Fréttablaðið - 13.03.2010, Page 19

Fréttablaðið - 13.03.2010, Page 19
LAUGARDAGUR 13. mars 2010 19 UMRÆÐAN Viðar Örn Eðvarsson skrifar um tengsl offitu við nýrna- og hjartasjúkdóma Alþjóðleg samtök nýrnalækna og nýrnasjúklinga hafa frá árinu 2006 valið annan fimmtu- dag í mars (http://www.worldkid- neyday.org/) ár hvert til þess að vekja athygli á nýrnasjúkdóm- um, þjónustu við nýrnasjúklinga og aðgerðum til að fyrirbyggja nýrnabilun. Mikil fjölgun hefur orðið á fjölda þeirra sem þurfa meðferð vegna nýrnabilunar á lokastigi síðustu áratugina sem skýrist meðal annars af hækk- andi meðalaldri, auknum lífslík- um sjúklinga og bættu aðgengi að meðferð við lokastigsnýrnabil- un, bæði skilun (blóðhreinsun) og ígræðslu nýra. Árlega hefja um 20-25 Íslendingar blóðhreinsun- armeðferð við nýrnabilun á loka- stigi og um það bil 10 einstakling- ar gangast undir ígræðslu nýra en algengustu orsakir nýrnabilunar hjá fullorðnum eru háþrýstingur og sykursýki. Á Íslandi er tíðni lokastigs- nýrnabilunar í börnum undir 18 ára svipuð og gerist meðal ann- arra vestrænna þjóða en á árun- um 1997-2006 greindust 6 börn á aldrinum 0-17 ára (óbirtar niður- stöður: H. M. Jónsson). Algeng- ustu orsakir lokastigsnýrnabilun- ar hjá börnum og unglingum eru meðfæddir sjúkdómar í nýrum og þvagfærum en ólíkt því sem við á um fullorðna þá greinast börn sjaldnast það ung með háþrýsting og sykursýki að þeir sjúkdómar leiði til nýrnabilunar í æsku. Land- spítalinn (Barnaspítali Hrings- ins) er eina heilbrigðisstofnunin á Íslandi sem býður upp á sérhæfða þjónustu fyrir börn með nýrna- sjúkdóma. Þar fer fram grein- ing og meðferð nýrnabilunar og margvíslegra nýrnasjúkdóma, bæði meðfæddra og áunninna, svo sem bólgusjúkdóma í nýrum, meðfæddra galla á þvagfærum, nýrnasteina, þvagfærasýkinga, og háþrýstings. Offita og yfirþyngd eru mikil- vægir áhættuþættir langvinnara sjúkdóma svo sem háþrýstings, sykursýki 2, hjarta- og æðasjúk- dóma og nýrnasjúkdóma hjá bæði börnum og fullorðnum en áætlað er að 2-6% útgjalda til heilbrigðis- mála í vestrænum löndum fari til meðferðar á sjúkdómum tengdum offitu (http://www.who.int/hpr/ NPH/docs/gs_obesity.pdf). Á undanförnum árum og áratug- um hefur yfirþyngd og offita barna og unglinga aukist að því marki að talað er um faraldur. Í Bandaríkj- unum hefur algengi offitu 6-11 ára barna rúmlega tvöfaldast frá sjö- unda áratugnum og samkvæmt niðurstöðum úr rannsókn Erlings Jóhannssonar og félaga frá árinu 2006 gætir sömu tilhneigingar hérlendis. Athyglisvert er að tíðni háþrýstings í börnum og ungling- um hefur farið vaxandi undan- farna tvo áratugi, að því er virðist í beinum tengslum við aukna yfir- þyngd og offitu. Fyrstu niðurstöð- ur íslenskrar rannsóknar sem nú er í gangi á blóðþrýstingi 1000 níu til tíu ára barna (S. Steinþórsdótt- ir, S. B. Elíasdóttir) sýna algengi háþrýstings 2,6% og umtalsverð tengsl við yfirþyngd og offitu. Byrjandi skemmdir á hjarta- og æðakerfi og nýrum voru til stað- ar hjá nokkrum þeirra barna sem voru með staðfestan háþrýsting. Líklegt er að vaxandi algengi yfirþyngdar, offitu og háþrýstings hjá börnum og unglingum muni valda alvarlegum æðaskemmd- um og fylgikvillum eins og hjarta- og nýrnasjúkdómum hjá yngra fólki en áður hefur þekkst. Er það umhugsunarefni að lífslíkur ungs fólks í dag gætu í fyrsta skipti í sögunni orðið lakari en næstu kyn- slóðar á undan. Vaxandi algengi