Fréttablaðið - 13.03.2010, Qupperneq 78
42 13. mars 2010 LAUGARDAGUR
Ég kann víst að hjóla!“ æpir Lotta. „Þegar
enginn sér mig get ég
það sko alveg!“ Gallinn
er líka sá að hún á ekkert
hjól og mamma og pabbi
halda að hún geti látið
gamla þríhjólið duga í
heilt ár í viðbót. Þá grípur Lotta til sinna
ráða. Systkinin Lotta, Jónas og Mía
María komu fyrst fram í bókum Astridar
Lindgren um börnin í Skark-alagötu og
hafa heillað lesendur á öllum aldri ára-
tugum saman. Bókin er skreytt fjölda
litmynda eftir Ilon Wikland sem þekktur
er af skreytingum sínum við fjölda bóka
eftir Lindgren. Ásthildur Egilsson þýddi.
Á morgun kl. 17 verður
helsta súpergrúppa lands-
ins, Caput, að spila í Sölv-
hóli, sal Listaháskóla
Íslands við Sölvhólsgötu,
og verða sjö ópusar á efnis-
skránni. Tónleikarnir eru
samstarfsverkefni við tón-
listardeild Listaháskólans.
Meðal þeirra verka sem flutt
verða í gamla Landsmiðjuhús-
inu er Luminous Flux eftir hið
margverðlaunaða kóreska tón-
skáld Sungji Hong. Verk hennar
hafa verið flutt um allan heim.
Eftir japanska tónskáldið Malika
Kishino verður svo leikið verkið
Himmelsleiter, eða Himnastig-
inn. Hvorugt þessara verka hefur
áður heyrst hér á landi. Þá verð-
ur flutt slagverkssóló eftir gríska
tónskáldið Iannis Xenakis sem hér
er að góðu kunnugt.
Við þetta tækifæri verður einn-
ig frumflutt glænýtt einleiksverk
fyrir óbó eftir Þuríði Jónsdóttur,
sem nýlega var tilnefnd til Tón-
listarverðlauna Norðurlandaráðs,
sem og verkið Krónan eftir Haf-
dísi Bjarnadóttur, en það hefur
áður verið flutt erlendis. Síðast
en ekki síst leikur Caput-hópur-
inn ný verk eftir tvo nemendur
tónsmíðadeildar LHÍ, þá Þorbjörn
G. Kolbrúnarson og Junichi Mat-
sumoto.
Starfsárið hjá Caput-hópnum
er komið á fullt skrið. Það sem af
er ári hafa verið haldnir tvenn-
ir umfangsmiklir tónleikar, þeir
fyrstu á Myrkum músíkdögum
í lok janúar og um síðustu helgi
var frumflutningur á Hallgríms-
passíu Sigurðar Sævarssonar í
Njarðvíkurkirkju. Verður passí-
an endurflutt á Kirkjulistahátíð
í Hallgrímskirkju í byrjun apríl
svo þar gefst áhugasömum að
heyra hana.
Viku seinna, 21. mars, leikur
Caput á vegum Tóneyjar í Gerðu-
bergi, dagskrá byggða á lögum
eftir Guðna Franzson við sögu
Guðrúnar Helgadóttur, Ástar-
sögu úr fjöllunum, og verður
söngvarinn Egill Ólafsson þar í
aðalhlutverki. Þá eru fram undan
í maí tónleikar þar sem frumflutt-
ir verða tveir nýir íslenskir ein-
leikskonsertar: píanókonsert eftir
Hauk Tómasson (einleikari Vík-
ingur Heiðar Ólafsson) og konsert
fyrir kontrabassa eftir Snorra Sig-
fús Birgisson (einleikari Hávarð-
ur Tryggvason) en Snorri verður
jafnframt stjórnandi á tónleikun-
um. Um miðjan maí verður önnur
dagskrá Tóneyjar í Gerðubergi, en
þá syngur Guðrún Jóhanna Ólafs-
dóttir mezzosópran ásamt Caput-
hópnum verk Hauks Tómassonar,
sönglagaflokkinn Grannmetislög,
við texta eftir Þórarin Eldjárn.
