Fréttablaðið - 13.03.2010, Side 18
18 13. mars 2010 LAUGARDAGUR
UMRÆÐAN
Jón Óttar Ragn-
arsson skrifar um
fæðubótarefni
Faðir minn kenndi mér ungum að
gleðjast aldrei yfir
óförum annarra. Ég
verð þó að játa að ég
átti erfitt er ég las
grein dr. Magnúsar
Jóhannssonar um fæðubótarefni
í Læknablaðinu í fyrri viku!
Fjöregg þjóðar
Allt frá landnámstíð héldu fæðu-
bótarefni lífinu í Íslendingum.
Ástæðan var sú að kalt loftslag
er óhagstætt fyrir matjurtarækt
og innflutt korn var dýrt og oft
skemmt. Fyrir bragðið kom fæðið
að mestu úr dýraríkinu. Af þess-
um sökum áttu Íslendingar um
aldaraðir heimsmet í prótínn-
eyslu. Á hinn bóginn er slíkt fæði
snautt af andoxurum á borð við
C-vítamín, sem er helsta afeitrun-
arefni („detox“) lifrarinnar, yng-
ingarbrunnur líkamans og margt
fleira. Yfir sumartímann lögðu
Íslendingar því allt kapp á að
safna vetrarforða af fæðubótar-
efnum á borð við fjallagrös, blóð-
berg, ætihvönn, ber og söl sem
gáfu þeim gnægð af C-vítamíni
og öðrum mögnuðum andoxun-
arefnum. Mikilvægast var lýsið
sem gaf þrjú dýrmæt fjörefni:
ómega-3, D- og A-víta-mín. Skýr-
ir þessi einstæða blanda dýra-
fæðis og villijurta annálaða feg-
urð íslenskra kvenna
og ótrúlega lífsgleði
og hreysti Íslendinga í
aldanna rás þrátt fyrir
hallæri og faraldra.
Náttúruperla og heilsu-
paradís
Fæðubótarefni og
krydd voru löngum eft-
irsóttasta auðlind jarð-
ar. Í dag eru fæðubótar-
efni, ásamt líkamsrækt
og óhefðbundnum lækn-
ingaaðferðum, kjölfesta hollustu-
byltingarinnar sem nú breiðist út
um heiminn. Þessi bylting hefur
nú þegar byggt nýtt heilbrigðis-
kerfi við hlið þess gamla. Spáir
þekktasti heilsuhagfræðingur
heims, Paul Zane Pilzer prófess-
or, að auðsköpun á þessu sviði á
næstu árum verði eins hröð og
gerðist í tölvugeiranum í lok 20.
aldar!
Þetta er okkar tækifæri!
Íslendingar eiga fegursta landið,
bestu fiskimiðin og lýsið, ómeng-
aðasta vatnið, loftið og jarðveginn
auk urmul villijurta, en umfram
allt heitar laugar og jarðhita sem
undirstöðu stóriðju á ylræktuðum
kryddum og lækningajurtum.
Andspyrnan
Þrátt fyrir áratugarannsókn-
ir okkar fremstu vísindamanna
og lækna á íslenskum fæðu-
bótarefnum – með dr. Sigmund
Guðbjarnason prófessor í farar-
broddi – hefur harðsnúinn hópur
afturhaldsseggja unnið mark-
visst gegn útbreiðslu þeirra. Þótt
ótrúlegt sé hefur æðsti prestur-
inn, dr. Magnús Jóhannsson,
varðgæslumaður hins alþjóðlega
lyfjaiðnaðar, einkum ráðist á það
næringarfyrirtæki sem stend-
ur fremst vísindalega og er eitt
örfárra sem setur allar vörur í
ströngustu skoðun yfirvalda. Er
ofstækið slíkt að í meira en ára-
tug hélt hann úti svæsnu níði
um Herbalife á vefsíðu Háskóla
Íslands! Er þetta þeim mun
furðulegra í ljósi þess að inn í
landið flæða nú fæðubótarefni
af geysi misjöfnum gæðum nær
eftirlits-laust!