offitu og háþrýstings hjá börnum og ungl- ingum er alvarlegur lýðheilsu- vandi sem mikilvægt er bregðast við. Með því að draga úr algengi yfirþyngdar og meðhöndla háþrýsting hjá börnum og ungl- ingum snemma á ævinni má koma í veg fyrir umtalsverða aukningu á algengi alvarlegs æðasjúkdóms í hjarta, nýrum og heila á næstu áratugum. Nauðsynlegt er að yfir- völd heilbrigðis- og menntamála í samvinnu við Landlæknisembætt- ið, Lýðheilsustöð og aðrar stofn- anir sem koma að stefnumörkun lýðheilsumála komi sér saman um leiðir til þess að sporna við þessum alvarlega lýðheilsuvanda svo fyr- irbyggja megi ótímabæran heilsu- brest hjá komandi kynslóðum, þar á meðal nýrnabilun. Höfundur er sérfræðingur í nýrnalækningum barna og umsjónarmaður líffæraígræðslu barna á Barnaspítala Hringsins, Landspítala. Aukin offita hjá börnum 35% viðskiptavina okkar með erlend íbúðalán hafa nýtt sér höfuðstólslækkun. Hafðu samband Hefur þú kynnt þér lausnir Arion banka? Við hjá höfum lagt mikla vinnu og metnað í að koma til móts við þarfir viðskiptavina okkar með íbúðalán. Á annað þúsund viðskiptavinir hafa þegar nýtt sér lausnir bankans til höfuðstólslækkunar. Þar af er ungt fjölskyldufólk með sína fyrstu íbúð í miklum meirihluta. Við hvetjum viðskiptavini að koma til okkar og skoða hvaða lausnir standa þeim til boða. Arion banki vill árétta að fái greiðendur erlendra lána sér dæmdan betri rétt í Hæstarétti, missa þeir ekki þann rétt þó að þeir nýti sér lausnir bankans. Nánari upplýsingar fást hjá þjónusturáðgjöfum í útibúum eða á . UMRÆÐAN Magnús Orri Schram skrifar um ríkisstjórnina Fjölmiðlar ræða nú „uppstokkun“ í rík- isstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna og eitthvað er rætt um breytingu í ráðherra- liði. En gætum að. Víða leynast óró- legar deildir í þingflokkum. Brýnustu verkefni ríkisstjórn- ar á Íslandi í dag eru skýr og skiptir þá engu hverjir skipa þá ríkisstjórn. 1. Ljúka þarf Icesave-málinu sem allra fyrst. Það er hægt að gera í anda þeirrar stefnu sem ný samninganefnd undir stjórn Lee Buchheit er að marka en nú er mál að linni. Icesave-samn- ingum þarf að loka. 2. Halda þarf áfram endur- reisn efnahagslífsins í samstarfi við AGS. Samstarfið er lykilat- riðið til að hingað leiti erlent fjármagn, vext- ir lækki, höft verði afnumin og króna styrkist. 3. Gera þarf enn betur til að aðstoða heimili í skulda- vanda. 4 . Koma þarf atvinnulífinu í gang með öllum tiltækum ráðum og minnka þannig atvinnuleysi. 5. Halda skal áfram á þeirri leið að laga útgjöld ríkisins að tekjum þess. Næstu stóru skref í þeim efnum verða útgjaldamegin en ekki í gegnum hækkun skatta á fyrirtæki eða einstaklinga. Fleira mætti nefna en ofan- greind atriði þurfa að sæta for- gangi. Um leið verða til stað- ar réttar forsendur til að styðja ríkisstjórn. Höfundur er alþingismaður. Uppstokkun hjá ríkisstjórninni MAGNÚS ORRI SCHRAM SEND IÐ OKK UR LÍNU Fréttablaðið og Vísir hvetja lesendur til að senda línu og leggja orð í belg um málefni líðandi stundar. Greinar og bréf skulu vera stutt og gagnorð. Tekið er á móti efni á netfanginu greinar@frettabladid.is eða á vefsíðu Vísis, þar sem finna má nánari leiðbeiningar. Ritstjórn ákveður hvort efni birtist í Fréttablaðinu eða Vísi eða í báðum miðlunum að hluta eða í heild. Áskilinn er réttur til leiðréttinga og til að stytta efni.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.