Fréttablaðið - 13.03.2010, Side 37
LAUGARDAGUR 13. MARS 2010 3
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Tónlistarskólar á höfuðborgarsvæðinu halda saman
tónleika í sal FÍH Rauðagerði 27, 108 Reykjavík.
Kynnir á tónleikunum er Guðrún Gunnarsdóttir, söngkona.
12:30 Tónleikar I
14:00 Tónleikar II
15:30 Tónleikar III
16:45 Lokaathöfn - afhending viðurkenninga
Laugardaginn 13. mars halda tónlistarskólar um allt land
svæðisbundna tónleika á fjórum stöðum
ALLIR VELKOMNIR - AÐGANGUR ÓKEYPIS
NÓTAN byggir á því að þátttakendur séu frá öllu
landinu, á öllum aldri og að efnisskráin endurspegli
ólík viðfangsefni á öllum stigum tónlistarnáms.
Lokatónleikar uppskeruhátíðar tónlistarskóla fara fram í
Langholtskirkju laugardaginn 27. mars þar sem flutt verða
valin tónlistaratriði af svæðisbundnu tónleikum hátíðarinnar.
uppskeruhátíð tónlistarskóla
NORÐUR- OG AUSTURLAND
Tónlistarskólar á Norður- og Austurlandi halda
saman tónleika í Ketilhúsinu á Akureyri. Kynnir á
tónleikunum er Gunnar Gíslason, fræðslustjóri á Akureyri.
14:00 Fyrri hluti tónleika
15:00 Hlé (kaffisala)
15:30 Seinni hluti tónleika
16:30 Stutt hlé
17:00 Lokaathöfn - afhending viðurkenninga
SUÐURLAND OG SUÐURNES
Tónlistarskólar á Suðurlandi og Suðurnesjum halda
saman tónleika í Ráðhúsinu í Þorlákshöfn.
Kynnir á tónleikunum er Barbara Guðnadóttir,
menningarfulltrúi í Ölfusi.
13:00 Fyrri hluti tónleika
13:50 Hlé (kaffisala í ráðhúsinu)
14:20 Seinni hluti tónleika
15:10 Stutt hlé
15:30 Lokaathöfn - afhending viðurkenninga
VESTURLAND OG VESTFIRÐIR
Tónlistarskólar á Vesturlandi og Vestfjörðum halda
saman tónleika í Hólmavíkurkirkju, Hólmavík.
Kynnir á tónleikunum er Sigurður Jónsson (Diddi fiðla).
14:00 Fyrri hluti tónleika
14:50 Hlé (kaffisala)
15:20 Seinni hluti tónleika
16:10 Stutt hlé
16:30 Lokaathöfn - afhending viðurkenninga
Félag tónlistarskólakennara - Félag íslenskra hljómlistarmanna - Samtök tónlistarskólastjóra
NÓTAN
Örvar Þóreyj-
arson Smára-
son og Gunnar
Örn Tynes,
fyrir tónverkin
á plötunni Sing
along to songs
you don’t know
með múm. Grípandi, tilrauna-
kennd, framsækin og full af
lífsgleði.
Daníel Bjarnason, fyrir tónverk-
in á plötunni Processions. Tónlist
Daníels er kraftmikil, dansar á ótal
landamærum og er afar persónu-
leg.
Einar Tönsberg, fyrir tónverkin á
plötunum Antidote með Eberg og
Don’t be a stranger með Feldberg.
Einar kann betur en flestir þá list
að setja saman popplög sem
virka. Hann er mjög melódískur,
en líka frjór og leitandi þegar það
kemur að hljómi og útsetningum.
Hafdís Bjarnadóttir, fyrir tón-
verkin á plötunni Jæja. Þó að tón-
smíðar Hafdísar á Jæja fari út um
víðan völl og greina megi í þeim
áhrif jafnt frá djassi, þjóðlegri
tónlist og poppi þá eiga þær það
sameiginlegt að vera góð blanda
af smekkvísi og tilraunamennsku.
