Fréttablaðið - 13.03.2010, Page 63
fjölskyldan 5
LÆKNIR EÐA LISTASKÁLD? Börn leika sér gjarnan í hlut-
verkaleikjum, eru bardagahetjur, læknar, smiðir eða prinsessur
eftir áhuga og umhverfi. Búningar eru skemmtileg leikföng fyrir
stóra og litla krakka, hvort sem er heimatilbúnir eða aðkeyptir.
eru í vinnunni og við viljum ekki
of mikla rútínu. Börn eiga að fá að
njóta bernsku sinnar sem lengst
og nægur tími seinna til að lifa
og hrærast í fastmótaðri dagskrá
skólastofnana.“
Kossar að launum
„Sem hnáta læddist ég stundum
í kústinn á verkstæði pabba og
fékk smáaura fyrir að sópa, en sá
ekki möguleikana í starfinu fyrr
en ég fór að snuddast þar og fikta
á menntaskólaárunum, þegar ég
var enn óráðin í hvað ég ætlaði að
verða,“ segir húsgagnabólstrarinn
Berglind Hafsteinsdóttir sem fet-
aði í fótspor föður síns, Hafsteins
Sigurbjarnasonar í H.S. Bólstrun,
og rekur nú Bólsturlist á Selfossi.
„Ég fór á samning hjá formanni
Meistarafélags bólstrara, sem þá
var pabbi, og ekki skemmdi fyrir
hversu ánægður hann var með þá
ákvörðun, blessaður karlinn. Haf-
þór bróðir minn í Formbólstrun
lærði einnig þessa iðn, svo þetta
er orðinn viðamikill fjölskyldu-
bisness, þótt við rekum hvert sína
bólsturgerðina.“
Það var óhægt um vik í Iðnskól-
anum í Reykjavík þegar Berglind
ákvað að hefja nám í húsgagna-
bólstrun því ekki hafði útskrifast
nemi úr því fagi við skólann í yfir
tvo áratugi.
„Það þurfti því að búa til námið
upp á nýtt. Ekki fannst lengur
kennari til að kenna fagteikningu
í bólstrun og hélt ég því utan til
Danmerkur til að ljúka sveinsprófi
frá Skive Tekniske Skole, sem er
sá virtasti á Norðurlöndum,“ segir
Berglind, sem líkt og faðir henn-
ar og bróðir er jafnvíg á allar teg-
undir bólstrunar, en lagði mesta
áherslu á antíkbólstrun, meðan
þeir feðgar eru meira í almennri
bólstrun og bílsætabólstrun.
„Bólstrun er allt eins kvenna-
starf en við erum þó bara þrjár af
mörgum sem hafa útskrifast sem
störfum við þetta í dag. Starfinu
fylgir mikið álag á hendur því í
antíkbólstrun er allt handsaumað
og handbundið eftir kúnstarinn-
ar reglum,“ segir Berglind sem
lærði antíkbólstrun af meistar-
anum Halldóri Jónssyni, en faðir
hennar sá til þess að dóttirin lærði
af sem flestum meisturum svo hún
fengi sem mest út úr náminu.
„Það leynir sér ekki hvað pabbi
er stoltur. Hann á enn erfitt með að
sleppa takinu af mér, en ég er dug-
leg að skjótast í bæinn og starfa
með honum þegar stærri verkefni
kalla. Eftir hrunið hættu Íslend-
ingar að henda húsgögnum, en láta
í staðinn gera við þau eða gera þau
upp, sem er alltaf ódýrari og betri
kostur.“
Berglind segir töfra bólstrunar
felast í þakklæti húsgagnaeigenda
sem trúi vart eigin augum þegar
þeir sjá illa farin húsgögn sín öðl-
ast nýtt líf í höndum bólstrarans.
„Handverkið er líka dásamlegt
að vinna, en ómæld ánægja við-
skiptavinarins setur punkt yfir
i-ið og þá fæ ég stundum kossa
að launum líka,“ segir Berglind
hlæjandi. „Ég á heima í bólstr-
un og er ánægð með að hafa farið
sömu leið og pabbi. Við erum sam-
rýnd fjölskylda. Barnungur sonur
minn fæddist á páskadag, en pabba
þótti mun merkilegra að fæðingu
hans skyldi bera upp á afmælisdag
Meistarafélags bólstrara. Þar með
þótti honum framtíð hans ráðin,
en við sjáum hvað framtíðin ber í
skauti sér.“
Á facebook.com/bolsturlist má
sjá forvitnilegt vinnsluferli og
handverk Berglindar. -þlg
nanna lýsir vel
fst svona.
ki svarað því
ginu.