Fréttablaðið - 13.03.2010, Page 72
36 13. mars 2010 LAUGARDAGUR
timamot@frettabladid.is
NÍNA TRYGGVADÓTTIR LISTMÁLARI (1913-
1968) VAR FÆDD ÞENNAN DAG.
„Það sem gildir er að þora, fara allar
leiðir, líka ófærur.“
Nína var myndlistarkona og ljóðskáld og
málaði aðallega abstraktverk. Skínarnafn
hennar var Jónína en hún bjó erlendis
hluta ævi sinnar og tók upp nafnið Nína.
Hinn 28 ára gamli Hreinn
Halldórsson frá Hróf-
bergi í Strandasýslu varð
Evrópumeistari í kúluvarpi
innanhúss þennan dag
árið 1977, í San Sebastian
á Spáni. Hann kastaði kúl-
unni 20,59 metra. Þetta var
eitt mesta íþróttafrek sem
Íslendingur hafði þá unnið
um langt skeið enda gekk
hann undir heitinu Stranda-
maðurinn sterki.
Hreinn varð þriðji Íslend-
ingurinn sem hlaut Evrópu-
meistaratitil í frjálsum
íþróttum.
ÞETTA GERÐIST: 13. MARS 1977
Hreinn Evrópumeistari
Tilkomumiklar óperuaríur hljóma
nú um helgina í Söngskóla Sigurðar
Demetz á Grandagarði. Þar eru ten-
órinn góðkunni Kristján Jóhannsson
og leikstjórinn Sveinn Einarsson með
námskeið í söng, raddtækni, sviðsfram-
komu og túlkun. Í framhaldi af því er
Kristján með söngferðir á prjónunum.
Sú fyrsta er á Suðurnesin 27. mars þar
sem söngtónleikar verða í nýju Hljóma-
höllinni.
„Ég er sú manngerð að ég get ekki
bara setið án þess að hafa mikið fyrir
stafni, enda búinn að vera í fullri ak-
sjón í þrjátíu og fimm ár,“ segir Kristj-
án. „Mér er ekki nóg að kenna unga
fólkinu söng heldur finnst mér líka
skylda mín að leyfa þjóðinni að njóta
söngsins. Það er hvatinn að þessum
tónleikaferðum. Ég er með nokkra
af fínustu og vinsælustu söngvurum
landsins með mér, svo sem vinkonu
mína Diddú, fyrrverandi nemanda
minn, Gissur Pál Gissurarson, Akur-
eyringinn Huldu Björk Garðarsdóttur,
Þóru Einarsdóttur og eiginmann henn-
ar, Björn Jónsson. Ég tel mig lukkunn-
ar pamfíl að vera í sambandi við allt
þetta fólk og fá notið krafta þess. Auk
þess ætla ég að kynna unga fólkið sem
ég er að kenna. Það er nú bara svoleið-
is í tilverunni að það getur liðið lang-
ur tími án þess að nokkur maður viti af
hæfileikafólki í söng og fái tækifæri til
að hlýða á það.“
Kristján kveðst vera með kippu af
efnilegum söngvurum tiltæka. Þeir
koma ekki allir fram á sömu tónleik-
unum heldur verða breytingar í lið-
inu frá einum stað til annars. Nokkur
leynd hvílir enn yfir sumum nöfnunum
en öðrum má ljóstra upp. „Hann syng-
ur örugglega með okkur hann Rúnar
Þór Guðmundsson sem er Keflvíkingur
því við byrjum í Reykjanesbæ 27. mars
klukkan 17. Þar brjótum við einhvers
konar blað í sögunni því við verðum
í nýju Hljómahöllinni,“ segir Kristj-
án og er greinilega spenntur. Nefnir
líka annan Keflvíking, Jóhann Smára
Sævarsson bassa. „Þeir tveir eru fast-
ir punktar. Svo eru aðrir yngri, þar á
meðal einn bassi, aðeins sautján ára
gamall. Hann nýtur þess að koma upp
á svið og minnir að því leyti svolítið
á mig. Það er nefnilega ekki nóg með
að hann hafi röddina heldur líka þessa
áráttu að vilja syngja fyrir fólk. Tveir
tenórar eiga líka eftir að ryðjast upp á
svið og síðan verður væntanlega ung
kona með okkur sem syngur eins og
engill. Ég á von á að hún komist fljót-
lega í fremstu raðir sópransöngkvenna
á Íslandi. En ég ætla að kynna allt
þetta fólk á staðnum og nú er ég eig-
inlega búinn að opinbera allt of mikið.
Get bara bætt því við að þarna er fólk
sem á erindi á svið. Það er ekki spurn-
ing.“
Eftir Hljómahallarsönginn ætlar
Kristján með sitt harðsnúna lið til
Akureyrar því laugardaginn fyrir
páska verða tónleikar í KA-heimil-
inu. „Ég hef sungið í íþróttahúsum á
Akureyri í þrjátíu ár en hlakka til að
opna tónleikasalinn í nýja menningar-
húsinu í ágúst. Það hús verður himna-
sending fyrir listabæ eins og Akureyri
er,“ segir hann.
