Fréttablaðið - 13.03.2010, Side 74

Fréttablaðið - 13.03.2010, Side 74
38 13. mars 2010 LAUGARDAGUR BAKÞANKAR Atla Fannars Bjarkasonar ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Af hverju geta karlmenn ekki horft í augun á mér þegar þeir tala við mig? Kannast við þetta! Ég er að fara. Puff! Er eitthvað að? Já. Þú ert aldrei heima lengur! Nei! Er það ekki frábært? Jæja, þetta vandamál sem þú nefndir? Hannes, kurteis börn tyggja alltaf með munninn lokaðan. Það er rétt. Ég bara vor- kenni þeim, en þú? Laust starf Mannleg fall- byssukúla Verður að vera áhugasöm um ferðalög Átakið karlmenn og krabbamein stendur nú yfir og hefur væntanlega ekki farið framhjá neinum. Landsfrægir grínistar hafa kerfisbundið hvatt okkur karlmenn til að þukla á pungunum okkar í forvarnaskyni og ekki að ástæðulausu; haldbær pungþekk- ing getur bjargað lífi okkar. PUNGAUMRÆÐA síðustu vikna varð til þess að ég fór að velta fyrir mér framtíð pungsins. Pungurinn hefur ávallt verið ljóti bróðirinn í kynfærafjölskyldu karlmanna − bróðirinn sem fær ekki að ferðast jafn víða og stóri bróðir og nýtur ekki nærri því jafn mikillar aðdáunar. Hann hangir þarna eins og einmana tepoki. EN TÍMARNIR breytast og fegurð- arskyn manna með. Forsíðustúlkurn- ar árið 1960 voru öðruvísi í laginu en þær sem við sjáum í dag. Samfélagið metur fegurð á allt annan hátt en áður, sem kristallast í fjölgun á alls konar fegrunar-aðgerðum ár eftir ár. Brjóst stækka og minnka ásamt því að lögun þeirra breytist, varir tútna út og húð verður sífellt sléttari. Fólk er alltaf finna nýjar og snarsturlaðar aðferðir til að bæta útlit sitt; rassgatið er ekki lengur óhult fyrir lýta- læknum með bleikingarefni og meira að segja píkan hefur látið undan þrýstingi samfélagsins. ÉG VELTI því fyrir mér hvenær samfélagið byrjar að krefjast þess að karlmenn láti fegra og jafnvel stækka á sér punginn. Hve- nær byrja karlmenn með tvær heilbrigðar kúlur í sekknum að panta tíma hjá lýtalækni og biðja um silíkon í punginn? EF ÞESSAR hugmyndir verða að veruleika má búast við að tískubransinn verði fljótur að taka við sér. Sérstakar buxur sem lyfta pungnum upp og láta hann líta út fyrir að vera stærri en hann er í raun og veru verða markaðssettar og karlmenn finna þörfina til að sýna smá pung þegar þeir fara út á meðal fólks. Push-up sundskýlan slær í gegn og Hollywood-stjörnur mæta á rauða dregil- inn í gegnsæjum buxum eða hreinlega með punginn hálfan úti. ÁÐUR en langt um líður heyrum við um öfgamennina úti í heimi sem kunna ekki að segja stopp. Baráttan um stærsta barm heims hefur verið hörð síðustu ár og það má búast við að baráttan um stærsta pung heims verði jafnvel harðari. Þrátt fyrir aug- ljóst álag á mjóbakið trilla öfgamennirnir silíkonfylltum pungunum fyrir framan sig í hjólbörum og gera hvað sem er fyrir fimm- tán yndislegar mínútur af athygli. Framtíð pungsins Ka t t a s ýn i ng Kyn j aka t t a Kettir velja Sýningin verður haldin 13. og 14. mars 2010 í Miðhrauni 2, Garðabæ Nánari uppl. á www.kynjakettir.is Ýmis tilboð á gæludýravörum Sýningin er opin frá kl.10 - 17.00 báða dagana Hringdu í síma ef blaðið berst ekki

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.