Fréttablaðið - 13.03.2010, Page 61

Fréttablaðið - 13.03.2010, Page 61
LAUGARDAGUR 13. MARS 2010 7 ADHD ADHD. Útgefandi ADHD. Lág- stemmd og spennuþrungin í senn. Ákaflega vel spilandi kvartett sem galdrar fram stemningar í hróplegu ósamræmi við nafn hljómsveitar- innar. Jæja Hafdís Bjarndóttir. Útgefandi: Haf- dís Bjarnadóttir. Hafdís hikar ekki við að leika sér á landamærum sam- innar og spunninnar tónlistar. Ný- stárlegar hljóðfærasamsetningar og spennandi hljóðheimur. Mæri Árni Heiðar Karlsson. Útgefandi: Dimma. Melódískur jazz, framandi og kunnuglegur í senn. Píanótríó- ið er einn af hornsteinum jazzins og Árni Heiðar tekst á við þetta krefjandi form af næmni og smekkvísi. Spirit of Iceland Stórsveit Reykjavik- ur ásamt Bob Mintzer. Útgefandi: Stórsveit Reykjavíkur. Stórsveit- in festir sig í sessi sem ein mikilvægasta hljómsveit landsins. Með aðkomu Mintzers að íslenskum þjóðararfi sannast að glöggt er gests augað. Framúrskarandi flutningur og sérlega áhugavert hvernig þjóðlegt efni getur tekið alþjóðlegum stakkaskiptum. Jazzplata ársins ● Umsagnir dómnefndar ● LAG ÁRSINS Crazy like a bee Lag og texti: Egill Sæbjörnsson, flytjandi: Egill Sæbjörnsson. Digging up a tree Lag og texti: Helgi Hrafn Jónsson, flytjandi: Helgi Hrafn Jónsson. Dreamin‘ Lag og texti: Rósa Birgitta Ísfeld og Einar Tönsberg, flytjendur: Feldberg. Suitcase man Lag: Hjaltalín, texti: Örvar Þóreyjarson Smárason, flytjendur: Hjaltalín. This heart Lag og texti: Bloodgroup, flytjandi: Bloodgroup. Taktu þessa trommu Lag og texti: Þorsteinn Einarsson, flytjendur: Hjálmar. ● UMSLAG ÁRSINS ADHD - ADHD Ísak Winther hannaði. Stop! Hand Grenade in the Name of Crib Death ‘nderstand - Sudden Weather Change Oddur Guðmundsson, Logi Höskuldsson, Benja- min Mark Stacey, Klængur Gunnarsson, Bergur Andersen, Dagur Sævarsson og Hörður Sveinsson hönnuðu. IV - Hjálmar Davíð Örn Halldórsson hannaði. Einn heima með Prins Póló Svavar Pétur Eysteinsson (Prins Póló) hannaði. Swordplay and guitarslay - Retrön Arnar Ingi Viðarsson, Kári Halldórs- son og Kolbeinn Hugi Höskuldsson hönnuðu. Riceboy Sleeps - Jónsi og Alex Jón Þór Birgisson og Alex Somers hönnuðu. Tónverk ársins ● Umsagnir dómnefndar Bow to string Eftir Daníel Bjarnason. Verk Daníels er geysifallegt og um leið nútímalegt og persónulegt. Verk- ið verður án efa einn af hornstein- um verkasafns Daníels og er um leið þýðingarmikil viðbót í safn ís- lenskrar sellótónlistar. Verkið er rómantík á nútímavísu. Bæn Eftir Gunnar Þórð- arson. Í verkinu sýnir Gunnar Þórðar- son sannarlega hvers af honum má vænta á sviði klassískrar tón- listar. Bæn er íhugult verk, melódískt og ljóðrænt. Cecilia Eftir Áskel Másson. Óratoría Áskels um heilaga Sesselju, vernd- ardýrling tónlistarinnar er áhrifa- mikið verk markað ljóðrænni lita- dýrð og dulrænni dýpt. Í verkinu skapar Áskell heillandi hljóðheim og þaulhugsuð form – nútíma- legan stíl, þótt efniviðurinn sé byggður á fornum minnum. Processions Eftir Daníel Bjarnason. Glæsi- legur píanókonsert þar sem Daníel teflir fram andstæðum blæbrigðum þess næma og kyrr- láta gegn krafti og ofsa og hríf- andi blæbrigðum í samspili ein- leikara og hljómsveitar. Á hátíðartónleikunum verður Sinfónía nr. 2 eftir Gustav Mahler, einnig kölluð „Upprisusinfónían“, fl utt af rúmlega tvö hundruð fl ytjendum, þar á meðal tveimur heimsfrægum söngkonum. Þá verður fl utt stórglæsilegt nýtt verk eftir Hafl iða Hallgrímsson. Tryggðu þér miða á þessa einstöku tónleika á www.sinfonia.is eða í síma 545 2500. „Sinfónía þarf að vera eins og heimurinn. Hún þarf að innihalda allt.“ Gustav Mahler

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.