislögreglustjóra.
„Það voru gefnar þær skýringar
að þetta hefði verið gert í samráði
við endurskoðanda félagsins, sem
lést síðastliðið haust. Ég vil taka
það fram að ég er ekki að leggja
neitt mat á þá staðhæfingu eða að
segja að látinn endurskoðandi beri
ábyrgð á þessu. En í þessu tilfelli
verður staðhæfingunni ekki hrund-
ið án þess að ræða við endurskoð-
andann,“ segir Helgi.
Um er að ræða ólöglega arð-
greiðslu sem Ásbjörn greiddi sjálf-
um sér úr Nesveri, útgerðarfyrir-
tæki þingmannsins. Þegar Ásbjörn
viðurkenndi þetta opinberlega sagð-
ist hann ekki hafa vitað betur.
Helgi Magnús segir jafnframt að
lögin geri ráð fyrir því að hægt sé
að leiðrétta slík mistök eftir á með
endurgreiðslu að viðlögðum vaxta-
bótum, sem Ásbjörn mun hafa gert.
- kóþ
Saksóknari efnahagsbrota segir erfitt að hrekja útskýringar þingmanns:
Brot Ásbjörns ekki rannsakað
ÁSBJÖRN
ÓTTARSSON
HELGI MAGNÚS
GUNNARSSON
FJÖLMIÐLAR Allir leikirnir í heims-
meistarakeppni landsliða í knatt-
spyrnu karla í ár verða sýndir í
beinni útsendingu á Stöð 2 og í
Sjónvarpinu.
Þetta kemur fram í tilkynningu
frá Ríkisútvarpinu, en það hafði
áður tryggt sér sýningarréttinn á
öllum leikjunum.
Einnig segir þar að með sam-
starfi stöðvanna sé aðgengi
Íslendinga að mótinu í hámarki.
Stöð 2 Sport fái góða viðbót við
dagskrána og RÚV létti á fjár-
hagsskuldbindingum. - kóþ
Sjónvarpið og Stöð 2 Sport:
Fótboltaleikir
HM í beinni
Viðræður flugvirkja
Samningaviðræðum á milli flugvirkja
og Icelandair var slitið í gær. Flugvirkj-
ar felldu samning Icelandair í janúar
og boða verkfall 22. mars.
KJARAMÁL
SUÐURLAND Sveitarstjórnarmenn
sem standa að Sorpstöð Suður-
lands virðast samstíga í því að
vilja urða sorp í Nesi, nærri Þor-
lákshöfn. Frá þessu er greint í
Sunnlenska fréttablaðinu.
Sorp af Suðurlandi er nú urðað
í Reykjavík með ærnum tilkostn-
aði eftir að hætt var að nota
ruslahaug í Kirkjuferjuhjáleigu
í Ölfusi.
Landið í Nesi er að hluta sagt í
eigu Landgræðslunnar, sem hafi
tekið hugmyndinni vel. Nú sé
beðið svars frá bæjaryfirvöldum
í Ölfusi um málið. - óká
Urða rusl nærri Þorlákshöfn:
Sorpstöð vill
nota land í Nesi
LÖGREGLUMÁL Lögreglumenn stöðv-
uðu kannabisræktun í bílskúr í
austurborginni í fyrradag. Lagt
var hald á tæplega hundrað kanna-
bisplöntur, 30 grömm af marijú-
ana og lítilræði af hassi. Á sama
stað lagði lögregla jafnframt hald
á tvölvubúnað og skjávarpa sem
grunur leikur á að sé þýfi.
Starfsemi annarrar kannabis-
verksmiðju var stöðvuð í iðnaðar-
húsnæði í Kópavogi í fyrradag.
Um fimmtíu kannabisplöntur voru
fjarlægðar og nokkrir gróðurhúsa-
lampar. - jss
KANNABIS Lögregla stöðvaði starfsemi í
tveimur kannabisverksmiðjum.
Kannabisræktun stöðvuð:
Tóku 150 plönt-
ur, hass og þýfi
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is
GENGIÐ 12.03.2010
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
227,5494
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
125,22 125,82
189,82 190,74
172,60 173,56
23,192 23,328
21,537 21,663
17,781 17,885
1,3868 1,3950
192,49 193,63
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
Nóatúni 4 · Sími 520 3000
i i
A
T
A
R
N
A
í dag frá kl.
10 til 16.
Sölusýning
Fjöldi tilboða í
tilefni dagsins.
Verið velkomin í
verslun okkar að
Nóatúni 4.