Fréttablaðið - 13.03.2010, Side 31

Fréttablaðið - 13.03.2010, Side 31
fjölskyldan [ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM FJÖLSKYLDUNA ] mars 2010 Gramsað í læknatösku pabba „Ég var lengi í uppreisn gagnvart því að verða læknir því allir í fjöl- skyldunni bjuggust við að ég fetaði í fótspor föður míns og föðurafa. En svo þegar ég stóð frammi fyrir námsvali í háskólanum fannst mér ekkert nema læknisfræðin áhuga- verð og sé ekki eftir því námsvali í dag,“ segir Eva Albrechtsen sem útskrifaðist sem læknir úr Háskóla Íslands vorið 2007. Faðir hennar er Jörgen Albrechtsen röntgenlækn- ir. „Eins og önnur læknabörn þótti mér súrt í broti að fá ekki að vera eins oft veik heima og hinir krakk- arnir. Ég var alltaf send í skólann um leið og ég varð hitalaus, en læknar hafa eðlilega umframvitn- eskju um veikindi og sparka í rass- inn á sínum börnum þótt kvartað sé undan einhverjum krankleika. Hins vegar er ekki mælt með að læknar meðhöndli sín börn eða sína nánustu,“ segir pabbastelpan Eva sem ávallt hefur litið upp til föður síns í starfi og leik. „Pabba hefur alltaf fundist mjög gaman í vinnunni og það skín af honum enn þann dag í dag. Ég varð snemma spennt fyrir læknatösk- unni og fékk iðulega að gramsa í henni. Seinna, þegar pabbi hafði sérhæft sig, þótti mér gaman að fara með honum til að sjá hvað hann aðhafðist í vinnunni,“ segir Eva sem nýlega byrjaði sérhæf- FRAMHALD Á SÍÐU 4 FR ÉT TA BL A Ð IÐ /V ILH EL M Gaman að kenna börn um jóga Ágústa og Drífa segja börn hafa ánægju af jóga SÍÐA 2 Símtal af hafsbotni Ásgeir Einarsson kafari og synir hans hafa það orð á sér að vera mikið neðansjávar SÍÐA 2 Fetað í fótspor pabba Eva með föður sínum, Jörgen Albrechtsen á læknastofu hans í Domus Medica. Fetað í fótspor foreldranna Hvað ætlarðu að verða? eru börn stundum spurð. Strák- ar svara þá gjarnan með hetjustarfi og stelpur öllu kvenlegri starfa, en þegar aldur hækkar kjósa fleiri starfsvettvang pabba eða mömmu.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.