Flokkurinn hefur sent frá sér
nokkra diska á undanförnum miss-
erum: Verkið Örsögur eftir Haf-
liða Hallgrímsson sem byggt er á
sögum eftir Daniil Kharms kom
út nú í desember hjá fyrirtækinu
Signum Records. Sögumaður er
Simon Callow. Diskurinn Funk-
haus-Konzerte, sem gefinn er út af
WDR-ríkisútvarpsstöðinni þýsku
og inniheldur upptökur frá tón-
leikum í Köln frá því í apríl 2009
er einnig kominn út. Var Caput-
hópnum boðið að koma fram á tón-
leikunum til að frumflytja verkið
Area eftir Günter Steinke, prófess-
or í tónsmíðum í Essen, en það er
samið sérstaklega fyrir Caput.
Flaututónlist Toshio Hosokawa,
í flutningi Kolbeins Bjarnason-
ar og Caput-hópsins undir stjórn
Snorra S. Birgissonar, kemur
út hjá Naxos í desember á þessu
ári og tónverkin Tears of Dion-
ysius eftir danska tónskáldið
Lars Graugaard og samnefnd og
umdeild kvikmynd koma út saman
á næstunni í CD- og DVD-formi.
Verkin voru frumflutt í Háskóla-
bíói á Listahátíð árið 2006.
pbb@frettabladid.is
Frumflutt verk hjá Caput
TÓNLIST Caput-hópurinn í einni af sínum mörgu samsetningum, en hann er afkasta-
mikill í hljóðritunum og tónleikahaldi um þessar mundir.
Þeir félagar Sigurður Sigurjónsson, Karl Ágúst Úlfs-
son og Örn Árnason kveðja hlutverk sín í Harry og
Heimi nú í lok mars eftir sjö mánuði fyrir fullu húsi.
Það er hundraðasta sýning í kvöld á þessu vinsæla
útvarpsleikriti og hafa hátt í tuttugu þúsund áhorf-
endur séð það frá í haust.
Þeir voru búnir að lofa sér í önnur verkefni nú í
mars og því voru ekki önnur úrræði nú en að hætta
sýningum svo næstu verkefni komist á svið. En þeir
félagar eru ekki hættir heldur mæta galvaskir næsta
haust og taka upp þráðinn þar sem frá var horfið. Örn
og Sigurður eru komnir á fullt í ný verkefni í Borgar-
leikhúsinu og frumsýna á stóra og nýja sviði Borgar-
leikhússins á næstu vikum. Örn í hlutverki skóla-
stjórans í Gauragangi í næstu viku og Sigurður leikur
undirförulan sálfræðing í Dúfunum sem frumsýnt
verður í apríl á nýja sviðinu.
Enginn átti von á því að Harry og Heimir myndu
ganga í sjö mánuði fyrir fullu húsi en sú varð raunin
og verður leikritið tekið upp næsta haust svo þeir sem
komast ekki að núna fái að hlæja að þeim félögum
sem fara á kostum í hlutverkum sínum í verkinu. - pbb
Harry og Heimir hættir - í bili
LEIKLIST Útvarpsleikrit liðinna tíma hyllt í Harry og Heimi
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Það er ekki að spyrja að flækju-
hausnum Fíusól, hún
lendir í einhverju fjör-
ugu á hverjum degi.
Í nýjustu bókinni,
Fíasól og litla ljónar-
ánið, segir af ótrúlegri
atburðarrás – og litl-
um apaskottum, búlgörskum farand-
söngvurum, úrræðagóðri mömmu og
velheppnaðri ferð í skemmtigarð og
skriðdýrahús. Bókin hentar lesendum
frá fjögra ára aldri og er skreytt fjölda
skemmtilegra litmynda. Um helgina
frumsýnir Þjóðleikhúsið nýja leiksýn-
ingu sem byggir á ævintýrum Fíusólar.
NÝJAR BÆKUR