Fréttablaðið - 13.03.2010, Side 13

Fréttablaðið - 13.03.2010, Side 13
skattur.is Skilafrestur skattframtals einstaklinga er til föstudagsins 26. mars Talið fram á skattur.is Veflyklar hafa verið sendir til nýrra fram teljenda og þeirra sem töldu fram á vefnum í fyrra og eiga ekki varanlega veflykla frá fyrri árum. Veflykill veitir aðgang að þjónustusíðu á skattur.is þar sem hægt er að fylla út skattframtalið á einfaldan hátt. Glatist veflykill má sækja um nýjan á skattur.is og fá hann sendan í vefbanka eða í pósti. Framtal á pappír Pappírsframtöl eru aðeins send þeim sem töldu fram á pappír í fyrra. Hægt er að panta áritað pappírsframtal og sundur- liðunarblað á skattur.is eða í síma 442-1414 og fá það sent í pósti. Jafnframt er hægt að prenta út auð framtalsform á skattur.is. Þeir sem hafa haldið sig við pappírinn eru hvattir til að prófa framtalið á vefnum hafi þeir möguleika á því. Áritun upplýsinga á framtal Laun, hlunnindi, starfstengdar greiðslur, styrkir o.fl., eru árituð á framtalið sam kvæmt innsendum launa miðum. Einn ig greiðslur frá Tryggingastofnun rík isins, At vinnuleysistryggingasjóði, Fæð ing ar or lofssjóði og lífeyrissjóðum. Jafnframt eru flestallar eignir og skuldir áritaðar á framtalið. Áríðandi er að framteljandi athugi hvort áritaðar fjárhæðir og aðrar upp lýs ingar séu í samræmi við gögn og upp lýsingar sem hann hefur sjálfur undir hönd um. Aðgengilegar leiðbeiningar Leiðbeiningar er að finna á skattur.is á aðgengilegu formi. Einnig er auðvelt að kalla fram skýringar við einstaka kafla eða reiti í vefframtali. Prentaðar leiðbeiningar má fá hjá skattstofum. Símaþjónusta 442-1414 Í mars verður veitt aðstoð frá kl. 10 til 15:30 alla virka daga í síma 442-1414. Dagana 26. mars, 6. og 7. apríl verður þjónustan í boði til kl. 19. Skilafrestur Almennur skilafrestur fyrir launamenn og einstaklinga með eigin atvinnurekstur er til 26. mars. Hægt er að sækja um viðbótar frest á skattur.is, lengst til 7. apríl. Fljótlegt, öruggt og einfalt að telja fram

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.