Fréttablaðið - 13.03.2010, Qupperneq 88
52 13. mars 2010 LAUGARDAGUR
FÓTBOLTI Árið 1996 var Carlo
A ncelott i ráðinn þjá lfari
Parma á Ítalíu. Hann sagði að
hæfileikamaðurinn Gianfranco
Zola passaði ekki í áætlanir sínar
með liðið og setti hann á sölulista.
Þá fór af stað ferli sem gerði það
að verkum að Zola er nú lifandi
goðsögn í augum stuðningsmanna
Chelsea.
Zola lék með Chelsea í sjö ár og
mætir á kunnuglegar slóðir í dag
sem knattspyrnustjóri West Ham.
Hann getur heldur betur dempað
titilmöguleika síns gamla félags
ef hann nær í öll stigin þrjú á
Stamford Bridge. Um leið myndi
West Ham vinna mikilvægan
sigur í baráttunni fyrir lífi sínu
í deildinni en liðið er nú þremur
stigum fyrir ofan fallsæti.
Ancelotti þjálfar Chelsea í
dag eins og allir vita en hans
menn geta með sigri endurheimt
toppsæti dei ldarinnar af
Manchester United. „Skipulag
er það sem við þurfum til að eiga
möguleika,“ segir Zola í viðtali
á heimasíðu West Ham. Liðið
hefur ekki náð að vinna útileik
í deildinni síðan í fyrstu umferð.
„Við eigum tvo erfiða Lundaleiki
fram undan, fyrst gegn Chelsea og
svo mætum við Arsenal. Tvö lið
sem eru að berjast um toppsætið.
Við þurfum að spila meira eins og
lið ef við ætlum að fá eitthvað úr
þessum leikjum. Við vorum ekki
eins og ein heild gegn Bolton,“
segir Zola.
„Við höfum sýnt mikinn
óstöðugleika og ég hef í raun
engar afsakanir. En það tilheyrir
fortíðinni, það eru tíu leikir eftir
og við þurfum nauðsynlega að ná í
fleiri stig. Það yrði algjör draumur
að ná að vinna Chelsea.“
Tveir tapleikir af síðustu þremur
deildarleikjum hafa ekki kætt
stuðningsmenn Chelsea sem vonast
eftir því að endurtaka leikinn frá
2006 og hirða meistaratitilinn.
Liðið hefur ekki tapað fyrir West
Ham í síðustu tíu viðureignum
liðanna.
Meiðsli markvarðarins Petrs
Cech hafa sett strik í reikninginn
hjá Chelsea og svo varð varamark-
vörðurinn Hilario fyrir meiðslum
fyrir viku. Ross Turnbull mun því
standa í markinu í dag í sínum
fyrsta deildarleik fyrir félag-
ið síðan hann kom frá Middles-
brough.
Keppinautar Chelsea um enska
meistaratitilinn, Manchester
United og Arsenal, fóru á kostum
í Meistaradeildinni í vikunni.
Arsenal leikur gegn Hull í dag
en United leikur á morgun gegn
Fulham. Einn leikur verður síðan í
deildinni á mánudaginn, Liverpool
tekur á móti botnliði Portsmouth.
Liverpool hefur aldrei unnið
mánudagsleik síðan Rafael Benítez
tók við liðinu.
elvargeir@frettabladid.is
Leggur Zola stein í götu Chelsea?
West Ham á ansi erfitt verkefni fyrir höndum á Stamford Bridge í dag. Knattspyrnustjóri Hamranna, Gian-
franco Zola, er lifandi goðsögn hjá Chelsea en getur heldur betur gert sínum gömlu félögum grikk.
Í BÚNINGI CHELSEA Gianfranco Zola átti sjö frábær ár í búningi Chelsea. Hér leiðir hann fyrrverandi félaga sína og fagnar um leið
sæti í Meistaradeildinni með félaginu árið 2003. NORDICPHOTOS/GETTY
LEIKIR HELGARINNAR
Laugardagur:
Birmingham - Everton
Bolton - Wigan
Burnley - Wolves
Chelsea - West Ham
Hull - Arsenal
Stoke - Aston Villa
Tottenham - Blackburn
Sunnudagur:
Man. Utd - Fulham
Sunderland - Man. City
FÓTBOLTI „Ég bað aldrei um að
vera hvíldur, mér finnst ekk-
ert skemmtilegra en að spila
fótbolta,“ segir Cesc Fabregas,
fyrirliði Arsenal, sem er tilbúinn
til að fórna sér fyrir liðið þrátt
fyrir að eiga við meiðsli að stríða.
Hann missti af 5-0 sigrinum
gegn Porto í Meistaradeildinni
og leikur væntanlega ekki í
dag gegn Hull City. Hann segir
meiðsli sín smávægileg og orsak-
ast af miklu álagi. Fabregas fann
fyrir meiðslunum í leik gegn
Burnley.
„Ég fann fyrir einhverju tíu
mínútum áður en við komumst
yfir. Ég vildi bara ekki yfirgefa
völlinn fyrr en við næðum að
skora. Ég reyndi svo að halda
eitthvað áfram en taldi best að ég
færi af velli,“ segir Fabregas.
Nú þegar líklegt er að dagar
Manuels Pellegrini hjá Real
Madrid séu brátt taldir er knatt-
spyrnustjóri Arsenal, Arsene
Wenger, orðaður við starfið.
„Ekki hringja í mig og látið mig
bara í friði,” sagði Arsene Weng-
er glottandi á blaðamannafundi
í vikunni og bætti síðan við: „Ég
klára alltaf mína samninga og ég
er með samning til ársins 2011,“
- egm
Cesc Fabregas hjá Arsenal:
Vill spila þrátt
fyrir meiðslin
FABREGAS Á við meiðsli að stríða en vill
samt spila. NORDICPHOTOS/GETTY
Landsvirkjun auglýsir eftir samstarfs-
aðilum að verkefninu Margar hendur
vinna létt verk
Landsvirkjun hefur um áratugi starfrækt sumarvinnuflokka ungs fólks. Hóparnir sinna
viðhaldi, uppbyggingu og snyrtingu í starfsstöðvum Landsvirkjunar og vinna jafnframt að
ýmsum samstarfsverkefnum víða um land. Samvinna sumarvinnuflokka Landsvirkjunar
og félagasamtaka, sveitarfélaga og stofnana hefur skilað sér í auknum umhverfisgæðum
og fjölmörgum dæmum um bætta aðstöðu til útivistar og ferðamennsku.
Í boði er vinnuframlag sumarvinnuflokka og flokksstjórn yfir þeim. Verkefnin lúta að
ræktun, hreinsun, viðhaldi og öðrum umhverfisbótum ásamt stígagerð og stikun
gönguleiða.
Óskað er eftir að samstarfsaðilar leggi fram vel skilgreind verkefni. Umsóknareyðublað
með nánari upplýsingum er að finna á vef Landsvirkjunar, www.lv.is.
Nánari upplýsingar veitir Ragnheiður Ólafsdóttir, umhverfisstjóri Landsvirkjunar,
í síma 515 9000 – ragnheidur@lv.is.
Margar
hendur
vinna
létt verk
Umsóknarfrestur rennur út 16. apríl
Umsóknareyðublöð er að finna á www.lv.is
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
10
07
0
8
Landsvirkjun | Háaleitisbraut 68 | sími 515 9000 | www.lv.is