Fréttablaðið - 13.03.2010, Page 74
38 13. mars 2010 LAUGARDAGUR
BAKÞANKAR
Atla Fannars
Bjarkasonar
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Af hverju geta
karlmenn ekki
horft í augun á
mér þegar þeir
tala við mig?
Kannast við
þetta!
Ég er að
fara.
Puff!
Er eitthvað
að?
Já.
Þú ert
aldrei
heima
lengur!
Nei! Er
það ekki
frábært?
Jæja, þetta
vandamál sem
þú nefndir?
Hannes, kurteis börn
tyggja alltaf með
munninn lokaðan.
Það er
rétt.
Ég bara vor-
kenni þeim,
en þú?
Laust starf
Mannleg fall-
byssukúla
Verður að
vera
áhugasöm
um ferðalög
Átakið karlmenn og krabbamein stendur nú yfir og hefur væntanlega ekki farið
framhjá neinum. Landsfrægir grínistar
hafa kerfisbundið hvatt okkur karlmenn til
að þukla á pungunum okkar í forvarnaskyni
og ekki að ástæðulausu; haldbær pungþekk-
ing getur bjargað lífi okkar.
PUNGAUMRÆÐA síðustu vikna varð til
þess að ég fór að velta fyrir mér framtíð
pungsins. Pungurinn hefur ávallt verið ljóti
bróðirinn í kynfærafjölskyldu karlmanna
− bróðirinn sem fær ekki að ferðast jafn
víða og stóri bróðir og nýtur ekki nærri
því jafn mikillar aðdáunar. Hann hangir
þarna eins og einmana tepoki.
EN TÍMARNIR breytast og fegurð-
arskyn manna með. Forsíðustúlkurn-
ar árið 1960 voru öðruvísi í laginu en
þær sem við sjáum í dag. Samfélagið
metur fegurð á allt annan hátt en áður,
sem kristallast í fjölgun á alls konar
fegrunar-aðgerðum ár eftir ár. Brjóst
stækka og minnka ásamt því að
lögun þeirra breytist, varir tútna
út og húð verður sífellt sléttari.
Fólk er alltaf finna nýjar og
snarsturlaðar aðferðir til að
bæta útlit sitt; rassgatið er
ekki lengur óhult fyrir lýta-
læknum með bleikingarefni
og meira að segja píkan hefur látið undan
þrýstingi samfélagsins.
ÉG VELTI því fyrir mér hvenær samfélagið
byrjar að krefjast þess að karlmenn láti
fegra og jafnvel stækka á sér punginn. Hve-
nær byrja karlmenn með tvær heilbrigðar
kúlur í sekknum að panta tíma hjá lýtalækni
og biðja um silíkon í punginn?
EF ÞESSAR hugmyndir verða að veruleika
má búast við að tískubransinn verði fljótur
að taka við sér. Sérstakar buxur sem lyfta
pungnum upp og láta hann líta út fyrir að
vera stærri en hann er í raun og veru verða
markaðssettar og karlmenn finna þörfina til
að sýna smá pung þegar þeir fara út á meðal
fólks. Push-up sundskýlan slær í gegn og
Hollywood-stjörnur mæta á rauða dregil-
inn í gegnsæjum buxum eða hreinlega með
punginn hálfan úti.
ÁÐUR en langt um líður heyrum við um
öfgamennina úti í heimi sem kunna ekki
að segja stopp. Baráttan um stærsta barm
heims hefur verið hörð síðustu ár og það
má búast við að baráttan um stærsta pung
heims verði jafnvel harðari. Þrátt fyrir aug-
ljóst álag á mjóbakið trilla öfgamennirnir
silíkonfylltum pungunum fyrir framan sig í
hjólbörum og gera hvað sem er fyrir fimm-
tán yndislegar mínútur af athygli.
Framtíð pungsins
Ka t t a s ýn i ng
Kyn j aka t t a
Kettir velja Sýningin verður haldin 13. og 14.
mars 2010 í Miðhrauni 2, Garðabæ
Nánari uppl. á www.kynjakettir.is
Ýmis tilboð á gæludýravörum
Sýningin er opin frá kl.10 - 17.00 báða dagana
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki