Fréttablaðið - 13.03.2010, Qupperneq 61
LAUGARDAGUR 13. MARS 2010 7
ADHD
ADHD. Útgefandi ADHD. Lág-
stemmd og spennuþrungin í senn.
Ákaflega vel spilandi kvartett sem
galdrar fram stemningar í hróplegu
ósamræmi við nafn hljómsveitar-
innar.
Jæja
Hafdís Bjarndóttir. Útgefandi: Haf-
dís Bjarnadóttir. Hafdís hikar ekki
við að leika sér á landamærum sam-
innar og spunninnar tónlistar. Ný-
stárlegar hljóðfærasamsetningar og
spennandi hljóðheimur.
Mæri
Árni Heiðar Karlsson. Útgefandi:
Dimma. Melódískur jazz, framandi
og kunnuglegur í senn. Píanótríó-
ið er einn af hornsteinum jazzins og
Árni Heiðar tekst á við þetta krefjandi
form af næmni og smekkvísi.
Spirit of Iceland
Stórsveit Reykjavik-
ur ásamt Bob Mintzer.
Útgefandi: Stórsveit
Reykjavíkur. Stórsveit-
in festir sig í sessi sem ein
mikilvægasta hljómsveit
landsins. Með aðkomu
Mintzers að íslenskum
þjóðararfi sannast að glöggt
er gests augað. Framúrskarandi
flutningur og sérlega áhugavert
hvernig þjóðlegt efni getur tekið
alþjóðlegum stakkaskiptum.
Jazzplata ársins
● Umsagnir dómnefndar
● LAG ÁRSINS
Crazy like a bee
Lag og texti: Egill Sæbjörnsson, flytjandi: Egill Sæbjörnsson.
Digging up a tree
Lag og texti: Helgi Hrafn Jónsson, flytjandi: Helgi Hrafn Jónsson.
Dreamin‘
Lag og texti: Rósa Birgitta Ísfeld og Einar Tönsberg, flytjendur: Feldberg.
Suitcase man
Lag: Hjaltalín, texti: Örvar Þóreyjarson Smárason, flytjendur: Hjaltalín.
This heart
Lag og texti: Bloodgroup, flytjandi: Bloodgroup.
Taktu þessa trommu
Lag og texti: Þorsteinn Einarsson, flytjendur: Hjálmar.
● UMSLAG ÁRSINS
ADHD - ADHD Ísak Winther hannaði.
Stop! Hand Grenade in the Name of Crib
Death ‘nderstand - Sudden Weather Change
Oddur Guðmundsson, Logi Höskuldsson, Benja-
min Mark Stacey, Klængur Gunnarsson, Bergur
Andersen, Dagur Sævarsson og Hörður Sveinsson hönnuðu.
IV - Hjálmar Davíð Örn Halldórsson hannaði.
Einn heima með Prins Póló Svavar Pétur Eysteinsson (Prins Póló)
hannaði.
Swordplay and guitarslay - Retrön Arnar Ingi Viðarsson, Kári Halldórs-
son og Kolbeinn Hugi Höskuldsson hönnuðu.
Riceboy Sleeps - Jónsi og Alex Jón Þór Birgisson og Alex Somers
hönnuðu.
Tónverk ársins
● Umsagnir dómnefndar
Bow to string
Eftir Daníel Bjarnason. Verk
Daníels er geysifallegt og um leið
nútímalegt og persónulegt. Verk-
ið verður án efa einn af hornstein-
um verkasafns Daníels og er um
leið þýðingarmikil viðbót í safn ís-
lenskrar sellótónlistar. Verkið er
rómantík á nútímavísu.
Bæn
Eftir Gunnar Þórð-
arson. Í verkinu
sýnir Gunnar Þórðar-
son sannarlega hvers
af honum má vænta á
sviði klassískrar tón-
listar. Bæn er íhugult
verk, melódískt og
ljóðrænt.
Cecilia
Eftir Áskel Másson. Óratoría
Áskels um heilaga Sesselju, vernd-
ardýrling tónlistarinnar er áhrifa-
mikið verk markað ljóðrænni lita-
dýrð og dulrænni dýpt. Í verkinu
skapar Áskell heillandi hljóðheim
og þaulhugsuð form – nútíma-
legan stíl, þótt efniviðurinn sé
byggður á fornum minnum.
Processions
Eftir Daníel Bjarnason. Glæsi-
legur píanókonsert þar sem
Daníel teflir fram andstæðum
blæbrigðum þess næma og kyrr-
láta gegn krafti og ofsa og hríf-
andi blæbrigðum í samspili ein-
leikara og hljómsveitar.
Á hátíðartónleikunum verður Sinfónía nr. 2 eftir
Gustav Mahler, einnig kölluð „Upprisusinfónían“,
fl utt af rúmlega tvö hundruð fl ytjendum, þar á meðal
tveimur heimsfrægum söngkonum. Þá verður fl utt
stórglæsilegt nýtt verk eftir Hafl iða Hallgrímsson.
Tryggðu þér miða á þessa einstöku tónleika á
www.sinfonia.is eða í síma 545 2500.
„Sinfónía þarf að vera eins
og heimurinn. Hún þarf að
innihalda allt.“
Gustav Mahler