Um árabil kenndi hann heilli
kynslóð íslenskra lækna lyfja-
fræði og ól á andúð og þar með
fáfræði þeirra á fæðubótarefn-
um, náttúrulækningum og öllu
öðru sem gat dreift huga þeirra
frá „kjarna málsins“: gervilyfjun-
um. Áhrifin létu ekki á sér standa
og árið 2002 var svo komið að yfir
75% ungra manna og 85% ungra
kvenna á Íslandi voru hætt að
taka lýsi með skelfilegum afleið-
ingum fyrir lífslíkur þeirra og
lýðheilsu þjóðarinnar!
Sem betur fer sjá æ fleiri í
gegnum hræðsluáróður aftur-
haldsaft lanna. Breiðist hollus-
tubyltingin nú hratt út, ekki síst
meðal ungs fólks, á sama tíma
og æ fleiri ungir læknar losa sig
undan kverkataki fulltrúa gamla
tímans.
„Stóra bomban!“
Eftir að hafa margtilkynnt að
brátt sjái rannsóknir hans á skað-
semi fæðubótarefna dagsins ljós
birtust þær loks í Læknablaðinu
í síðustu viku. Er ekki ofsögum
sagt að margir hafi orðið þrumu
lostnir. Í fyrsta lagi reyndist
sjúklingafjöldinn ótrúlegur: 5
manns á tíu árum (af yfir 10.000
manns sem neyttu vörunnar)!
Þar sem flestar Herbalife-vörur
innihalda öfluga náttúrulega and-
oxara bendir þetta til einstaklega
lágrar skaðsemisvirkni.
Staðfestir það sem áður var
vitað að andoxarar eru ekki skað-
valdur, heldur besta vörn lifrar-
innar gegn eitrun og bólgum af
öllu tagi. Þar við bætist að Herba-
life leiðir nú heimsátak gegn ill-
vígasta lifrar-bólgufaraldri allra
tíma, offitulifrarbólgunni.
Strax næsta morgun viður-
kenndi dr. Magnús að af 5 sjúk-
lingum hefðu allir nema 1 (!) líka
tekið inn gervilyf eða verið með
undirliggjandi sjúkdóm og full-
yrti um leið að langflestar vörur
Herbalife væru vitameinlausar,
enda „bara matur“.
Í öðru lagi: Enda þótt grein
hans sé tileinkuð Herbalife
reyndust fimm af þeim átta jurt-
um sem tilgreindar eru aldrei
hafa verið í vörum Herbalife á
Íslandi! Og hverjar voru hinar
þrjár sem voru það og hljóta því
að vera sökudólgarnir!
Þær voru (haldið ykkur!):
(a) ein þekktasta lækningjaurt
heims, aloe vera, (b) eitt algeng-
asta krydd jarðar, negull, og loks
(c) þjóðardrykkur ¼ mannkyns,
grænt te, sem WHO* hvetur alla
fullorðna jarðarbúa til að drekka
daglega í heilsuskyni!
Til að kóróna skrípaleikinn
er aðalorsök lifrareitrunar vel
þekkt, en það eru einmitt skjól-
stæðingar hans, gervilyfin (sjá
t.d. grein í sama Læknablaði), en
það er þeim að þakka að a.m.k.
100 Íslendingar deyja árlega (og
a.m.k. tífalt fleiri fárveikjast)!
Hygg ég, eftir öll þessi endemi,
að ekki sé of djúpt tekið í árinni
þegar sagt er að ef dr. Magnús á
sér enn þá einhverja fylgismenn
á Íslandi er ólíklegt að þeir láti
mikið sér kræla næstu áratugina,
hvað þá árin!
Á meðan getum við hin aftur
einbeitt okkur að því að stemma
stigu við offitufárinu, bæta nær-
ingar-ástand þjóðarinnar, afeitra
í okkur lifrina og á sama tíma að
hjálpa dr. Sigmundi og félögum
að endurreisa fjárhag íslensku
þjóðarinnar!
Höfundur er doktor í næringar-
fræði og fyrrverandi yfirmaður
matvæla- og næringarbrautar
Háskóla Íslands.
Fæðubót: Böl eða blessun?
JÓN ÓTTAR
RAGNARSSON
Fæðubótarefni og krydd voru
löngum eftirsóttasta auðlind
jarðar. Í dag eru fæðubótar-
efni, ásamt líkamsrækt og
óhefðbundnum lækninga-
aðferðum, kjölfesta hollustu-
byltingarinnar sem nú breiðist
út um heiminn. Þessi bylting
hefur nú þegar byggt nýtt
heilbrigðiskerfi við hlið þess
gamla.