Fréttablaðið - 13.03.2010, Page 28
28 13. mars 2010 LAUGARDAGUR
S
agan um Lísu í Undralandi byrjaði
einn indælan eftirmiðdag 4. júlí
árið 1862 þegar ungur maður að
nafni Charles Dodgson reri þrem-
ur litlum stúlkum niður ána Tham-
es frá borginni Oxford til Godstow. „Segðu
okkur sögu,“ sagði hin litla Alice Liddell og
úr þessu spannst ein frægasta saga allra
tíma. Lísa féll ofan í kanínuholu, rétt eins og
holurnar sem stúlkurnar sáu á árbakkanum
þennan sumardag með manninum sem síðar
varð þekktur sem Lewis Carroll. Alice Lidd-
ell minntist þess þegar hún var orðin eldri
að Dodgson hefði ferðast með þær til ævin-
týraheima þennan dag. Hún bað hann þrá-
faldlega um að skrifa niður söguna um nöfnu
hennar í Undralandi og tveimur og hálfu ári
eftir að sagan fæddist þá færði hann henni
skáldsöguna Lísu í Undralandi innbundna í
grænu leðri.
Feiminn stærðfræðingur
Dodgson var hávaxinn, grannvaxinn og fölur
með næstum kvenlega andlitsdrætti. Hann
stamaði, var heyrnarlaus á öðru eyra og
þjáðist af mígreni og flogaveiki. Stamið átti
eftir að birtast í líki dódófuglsins í sögunni
um Undraland en Dodgson stamaði einmitt
do-do þegar hann reyndi að segja nafnið sitt.
Hann klæddist aðeins svörtum fötum, nema
þegar hann fór út að róa og þótti alvörugef-
inn og sérvitur. Dodgson, sem hafði vakið
nokkra athygli fyrir limruskrif sín sem ungl-
ingur, var fyrst og fremst framúrskarandi
stærðfræðingur og fékk hæstu einkunnir
í faginu bæði í skóla og háskóla og endaði
sem stærðfræðiprófessor við Christ Church
í Oxford-háskóla. Dodgson skrifaði verk
um algebru fyrir Viktoríu Englandsdrottn-
ingu, bók um tennisreglur og fann upp vélina
Nyctograph sem gerði honum kleift að skrifa
í myrkri án þess að tendra ljós.
Dodgson verður Carroll
Vinir Dodgsons sannfærðu hann um að
fara með handritið að Lísu í Undralandi til
útgefanda og bókin kom út árið 1865. Lewis
Carroll var nafnið sem Dodgson hafði notað
sem höfundarnafn á nokkur ljóð og fylgdi
honum alla tíð eftir útgáfu Lísu. Hann kaus
hins vegar að opna aldrei eitt einasta bréf
sem var stílað á Lewis Carroll. Sagan um
Lísu var myndskreytt á fagurlegan hátt af
teiknaranum John Tenniell og bókin fékk
lofsamlega dóma og seldist í himinháum
upplögum. Hún var ein fyrsta skemmti-
sagan skrifuð fyrir börn og var uppfull af
húmor og skringilegheitum sem þau kunnu
að meta. Lísa í Undralandi sameinar hetju-
sögu og fantasíur og er uppfull af skopstæl-
ingum, barnavísum og söngvum. Margir
fræðimenn sjá uppruna Lísu í stærðfræði-
legum pælingum ýmis konar og aðrir bera
hana til dæmis saman við miðaldaljóð þar
sem dýr eru gædd mennskum eiginleikum.
Bókin þykir uppfull af duldum táknum og
leyndum meiningum sem eru enn óendan-
leg uppspretta bókmennta og fræðigreina
um heim allan.
Barnaást eða barnagirnd?
Charles Dodgson naut sín best í félagsskap
lítilla stúlkna. Liddell-systurnar þrjár voru
dætur yfirprófessorsins við Christ Church
í Oxford og vinskapur Charles við þær var
mikill, sérstaklega við Alice og hann virt-
ist heillaður, jafnvel ástfanginn af henni.
