Fréttablaðið - 13.03.2010, Blaðsíða 62
13. MARS 2010 LAUGARDAGUR8
Þegar ég var lítil hékk ég alltaf
með pabba og mömmu og hlustaði
þar af leiðandi á tónlistina sem þau
voru að hlusta á: Bítlamúsík inn-
lenda og erlenda.
Síðar tóku við unglingsárin
með sínum yndislegu uppgötvun-
um á spennandi tónlist og löngum
göngutúrum um allt með vasa-
diskó. Þá var ég að hlusta á tón-
list á mínum forsendum og upp-
götvaði Boy George, David Bowie
og allt þar á milli. Þarna hékk ég
með félögunum og hlustaði á kass-
ettur og vínil.
Svo varð ég stærri og hélt auð-
vitað áfram að hanga með vinum
mínum og hlusta á tónlist. Og þótt
líf mitt og heimurinn allur hafi
umturnast síðan þá, hefur það þó
aldrei breytt því hversu gaman
mér þykir að hanga með einhverj-
um og hlusta á tónlist.
Það má segja að tónlistaráhugi
minn hafi byrjað með því að hlusta
á Bítlana og vilja syngja raddan-
irnar í lögum þeirra. Þaðan þró-
ast þetta út í að vilja eiga plaköt
og barmmerki með uppáhalds-
pönkinu og nýbylgjunni. Síðan
kom tímabilið þegar ég vildi læra
gítarinn í góðu lögunum. Ég æfði
mig og æfði þangað til ég náði að
spila lagið.
Núna syng ég sjaldan raddanir,
á afskaplega fá plaköt og þarf alls
ekki að kunna öll lög sem ég fíla á
gítar. En að öllum líkindum hlusta
ég alveg jafnmikið á tónlist í dag,
39 ára, og ég gerði þegar ég var 7
ára, 15 ára eða 28 ára.
Það er bara eitthvað svo æðis-
legt að sitja og aðhafast ekkert sér-
stakt annað en að hlusta á tónlist,
tala kannski smá um hana, pæla í
áhrifavöldunum, velta fyrir sér (ef
tónlistin er gömul) hvað annað kom
út sama ár, fara kannski á Wikip-
ediu og fletta upp hljóðfæraleik-
urum og sjá hvaða öðrum sveitum
þeir voru í. Hlusta kannski í fram-
haldinu á eitthvað með viðkom-
andi. Fara á Youtube og skoða læv-
upptökur með bandinu. Hækka að-
eins. Er þetta ekki alveg örugglega
það sem flestir gera á kvöldin?
Leggjum
eyrun við
● Heiða Eiríksdóttir
tónlistarkona.
BAKNAG
Pascal Pinon Þrátt fyrir að hæverska og
jafnvel feimni hafi verið áberandi í fari hljóm-
sveitarinnar Pascal Pinon hefur hún skyggt
á marga háværari tónlistarmenn. Tónlistin
er lágstemmd og yfirlætislaus, dálítið
,,skólastofuleg”, en skemmtilega útsett
og krydduð launfyndnum, skemmtilegum
og oftast íslenskum textum.
Sudden Weather Change Kraftmikil
gítarsveit undir áhrifum frá amerísku jað-
arrokki. Fyrsta platan þeirra er ekkert
slor en jafnast þó ekki á við
kraftinn og spilagleðina
sem einkennir þá fimm-
menninga á tónleikum.
Sykur sýndi það bæði
á sinni fyrstu plötu,
Frábært eða frábært og á
tónleikum að hún er ein
af skemmtilegri popp-
sveitum landsins. Flottir
taktar, frísklegur hljómur
og lífleg sviðsframkoma eru
aðalsmerki Sykurs.
Sæunn Þorsteinsdóttir sellóleikari hefur sýnt
það og sannað á þeim tveimur árum sem liðin eru
frá því að hún lauk námi við Juilliard-
tónlistarskólann í New York að hún er
glæsilegur flytjandi. Sæunn hefur vald
á víðfeðmri efnisskrá og býr yfir næmi
og skilningi á viðfangsefnum sínum.
Þorvaldur Þór Þorvaldsson
trommuleikari snýr aftur úr fram-
haldsnámi í músík og stimplar sig inn
með öflugu tónleikahaldi og plötu með
eigin tónlist.
Bjartasta vonin
● Umsagnir dómnefndar
Hljómsveitin Sykur
Sudden Weather
Change
YAMAHA DG
X 630
179.990,- k
r.
Síðumúla 20 Reykjavík S.: 591 5340 www.hljodfaerahusid.is Sunnuhlíð 12 Akureyri S.: 462 1415 www.tonabudin.is
Fender rafmagnsgítarpakki
49.990,- kr.
8.350,- kr. á mánuði vaxtalaust í 6 mán.
YAMAHA PSRE32345.900,- kr.
7.650,- kr. á mánuði vaxtalaust í 6 mán.
Skólafiðlurverð frá 19.900,- kr.
Upptökubú
naður, hljó
ðnemar og
heyrnatól
í miklu úrv
ali
Fender k
assagíta
rpakki
28.990,-
kr.
7.250,-
kr. á má
nuði vax
talaust í
4 mán.
Úrval af gítar- og bassamögnurum
h
ö
n
n
u
n
:
Þ
ó
rh
a
ll
u
r
-
w
w
w
.e
ff
e
k
t.
is
YAMAHA blásturshljóðfærií miklu úrvali
Vaxtalausar greiðslur í boði!
Premier
trommu
sett
59.900,-
kr.
9.980,- k
r. á mán
uði vaxt
alaust í
6 mán.
YAMAHA DTXp
lorer
rafnagnstrom
musett
165.000,- kr.