Fréttablaðið - 13.03.2010, Page 8
8 13. mars 2010 LAUGARDAGUR
NÁM Nemendum í Menntaskólanum við Sund
verður gert kleift að ljúka námi til stúdents-
prófs á þremur árum í stað fjögurra frá og með
næsta hausti. Þá verður tekið upp lotubundið
bekkjarkerfi í stað hins hefðbundna. Önnum
verður fjölgað úr tveimur í fjórar. Það þýðir, að
sögn Más Vilhjálmssonar skólastjóra, að nem-
endur eru í færri námsgreinum á önn en eru
í fleiri kennslustundum í greininni á meðan
námið stendur yfir.
Breytingin felur jafnframt í sér að dugleg-
um nemendum gefst kostur á að ljúka náminu
á þremur árum, meðalnemendum verði auð-
velt að ljúka á þremur og hálfu, hinir geti farið
hægar yfir.
Með breytingunni fækkar brautum í skól-
anum, verða tvær, náttúrubraut og samfé-
lagsbraut. Aukið framboð verður hins vegar á
tungumálakennslu og nem-
endum gefist kostur á krefj-
andi málanámi á hvorri
brautinni sem er. Sem fyrr
þurfi nemar að ljúka ákveðn-
um kjarna en svo þurfi þeir
að fara dýpra í nokkur fög.
Nýbreytni sé að þeir geti
valið til að mynda að sérhæfa
sig í erlendu tungumáli með
stærðfræði og eðlisfræði.
Nýnemar næsta haust
munu hefja nám samkvæmt þessu nýja kerfi en
hinir ljúka námi í gamla kerfinu. - sbt
Breytingar á námsskipan í Menntaskólanum við Sund gerir nemum kleift að stytta framhaldsskólanám:
Bjóða upp á þriggja ára nám til stúdentsprófs
MÁR
VILHJÁLMSSON
Með breytingunum í MS kemst skólinn í hóp
framhaldsskóla þar sem nemendum gefst kostur
á að taka nám til stúdentsprófs á skemmri tíma
en fjórum árum. Í áfangaskólum geta nemendur
bætt við sig einingum og stytt þannig námið.
Lárus H. Bjarnason, skólastjóri MH, segir það
verða æ algengara að nemendur fari þá leið. Í
Kvennaskólanum var síðastliðið haust tekið upp
kerfi sem gerir nemendum kleift að ljúka námi á
þremur árum. Ingibjörg S. Guðmundsdóttir skóla-
stjóri segir að það muni koma í ljós hversu margir
muni nýta sér það. Menntaskólinn Hraðbraut
býður svo upp á stúdentspróf á tveimur árum.
FLEIRI FLÝTA SÉR
1 Hver hlaut Samfélagsverðlaun
Fréttablaðsins á fimmtudag?
2 Hver titlar sig sem jafnréttis-
hönnuð í símaskránni?
3 Hvaða sjónvarpsþáttur
gengur í endurnýjun lífdaga á
leiksviði?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 58
Óskast í 101 Reykjavík
Einbýlishús
Staðgreiðsla fyrir vandað hús á góðum stað
Svar sendist á hus101reykjavik@gmail.com
Það er minna mál að skipta um
banka en þú heldur.
Kynntu þér málið á mp.is eða
hafðu samband í síma 540 3200.
Borgartúni 26 · Ármúla 13a
Varfærni, einfalt þjónustuframboð og
örugg vinnubrögð skipta öllu máli fyrir
fólk og fyrirtæki.
Þannig á banki að vera.
Gjaldeyrisreikningar
Erlend viðskipti
Innheimtuþjónusta
Fyrirtækjaráðgjöf
Netbanki & þjónustuver
Kreditkort
Ávöxtun innlána
Veltureikningur
Fjármögnun
Ábyrgðir
Þeir sem kunna að meta stuttar
boðleiðir og skjóta ákvarðanatöku
...eru fljótastir að flytja sig til okkar.
Ágústa Finnbogadóttir, viðskiptastjóri Ármúla
VIÐSKIPTI Af viðskiptavinum Lands-
bankans og Íslandsbanka hafa 60
prósent nýtt sér sjálfvirka greiðslu-
jöfnun íslenskra íbúðalána, sam-
kvæmt upplýsingum frá bönkunum.
Heldur fleiri hafa farið þá leið hjá
Arion banka, eða 68 prósent.
