Fréttablaðið - 13.03.2010, Side 94

Fréttablaðið - 13.03.2010, Side 94
58 13. mars 2010 LAUGARDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 NÝYRÐIÐ LÁRÉTT 2. fangi, 6. utan, 8. fyrirboði, 9. hlemmur, 11. ólæti, 12. bolur, 14. fáni, 16. sjó, 17. sunna, 18. geisla- hjúpur, 20. kusk, 21. glufa. LÓÐRÉTT 1. elds, 3. klaki, 4. ámáttlegt ýlfur, 5. rénun, 7. nýta, 10. eldsneyti, 13. viðmót, 15. eldur, 16. áverki, 19. tvíhljóði. LAUSN LÁRÉTT: 2. gísl, 6. án, 8. spá, 9. lok, 11. at, 12. stofn, 14. flagg, 16. sæ, 17. sól, 18. ára, 20. ló, 21. rauf. LÓÐRÉTT: 1. báls, 3. ís, 4. spangól, 5. lát, 7. notfæra, 10. kol, 13. fas, 15. glóð, 16. sár, 19. au. Félagarnir Erpur Eyvindar- son og Atli skemmtanalögga höfðu fengið Haffa Haff til að skemmta með sér á Akureyri á laugardags- kvöld. Haffi varð hins vegar að hætta við það þegar hann komst að því að íslensku tónlistar- verðlaunin verða afhent í kvöld. Haffi lætur sig að sjálfsögðu ekki vanta á hátíðina og hefur lýst því yfir að hann ætli að mæta í „flottasta dressi ever“ … Við spyrjum að leikslokum. Átakið Öðlingurinn 2010 hófst á bóndadag og lýkur með uppboði á miðvikudaginn í næstu viku. Allur ágóði átaksins og uppboðsins rennur til Neyðarmóttöku vegna nauðgana. Á meðal þess sem boðið verður upp er tónlistarflutningur Baggalúts og treyja fótboltamannsins Rúnars Kristinssonar. Þá ætlar leikarinn Víðir Guðmundsson að bjóða sjálfan sig upp í „hefðbundið kvennastarf“ - hann ætlar sem sagt að skúra heima hjá viðkom- andi, eða í því fyrirtæki, sem býður best. Fréttir Fréttablaðsins af framtíð tón- leikastaðarins Græna hattsins vöktu mikla athygli. Haukur Tryggvason, sem rekur staðinn, taldi framtíðina vera í óvissu, en eigandinn Sigmund- ur Rafn Einarsson vísaði því á bug og sagði staðinn vera að stækka og að hann yrði rekinn með eða án Hauks. Tónleikaþyrstir Akureyringar og landsmenn höfðu miklar áhyggjur af ástandinu, en að ástæðulausu, þar sem allt er nú fallið í ljúfa löð fyrir norðan. Ennþá er áformað að stækka staðinn, en Haukur fer ekki neitt og heldur áfram að bóka hljómsveitir á einn vinsælasta tónleikastað lands- ins. - afb FRÉTTIR AF FÓLKI VEISTU SVARIÐ Svör við spurningum á síðu 8. 1 Slysavarnafélagið Landsbjörg. 2 Katrín Anna Guðmundsdóttir. 3 Fóstbræður. „Ég hef nýtt menntun mína á vinnumarkaðinum, en ég hef allt- af haft áhuga á því,“ segir hin 29 ára gamla Dyah Anggraini, sem er ein af 37 umsækjendum um starf dagskrárstjóra Sjónvarpsins. Dyah er frá Indónesíu, en flutti til Íslands árið 2008 og er gift íslenskum manni. Hún er vel menntuð í fjölmiðlafræðum og keppir við margar kanónur um starfið, en Egill Helgason, Marí- anna Friðjónsdóttir, Felix Bergs- son og Sigurjón Kjartansson eru á meðal umsækjenda. „Ég hef alltaf haft áhuga á fjöl- miðlum og er með masterspróf í blaðamennsku frá háskólanum í Westminster á Englandi,“ segir Dyah. Hún var að stíga út úr tíma í Háskóla Íslands þegar Frétta- blaðið náði í hana, en þar er hún í MBA-námi í viðskiptafræði. Sér- svið hennar á Englandi var fjöl- miðlun með áherslu á sjónvarp og útvarp. „Ég lærði allt í sambandi við dagskrárgerð, frá því að þátt- ur er skrifaður þangað til hann er sendur út.“ Dyah sækir íslenskunámskeið í HÍ og hefur náð fínum tökum á tungunni, þó hún geri lítið úr því sjálf. „Mér finnst tungumálið erf- itt, þannig að ég læri hægt,“ segir hún og hlær. Dyah er búin að vera í atvinnu- leit síðastliðið ár og segir leitina ganga hægt. Hún segist vissulega hafa getið valið betri tímasetningu en árið 2008 til að koma til Íslands í atvinnuleit. „Ég vann í banka og það er ekki hjálplegt að vera með það á ferilskránni,“ segir hún og hlær. „En ég elska Ísland, það er svo fallegt land. Ég gefst ekki upp á því strax.