Fréttablaðið - 15.03.2010, Blaðsíða 47

Fréttablaðið - 15.03.2010, Blaðsíða 47
Farfuglar ❚ Borgartúni 6 ❚ 105 Reykjavík ❚ Sími 552 8300 ❚ thorsmork@thorsmork.is ❚ www.thorsmork.is Þórsmörk Fyrirtæki - skólar - vinahópar Er hópurinn að huga að vorferð? Komið í Húsadal og upplifið þessa náttúruperlu í aðeins 150 km fjarlægð frá Reykjavík. Þórsmörk er ævintýraland náttúru- unnenda með endalausum möguleikum á gönguleiðum og útiveru þar sem jöklar, ár, fjöll og gróður kallast á í mögnuðu landslagi. Fjölbreytt gisting Í Húsadal er fjölbreytt aðstaða fyrir einstaklinga og hópa til styttri eða lengri dvalar. Boðið er upp á gistingu í tveggja manna herbergjum, smáhýsum og skálum. Frábær aðstaða Í glæsilegum funda- og veitingasal eru sæti fyrir um 100 manns, hvort sem um er að ræða fundi, ráðstefnur eða veisluhöld. Við getum boðið upp á fulla þjónustu í mat og drykk fyrir hópa. Auk þess er gufubað og sturtur á staðnum og hvað er betra eftir hressandi gönguferð en að skella sér í gufu? Útbúum pakka fyrir hópa með gönguferðum, flúðasiglingum, kvöldvökum, grillveislum o.fl. Hafið samband eða farið á vefsíðu okkar www.thorsmork.is til þess að fá frekari upplýsingar. Sjáumst í Mörkinni!

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.