Hildur Guðnadóttir, fyrir tón-
verkin á plötunni Without sinking.
Djörf, heildstæð og afar persónu-
leg plata.
Högni Egilsson og Hjaltalín
með aðstoð Róberts Reynissonar
og Örvars Þóreyjarsonar Smára-
sonar, fyrir tónverkin á plötunni
Terminal með Hjaltalín. Fjölbreytt
úrvinnsla á hinu hefðbundna í
bland við kraftmikla nýsköpun.
Höfundur ársins
● Umsagnir dómnefndar
Ágúst Ólafsson, fyrir frábæra
frammistöðu á óperusviði og á
ýmsum tónleikum. Ágúst býr yfir
mikilli dýpt og breidd sem túlkandi.
Haukur Heiðar Hauksson, fyrir til-
finningaríkan og vel útfærðan söng.
Haukur Heiðar syngur áreynslulaust
og lyftir tónlistinni með góðri túlkun
sinni.
Jóhann G. Jóhannsson, fyrir
magnaða endurkomu. Jóhann G. var
forsprakki Óðmanna og stóð upp úr
sem einn besti poppsöngvari lands-
ins. Þrátt fyrir langt hlé sýnir Jóhann
G. að hann er enn í fremstu röð.
Jóhanna Guðrún Jónsdóttir, fyrir
glæsilega frammistöðu í Eurovision.
Jóhanna Guðrún er búin
að vera góð lengi og
sýndi það þegar hún
fékk stóra tækifær-
ið að hún er fyrsta
flokks.
Sigríður Thorl-
acius, fyrir
söng sinn með
Hjaltalín og á plötunni Á ljúflingshól
með Heiðurspiltum. Sigríður hefur
fallega rödd og skýra og áreynslu-
lausa framsetningu.
Sigurlaug Gísladóttir (Mr. Silla),
fyrir söng sinn með hljómsveitinni
Múm. Afar persónuleg og spennandi
söngkona sem er sífellt að bæta sig.
Þóra Einarsdóttir, fyrir hlutverk
sín í Íslensku óperunni og í titilhlut-
verkinu í óratoríunni Cecilia. Þóra
Einarsdóttir er söngkona á heims-
mælikvarða.
Rödd ársins
● Umsagnir dómnefndar
● TÓNLISTARFLYTJANDI ÁRSINS
Davíð Þór Jónsson, fyrir fjölþreifni til hljóðfæra, fjölhæfni í
stíltegundum tónlistarinnar og eiginleikann að virðast geta
komið fram á mörgum stöðum í einu.
Ghostigital, fyrir tónleika á Iceland Airwaves.
Hjaltalín, fyrir tónleika á Listahátíð í Reykjavík og í Fríkirkj-
unni á Iceland Airwaves.
Retro Belfast (Retro Stefson og FM Belfast), fyrir frumlega
samræmingu og samruna á tónleikum.
Sinfóníuhljómsveit Íslands, fyrir eftirminnilega tónleika
með Gennady Rozhdestvensky á Listahátíð og Daníel Bjarna-
syni og Víkingi Heiðari á Myrkum músíkdögum.
Vikingur Heiðar Ólafsson, fyrir magnaðan píanóleik á tónleikum sínum á árinu, bæði einn síns liðs og með
Sinfóníuhljómsveit Íslands.
● MENNINGIN SKARAR
FRAM ÚR Hljómgrunnur
hvetur alla til að kynna sér
skýrslu Félagsvísindastofnunar
um menningarneyslu Íslend-
inga. Þar kemur meðal annars
fram að fleiri sækja menning-
arviðburði en íþróttaviðburði
og að 58,6 prósent þjóðar-
innar sóttu tónleika á síðasta
ári. Skýrsluna er að finna á vef
menntamálaráðuneytisins.