Að auki bjóða bankarnir upp á sér-
tækar leiðir fyrir fólk sem lendir í
greiðsluvanda, en þær eru misjafnar
eftir bönkum. Stóru bankarnir þrír
bjóða þó allir upp á höfuðstólslækk-
un erlendra lána í einhverri mynd
og einhverja aðlögun íbúðalána. Þá
hafa Landsbankinn og Arion banki
jafnframt boðið sérstakar lausnir á
borð við tímabundna fasta greiðslu
afborgana og vaxtagreiðslur ein-
vörðungu í eitt ár.
Hermann Björnsson, fram-
kvæmdastjóri viðskiptabankasviðs
Arion banka, hafnar því að „ekkert
sé að gerast“ eins og vilji bregða við
að heyrist í almennri umræðu um
bankana. Á annað þúsund manns
hafi nýtt sér sérstakar lausnir bank-
ans þær níu vikur sem þær hafi stað-
ið til boða. Þá sé rangt að lausnirn-
ar henti helst hátekjufólki sem farið
hafi offari í neyslu. Meirihluti þeirra
sem nýtt hafi sér úrræði bankans sé
ungt fólk með sína fyrstu íbúð, eða
nálægt 70 prósentum. Þá hafi um 35
prósent viðskiptavina með erlend
íbúðalán nýtt sér höfuðstólsleiðrétt-
ingu Arion banka. Samtals hafi um
14 þúsund viðskiptavinir bankans
nýtt sér lausnir hans eða opinberu
úrræðin sem í boði séu.
Í tilkynningu sem Arion banki
sendi frá sér í gær er frá því greint
að starfsfólk Arion banka hafi að
jafnaði afgreitt um 150 lánabreyt-
ingar á viku síðustu vikur.
Hermann segir markmiðið að
finna fyrir sumarið hentugar
lausnir með öllum þeim sem búi
við skuldavanda, en lausnir bank-
ans standa viðskiptavinum til boða
fram til 1. júlí.
Í tilkynningunni kemur jafnframt
fram að Arion hafi ákveðið að krefj-
ast ekki uppboða vegna vangoldinna
húsnæðislána til loka ársins 2010.
„Það er óháð því hvort um er að
ræða innlend eða erlend lán.“
Samkvæmt upplýsingum frá
Landsbankanum hafa um 1.650
manns nýtt sér úrræði bankans,
en þá er ekki litið til sjálfvirkrar
greiðslujöfnunar innlendra lána.
Hjá Íslandsbanka fengust þær
upplýsingar að í lok janúar hafi
1.100 viðskiptavinir nýtt sér höf-
uðstólslækkun íbúðalána og 10.000
greiðslujöfnun. 810 manns hafi nýtt
sér sérstaka niðurgreiðslu yfirdrátt-
ar. Hjá ISB Fjármögnun hafi hins
vegar 2.900 einstaklingar nýtt sér
höfuðstólslækkun bílalána og bíla-
samninga og 1.110 greiðslujöfnun.
Þá hafi 520 rekstraraðilar fengið
höfuðstólslækkun. Samtals hafi því
rúmlega 16 þúsund nýtt sér einhver
af þeim almennu úrræðum sem í
boði séu hjá bankanum.
olikr@frettabladid.is
Hátt í 40 þúsund hafa
nýtt sér úrræði í boði
Milli þrjátíu og fjörutíu prósent lántakenda sögðu sig frá sjálfvirkri greiðslujöfnun
íslenskra íbúðalána hjá bönkunum. Í hverjum stóru bankanna þriggja hafa á annað
þúsund manns nýtt sér sérstök úrræði. Arion afgreiðir 150 lánabreytingar á viku.
BANKAVIÐSKIPTI Bankarnir bjóða upp á sértækar leiðir fyrir fólk sem glímir við
greiðsluvanda en þær eru mismunandi eftir bönkum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
NÝTA SÉR ÚRRÆÐI BANKA
Fjöldi þeirra sem nýtt hefur sér greiðslujöfnun og sérstakar lausnir sem
stóru bankarnir þrír bjóða.
Banki Fjöldi lána
Íslandsbanki 16.000
Arion 14.000
Landsbankinn 8.000
Alls: 38.000
ATH: Fjöldi og gerð lánasamninga er misjafn eftir bönkum. Fjölda þeirra sem
nýtt hafa sér úrræði stóru bankanna ber því að skoða í því ljósi að Arion (áður
Kaupþing) og Íslandsbanki (áður Glitnir) voru stórtækari en Landsbankinn á
sviði íbúðalána. Þá eru inni í tölum Íslandsbanka fjöldi bílalánasamninga ISB
Fjármögnunar.
Auglýsingasími
Allt sem þú þarft…
VEISTU SVARIÐ?