Ísafjörður, Húsavík og jafnvel Egils-
staðir eru á skrá yfir væntanlega
söngstaði hjá Kristjáni og hópnum
hans. Auk þess er hann að skipuleggja
tvenna tónleika í Reykjavík í sumar og
þá í Háskólabíói. „Þetta er allt dálítið
ævintýri,“ segir hann brosandi. „Ég tel
mig vera með góða krafta og hlakka til
að upplifa viðtökur Íslendinga,“ segir
hann og tekur fram að miðar verði
aðeins seldir á vefnum www.midi.is.
gun@frettabladid.is
KRISTJÁN JÓHANNSSON: ER MEÐ NÁMSKEIÐ OG ÆTLAR MEÐ SÖNG UM LANDIÐ
Með góða krafta og hlakkar til
að upplifa viðtökur Íslendinga
Í SÖNGTÍMA Kristján tekur lagið með nemendunum Birgi Karli Óskarssyni og Aðalsteini Má
Ólafssyni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
Sigríður Hildur
Þórðardóttir
vélritunarkennari, áður til heimilis
Sporðagrunni 3, Reykjavík,
sem andaðist á Hjúkrunardeild Hrafnistu laugardaginn
6. mars, verður jarðsungin frá Áskirkju mánudaginn
15. mars kl. 15.
Guðlaug Ingunn Jóhannsdóttir, Mats Hjelte, Johan Petter,
Elin Ingunn, Emma Mathilda,
Jóhann G. Jóhannsson, Bryndís Pálsdóttir, Jóhann Páll,
Hildur Margrét, Ragnheiður Ingunn.
90 ára afmæli
Aðalbjörg
Guðmundsdóttir
kennari, frá Harðbak á Melrakkasléttu,
verður níræð mánudaginn 15. mars.
Á afmælisdaginn verður opið hús hjá
henni frá kl. 14.00 í Lindarseli 7,
Reykjavík. Aðalbjörg afþakkar blóm og
g jafi r en vonast til að sjá sem fl esta af
ætting jum og vinum í tilefni dagsins.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
Halldór Ólafsson
frá Hvallátrum við Látrabjarg,
til heimilis að Sæbólsbraut 28,
Kópavogi,
lést á Landspítalanum þriðjudaginn 9. mars. Útförin
fer fram frá Kópavogskirkju fimmtudaginn
18. mars kl. 13.00.
Anna María Halldórsdóttir
Ólafur Halldórsson Anna Sigríður Pálmadóttir
Logi Halldórsson Guðfinna Brynjólfsdóttir
Hartmann Páll Halldórsson
Ásdís Halldórsdóttir Magnús Þór Hrafnkelsson
Auður Halldórsdóttir Jens Letager
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartans þakkir fyrir samúð og hlýhug
í okkar garð vegna andláts föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
Sigurðar B. Sigurðssonar
Dvalarheimilinu Höfða Akranesi.
Einnig þökkum við margvíslega virðingu sýnda
minningu hans. Sérstakar þakkir færum við skátum
á Akranesi og starfsfólki Dvalarheimilisins Höfða á
Akranesi.
Svavar Sigurðsson
Bogi Sigurðsson
Enrique Llorens Izaguirre Auður Finnbogadóttir
Gunnar Sigurðsson Sigríður Guðmundsdóttir
Sigrún Sigurðdóttir Hörður Ó. Helgason
Sigurður Rúnar Sigurðsson Rósa Finnbogadóttir
Ómar Sigurðsson Una Magnúsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Fríða Hjaltested
Droplaugarstöðum, Snorrabraut 58,
áður Rauðagerði 8, Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Droplaugarstöðum miðviku-
daginn 10. mars. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju
föstudaginn 19. mars kl. 11.00.
Stefán Hjaltested Anna R. Möller
Sigríður Hjaltested Elmar Geirsson
Grétar Mar Hjaltested Sigrún Gróa Kærnested
Margrét H. Hjaltested Halldór Ó. Sigurðsson
Lárus Hjaltested Dóra Björk Scott
Davíð Hjaltested Sigrún Ingvarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og vinarhug við andlát og útför
Magneu Huldu
Magnúsdóttur
Wilhelmsen
frá Klængsseli í Gaulverjabæ,
Árskógum 8, Reykjavík.
Sérstakar þakkir færir fjölskyldan starfsfólki
Skógarbæjar, fyrir góða og kærleiksríka umönnun.
Alf Wilhelmsen
Bjarni F. Einarsson Elín Elísabet Halldórsdóttir
Halldór E. Faust Hrafnhildur Dia Jack
Ólöf Jónsdóttir
Olga Vatle, systkini og ömmubörn.
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar sendist á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
AFMÆLI
ADAM
CLAYTON,
bassaleik-
ari U2, er
fertugur.
EMILE
HIRSCH
leikari er 25
ára.