Kannski varð hann aðeins of hrifinn af
henni því að á tímabili þegar hún var ell-
efu ára hélt hann sig fjarri Liddell-fjölskyld-
unni líkt og eitthvað hefði mögulega þótt
óviður-kvæmilegt í ást hans á stúlkunni.
Ekkert þykir sannað um að Dodgson hafi
haft neitt nema eðlilegan áhuga á börnum
þrátt fyrir að ýmsir haldi öðru uppi. Þessi
feimni maður naut sín best meðal barna,
hann hætti að stama í návist þeirra og hafði
í heiðri hina rómantísku hugmynd um hrein-
leika barna sem birtist hjá fleiri skáldum
þessa tíma.
Það þykir líklegt að Dodgson hafi sjálf-
ur lent í einhvers konar áreiti sem barn í
heimavistarskóla því í skrifum sínum talar
hann um að þau þrjú ár hafi verið óbæri-
leg vegna „næturtruflana“. Dodgson hafði
mikinn áhuga á ljósmyndun og myndaði oft
naktar litlar stúlkur sem mörgum hefur þótt
rökstyðja sögur um barnagirnd hans. Mynd-
irnar voru þó allar teknar með leyfi foreldra
barnanna sem voru viðstaddir myndatök-
urnar.
Tengingar við eiturlyfjaneyslu?
„Guð gefi mér heilagan anda til að hreinsa
mig og gera mig góðan,“ skrifaði Dodgson í
dagbækur sínar og hver svo sem uppspretta
angistar hans var þá þykir ljóst að einhvers
konar sálarkreppa og sorg sé undirliggjandi
í sögunni um Lísu sem af mörgum bók-
menntafræðingum þykir uppfull af vísunum
í þroska barns yfir í heim hins fullorðna.
Sumir þykjast sjá mikið af vísunum í kyn-
ferðislega óra í bókinni með hinum sífelldu
lýsingum af stækkunum og minnkun, hnerr-
um og barsmíðum, ostrum og flamengó-fugl-
um. Þrautir, púsluspil og alls kyns heilabrot
voru Dodgson hugleikin og mynda stóran
hluta af sögunni um Lísu.
Deilt hefur verið um hvað flöskurnar sem
Lísa drekkur úr og kökurnar sem hún borðar
til að stækka og minnka tákna. Þetta, ásamt
pípureykjandi lirfu á sveppi og síbrosandi
ketti, þykir mörgum vera vísun í eiturlyfja-
neyslu og sannarlega var skáldsagan Lísa í
Undralandi í hávegum höfð af hippum sjöunda
áratugarins sem tengdu hana við sýrutripp og
hassreykingar.
Ekkert er sannað um hvort Dodgson hafi
sjálfur neytt skynörvandi lyfja eða reykt
ópíum eða hass þó að það sé ekki ólíklegt.
Margir samtímarithöfundar hans neyttu
ópíums og sumir vilja meina að hin reykjandi
lirfa sé háð á þá og hinar ópíumreykjandi hefð-
arstéttir. Skynörvandi lyf voru sannarlega til
á þessum tíma og getgátur hafa verið uppi um
að Carroll hafi mögulega neytt sveppa eða
jurtarinnar Belladonna sem var notuð í lækn-
ingaskyni og svipar að mörgu leyti til efnis-
ins LSD. Morfín hefur Carroll líklega tekið
við mígreniverkjum og öðrum kvillum líkt og
margir á þessum tímum.
Carroll-mýtan hrakin
Umdeildar hugmyndir hafa einnig verið uppi
um að Dodgson hafi ekki verið strangkrist-
inn eins og áður var talið heldur hafi hann
verið á kafi í dulspeki, guðspeki og spírit-
isma og tengst endurvakningu nýplatónism-
ans á nítjándu öld og þetta geti útskýrt tákn-
fræði í sögum hans. Rithöfundurinn Karoline
Leach skrifaði bókina In the Shadow of the
Dream Child: The Myth and the Reality of
Lewis Carroll og hrekur með henni ýmislegt
sem áður var talið víst um rithöfundinn eða
„The Carroll Myth“, og þá sér í lagi að hann
hafi verið barnaníðingur.
