Fréttablaðið - 13.03.2010, Side 41
LAUGARDAGUR 13. mars 2010 3
MÖGULEIKHÚSIÐ sýnir barnaleikritið Langafi prakkari,
sem byggt er á sögum Sigrúnar Eldjárn, í menningarmiðstöð-
inni Gerðubergi í dag klukkan 14. Í aðalhlutverkum eru Pétur
Eggerz og Aino Feyja Järvelä.
„Það er ofboðslega gleðilegt að
sjá þessa persónu öðlast nýtt líf
og hverfa úr minni umsjá, ef svo
mætti segja. Fíasól er farin í sitt
eigið ferðalag,“ segir Kristín
Helga Gunnarsdóttir, höfundur
bókanna vinsælu og nýrrar leik-
gerðar um hina glaðværu Fíusól,
sem frumsýnd er í dag í Kúlunni,
barnaleikhúsi Þjóðleikhússins.
Kristín Helga vann leikgerðina
að verkinu ásamt Vigdísi Jakobs-
dóttur, sem einnig er leikstjóri
sýningarinnar. Þær hafa unnið
að sýningunni frá því í haust.
„Ég er að taka þátt í leikhúsi í
fyrsta sinn og það þýðir heilmik-
inn aukahjartslátt hjá mér,“ segir
Kristín Helga og hlær. „En ég
er svo heppin að hafa fengið að
vinna með svona miklu atvinnu-
fólki sem leiðir mig áfram. Starfið
sem fram fer í leikhúsinu er ævin-
týralega skemmtilegt og frábært
að kynnast því.“
Bækurnar um Fíusól eru orðnar
fjórar talsins og hafa notið mikilla
vinsælda. Í leikritinu fá áhorfend-
ur að kynnast fjölskyldu Fíusólar,
bláum skrímslum í gluggakistu,
draugum undir rúmi og síðast
en ekki síst Ingólfi Gauki, besta
vini Fíusólar, sem leikinn er af
Sindra Birgissyni. Kristín Helga
segir Ingólf Gauk vera sterkan
málsvara ungra drengja í sýn-
ingunni. „Upphaflega settist ég
niður og skrifaði bækurnar ekki
síður fyrir stráka en stelpur, í og
með til að sýna hvað stelpur eru
skemmtilegar og hversu gaman
við getum haft hvert af öðru hvort
sem við erum strákar eða stelp-
ur,“ segir Kristín. Lára Sveins-
dóttir fer með hlutverk Fíusólar í
sýningunni og gerir það afbragðs-
vel að sögn Kristínar. „Lára er hin
eina og sanna Fíasól, alveg eins og
persónan var í höfðinu á mér. Um
daginn komu nokkrar litlar mann-
eskjur á æfingu og fengu að hitta
Láru í gervi Fíusólar og sögðu að
hún væri alveg eins og í bókunum.
Þá er tilganginum náð.“
Það er enginn annar en Ingó í
Veðurguðunum sem semur lögin
í sýningunni. Kristín Helga segir
hann vera sannkallað náttúru tal-
ent. „Það flæða upp úr honum
grípandi smellir og allir eru þeir
þannig að mann langar til að dansa
með. Það er voðalega mikið Ingó,“
segir Kristín. kjartan@frettabladid.is
Fíasól fer í eigið ferðalag
Kúlan, barnaleikhús Þjóðleikhússins, frumsýnir í dag nýtt leikrit eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur um
hinn átta ára ærslabelg Fíusól. Höfundurinn segir leikritið ekki síður höfða til drengja en stúlkna.
Kristín Helga Gunnarsdóttir, Lára Sveinsdóttir og Vigdís Jakobsdóttir eru meðal þeirra sem koma að leiksýningunni um Fíusól sem
frumsýnd er í Kúlunni í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Á Austur-Indíafjelaginu geturðu nú kitlað bragðlaukana
með veislu í tilefni Holi-hátíðarinnar á Indlandi.
Risarækjur í forrétt, í aðalrétt eru kjúklingalundir, lambafillet
og grænmetisréttur. Með þessu er síðan úrval Naan-brauða,
Raitha, hrísgrjón og að síðustu ljúffengur eftirréttur.
Þessi ríkulegi veislukostur býðst nú í mars á
aðeins 4.990 kr. sun-fim og 5.990 kr. fös og lau.
Á föstudags- og laugardagskvöldum svífur
dansfuglinn Mínerva inn í veitingasal okkar
með sínum yndisþokka og dansi.
Borðapantanir í síma 552 1630.
Hverfisgata 56, 101 Reykjavík
Sími: 552 1630
austurindia@austurindia.is
Opið: sun.-fim. 18:00 - 22:00
fös. og lau. 18:00 - 23:00 www.austurindia.is
HOLI
MATSEÐILL
Austur-Indíafjelagsins
Litríkur og dásamlegur
4.990 kr. sun-fim
5.990 kr. fös-lau
HOLI-hátíð
gleði, dans
og litríkur matur
RÝMINGARSALA
Skipholti 29b • S. 551 0770
Jóna María Hafsteinsdóttir
jmh@365.is
sími 512 5473
Henný Árnadóttir
henny@365.is
sími 512 5427
Þórdís Hermannsdóttir
thordish@365.is
sími 512 5447
Þriðjudaga