“ - afb Dyah vill vera dagskrárstjóri SÆKIR UM HJÁ RÚV Dyah sækir um starf dagskrárstjóra Sjónvarpsins ásamt 36 öðrum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Ný íslensk gamanþáttasería verður tekin til sýninga á Skjá einum í haust. Um er að ræða sex þætti sem teknir verða upp á Akureyri. Framleiðandi þáttanna er Bald- vin Z og leikstjóri þeirra verður Arnór Pálmi en hann skrifaði handritið ásamt þeim Heiðari Mar og Katrínu Björgvinsdóttur. „Þetta er þáttaröð sem skartar bæði ungu fólki og þaulreyndu og okkur líst alveg ótrúlega vel á þetta,“ segir Kristjana Thors Brynjólfsdóttir, dag- skrárstjóri Skjás eins. „Ég er búin að lesa handritið og sjá prufuþátt og þetta lítur alveg ótrúlega vel út,“ bætir hún við. Baldvin Z vildi ekki gefa of mikið upp um innihald þáttana í samtali við Fréttablaðið. Hann segir þó að sögu- sviðið verði á Akureyri og við sögu komi bæði persón- ur frá höfuðstað norðurlands sem og færeyskar. „En ég ætla ekkert að fara nánar útí þá sálma,“ segir Baldvin. Stóru tíðindin eru þó eflaust þau að í aðalhlutverkum verða bræðurnir Árni Pétur og Kjartan Guðjóns- synir. Árni Pétur leikur ramm-gagnkynhneigð- an einkstaling sem er meinilla við homma. „Þetta er Eddu-verðlaunahlutverkið hans Kjartans,“ segir Baldvin og hlær en Kjartan impraði á því á síðustu Eddu-verðlaunum að hann hefði enn ekki fengið slíka styttu. Enn á eftir að ganga frá skipan í minni hlutverk en Baldvin staðfestir þó að Þórhall- ur Sigurðsson leiki föður þeirra bræðra. -fgg Bræður í norðlenskum gamanþáttum „Hvað mig persónulega varðar þá dreymdi mig aldrei um að fá svona safn. Þetta er þvílíkur happafengur fyrir gesti garðsins,“ segir Tómas Óskar Guðjónsson, forstöðumaður Fjölskyldu- og húsdýragarðsins. Garðinum áskotnaðist nýlega eitt stærsta safn uppstoppaðra fugla og spendýra sem um getur á landinu. Í því er að finna margs konar spen- dýr, leðurskjaldböku og ótalmarg- ar fuglategundir. „Það var þekkt- ur endurskoðandi í bænum sem dó nýlega og skildi eftir sig þetta safn. Fjölskyldan áttaði sig á því hvað það var stórt og umfangsmikið og ákvað að fela Húsdýragarðinum að gæta þess,“ útskýrir Tómas. Garðurinn verður tuttugu ára í ár en hann var opnaður þann 19. maí árið 1990. Tómas á von á því að gestir garðsins eigi eftir að njóta afmælisins og búast má við nýjum gestum. „Við eigum von á einhverj- um afmælisgjöfum,“ segir Tómas. Fyrir utan uppstoppaða safnið má þar kannski helst nefna að tvær slöngur og tvær eðlur verða meðal íbúa safnsins á afmælisárinu. Búið er að setja upp sérstök búr og starfsfólk garðsins hefur verið þjálfað í meðferð slíkra tegunda en þær hafa ekki áður verið til sýnis á Íslandi. „Þetta er annars vegar bóaslanga sem er kyrkislanga og svo svokallaður kornsnákur sem er svartur og rauður og er því alveg eins á litinn og önnur tegund TÓMAS ÓSKAR: HÚSDÝRAGARÐURINN FÆR VEGLEGA GJÖF Eðlur og slöngur í Hús- dýragarðinum í sumar LOKSINS SLÖNGUR OG EÐLUR Gestir húsdýragarðsins ættu ekki að láta sér bregða í sumar því á afmælisári safnsins verða til sýnis iguana-eðla og skeggdreki. Auk þeirra verða bóa-kyrkislanga af smærri gerðinni og kornsnákur. Tómas Óskar Guðjónsson er forstöðumaður Húsdýragarðsins. BRÆÐURNIR SAMAN Þeir Árni Pétur og Kjartan Guðjónssynir leika aðalhlutverk- in í nýrri gamanþáttaseríu sem Skjár einn hyggst taka til sýningar í haust. Þórhallur Sigurðsson leikur pabba þeirra en tökur verða á Akureyri. Lækjargata 2a 101 R. sími 511-5001 opið alla daga 9.00 - 22.00 Státum af metn aðarfullu úrvali e rlendra bóka Viku- tilboð 6.495,- 4.995,- VELJUM LÍFIÐ „Negrunarárátta“ Orðið tanorexía tröllreið öllu í íslensk- um fjölmiðlum í vikunni. Formaður Tanorexíufélags Íslands segir algjöra sprengingu hafa orðið í skráðum félögum í kjölfar frétta af víðtæku vandmáli brúnku-fíkla og hætturnar sem steðja að þeim. eitraðra snáka,“ útskýrir Tómas og tekur fram að hvorug þessara teg- unda sé þó hættuleg. Eðlurnar eru líka tvær; önnur er iguana-eðla og hin skeggdreki. Rétt er að taka fram að þær tvær eru heldur ekki hættulegar. Tómas segir starfsfólk garðsins viðbúið miklu fjölmenni í sumar því búast má við að enn fleiri ferðist um landið á þessu ári held- ur en hefur verið undanfarin ár. „Aðsóknin í garðinn hefur verið í svona fimm ára sveiflum og okkur finnst við vera í mikilli uppsveiflu núna.“ freyrgigja@frettabladid.is A FP/N O R D IC IM A G ES

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.