Dodgson hélt áfram ljósmyndun sinni og
hóf að umgangast listamennina sem aðhyllt-
ust Pre-Rafaelita-stefnuna eins og málarana
Dante Gabriel Rossetti og John Everett Mill-
ais og varð góður vinur Johns Ruskin. Þau
tuttugu árum sem hann átti ólifuð eftir sig-
urgöngu Lísu í Undralandi breyttist daglegt
líf hans lítið. Hann hélt áfram að kenna við
Christ Church þar til ársins 1881 og gaf út
síðustu skáldsögur sínar, Sylvie og Bruno,
árin 1889 og 1893. Eina skiptið sem hann
ferðaðist til útlanda var til Rússlands árið
1867.
Dodgson lést 65 ára gamall af lungnabólgu
heima hjá systur sinni í Guildford sunnan höf-
uðborgarinnar. Lísa í Undralandi hefur verið
þýdd á um 120 tungumál og sagan endurgerð
í sjónvarpi, kvikmyndum og leikhúsi.
Ný ævisaga um Lewis Carroll, The
Mystery of Lewis Carroll eftir Jenny Woolfe,
rekur bankareikninga hans og telur sannað
að hann hafi gefið óspart af eigum sínum til
yfir 30 góðgerðafélaga sem hjálpuðu börn-
um sem höfðu orðið fyrir kynferðislegu og
líkamlegu ofbeldi.
Litla stúlkan í Undralandi
Hver var maðurinn á bak við bókina heimsfrægu um Lísu í Undralandi og hver var uppspretta sögunnar? Anna Margrét Björns-
son rifjar upp ævi og hugarheim stærðfræðiprófessorsins Charles Dodgsons sem betur er þekktur undir nafninu Lewis Carroll.
LÍSA TIMS BURTON Kvikmynd leikstjórans Tim Burton er nú í kvikmyndahúsum og skartar leikkonunni Miu
Wasikowu í hlutverki Lísu. Í kvikmyndinni blandar Burton saman bókunum Lísu í Undralandi og framhaldi
hennar, Gegnum spegilinn, og útkoman verður nokkuð ólík hinum upprunalegu verkum.
TEIKNING AF LÍSU Charles Dodgson
rissaði upp Lísu í Undralandi þegar
hann sat við skriftir á bókinni. Í efra
vinstra horni má sjá teikningu af hinni
raunverulegu Lísu, stúlkunni Alice
Liddell sem var honum innblástur að
sögunni.
LJÓSMYND AF ALICE Stúlkan Alice Lidd-
ell (1852 - 1934) en hér er ljósmynd
af henni í hlutverki betlarastúlku sem
Dodgson tók. NORDICPHOTOS/GETTY
LÍSA Í ÓTAL MYNDUM Þessi teikning úr
Lísu í Undralandi var gerð af Charles
Folkard.
HVÍTA KANÍNAN Hljómsveitin Jefferson
Airplane samdi lagið White Rabbit
innblásið af Lísu í Undralandi og tengdi
söguna við neyslu LSD.
TEIKNING ÚR BÓKINNI John Tenniell
myndskreytti upprunalegu útgáfuna
með fallegum og skringilegum teikning-
um sem áttu vel við efnið.
➜ FRÆG VERK EFTIR LEWIS CARROLL
MAÐURINN Á BAK VIÐ LÍSU Charles Lutwidge
Dodgson, betur þekktur sem Lewis Carroll. Sjálfs-
mynd tekin árið 1865, sama ár og bókin um Lísu
kom út.
■ Lísa í Undralandi (e. Alice’s Adventures in
Wonderland)
■ Gegnum spegilinn (e. Through the Looking
Glass)
■ The Hunting of the Snark
■ Jabberwocky
■ Phantasmagoria
■ Symbolic Logic
■ Euclid and his Modern Rivals
■ The Alphabet Cipher
■ What the Tortoise Said to Achilles
■ Hiawatha’s Photographing