Fréttablaðið - 17.03.2010, Qupperneq 2
2 17. mars 2010 MIÐVIKUDAGUR
VIÐSKIPTI Lilja Mósesdóttir, for-
maður viðskiptanefndar Alþing-
is, hyggst kalla fulltrúa bankanna
og bankasýslu ríkisins á fund
nefndarinnar til að spyrja þá út
í hugmyndir sem uppi eru innan
bankanna um að taka á ný upp bón-
uskerfi. Þá mun hún einnig lýsa
skoðun nefndarinnar á málinu.
Fréttablaðið greindi frá því
í fyrradag að innan bankanna
stæði til að taka aftur upp árang-
urstengdar greiðslur til starfs-
manna. Spunnust um þetta umræð-
ur á Alþingi í gær og létu tveir
þingmenn Sam-
fylkingarinnar
hörð orð falla í
garð bankanna.
Þeir sögðu að
ef af yrði þyrfti
að skattleggja
greiðslurnar
mjög hátt og
annar þeirra
vildi að rætt
yrði hvort ekki
mætti banna slíka bónusa.
Landsbankinn sendi frá sér yfir-
lýsingu í gærkvöldi þar sem sagði
að umræða um innleiðingu kaup-
aukakerfis væri algjörlega ótíma-
bær. Ekkert slíkt kerfi hafi verið
tekið upp, bankaráðið hafi ekki
rætt það og engin útfærsla verið
samþykkt.
Hugsanlegt sé að slíkt kerfi verði
að veruleika í árslok 2012 þegar sá
hluti eignasafn bankans sem hug-
myndir eru um að muni mynda
kaupaukastofnun hefur verið end-
urmetinn. Ekkert sé hins vegar
hæft í því að starfsmenn myndu fá
kaupauka fyrir að ganga hart fram
gagnvart skuldurum. - sh
SKIPULAGSMÁL Framkvæmdir við
ný mannvirki á og við lóð Hrafns
Gunnlaugssonar, kvikmyndaleik-
stjóra í Laugarnesi, hafa verið
stöðvaðar.
Starfsmaður byggingarfulltrú-
ans í Reykjavík fór í vettvangs-
könnun í Laugarnesið um miðjan
febrúar eftir að athugasemd barst
embættinu um að hús hefði verið
steypt upp í fjöruborðinu neðan við
hús Hrafns í Laugarnestanga 65.
„Kom í ljós að framkvæmdir eru
í gangi á staðnum sem ekki eru
leyfi fyrir, en búið er að byggja
skúr eða skýli niðri við flæðar-
mál. Einnig eru framkvæmdir í
gangi við annað hús út við lóða-
mörk, en búið er að slá upp fyrir
veggjum og steypa að hluta veggi
og verið er að undirbúa steypu á
gólfi,“ segir í bréfi sem bygging-
arfulltrúi skrifaði Hrafni fyrr í
þessum mánuði.
Í bréfinu til Hrafns kemur fram
að ekkert byggingarleyfi hafi verið
gefið út fyrir fyrrnefndum fram-
kvæmdum og að engir uppdrætt-
ir hefðu borist byggingarfulltrúa.
Honum var því tilkynnt um að
„allar framkvæmdirnar, hverju
nafni sem þær nefnast, hafi verið
stöðvaðar“.
Bréfið til Hrafns var lagt fyrir
síðasta fund skipulagsráðs Reykja-
víkur sem staðfesti ákvörðun
byggingarfulltrúans um stöðv-
un framkvæmda. Hrafn hefur nú
frest til 18. mars til að gefa skýr-
ingar á nýsmíðinni í Laugarnesi.
Það er síðan í höndum skipulags-
ráðs að ákveða framhald máls-
ins, til dæmis hvort mannvirkin
verði fjarlægð á kostnað Hrafns.
Reyndar hefur Hrafn áður lagt út í
ýmsar ósamþykktar framkvæmd-
ir, bæði innan sinnar eigin lóðar og
utan, án þess að hafa þurft að sæta
því að þær væru rifnar.
„Lóðafrágangurinn hjá honum
er ekki í samræmi við samþykkta
uppdrætti. En það er búið að vera
mikið annríki hjá öllum sem eiga
að vera að fylgjast með þessu,
embætti byggingarfulltrúa og
fleirum,“ útskýrir Magnús Sædal
byggingarfulltrúi.
Ekki náðist í Hrafn Gunnlaugs-
son í gær. gar@frettabladid.is
Stöðva enn nýsmíði
Hrafns í Laugarnesi
Byggingarfulltrúi hefur aftur gert athugasemdir við framkvæmdir við lóðina
á Laugarnestanga 65 þar sem kvikmyndaleikstjórinn Hrafn Gunnlaugsson býr.
Skúr er risinn í flæðarmálinu. Steypuvinna við lóðamörk hefur verið stöðvuð.
VIÐBÓT Í FLÓRUNA Stöðugt bætist við
skúlptúrana í grennd við hús Hrafns.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ÓRÆÐ BYGGING Framkvæmdir við þetta
sérstaka mannvirki voru stöðvaðar í
febrúar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
NÝTT SKÝLI Í FLÆÐARMÁLINU Hrafn Gunnlaugsson heldur uppteknum hætti og
framkvæmir bæði innan lóðar sinnar og utan án þess að sækja um leyfi hjá borgar-
yfirvöldum. Eitt nýjasta mannvirkið stendur utan lóðar kvikmyndaleikstjórans í
fjörunni í Laugarnesi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
STJÓRNMÁL Enn hafa engir fundir verið haldnir á milli
íslensku samninganefndarinnar um Icesave og Breta
og Hollendinga. Steingrímur J. Sigfússon fjármála-
ráðherra segir að erfiðlega hafi gengið að afmarka
grundvöllinn fyrir áframhaldandi viðræðum. Ekki
standi á Íslendingum.
Lee Buchheit, formaður samninganefndarinnar,
kom við hér á landi í gær. Hann fundaði með fulltrú-
um stjórnar og stjórnarandstöðu. Steingrímur segir
Buchheit hafa gefið skýrslu um stöðuna og hver yrðu
næstu skref af hálfu Íslendinga. Steingrímur segir
sátt hafa ríkt á fundinum og það sé í höndum samn-
inganefndarinnar hver næstu skref verði. Erfiðar hafi
gengið að koma á fundi en vonast hafi verið til.
Ekki liggur enn fyrir á hvaða samningsgrundvelli
viðræðum verður haldið áfram. Steingrímur segir
Íslendinga helst hafa viljað halda áfram með málið
þar sem frá var horfið.
„Við hefðum helst viljað að menn kæmu að borðinu
og það væri allt og ekkert undir, í þeim skilningi.
Það væri mætt til viðræðna án fyrirfram afmark-
ana í þeim efnum, en þetta hefur svolítið þvælst fyrir
mönnum.“
Deiluaðilar hafa verið í samskiptum þótt ekki hafi
komið til funda. Steingrímur segir ýmislegt hafa
truflað viðræður; fundahöld út af fjárhagsástandi
ýmissa Evrópuríkja og kosningaundirbúningur í Bret-
landi og Hollandi, svo dæmi séu tekin. Utanríkismála-
nefnd Alþingis heldur væntanlega utan til fundar við
utanríkismálanefnd breska þingsins í næstu viku. - kóp
Allt á huldu um hvenær sest verður að samningaborði um Icesave að nýju:
Deila um viðræðugrundvöll
FUNDAÐ Lee Buchheit var hérlendis í gær og fundaði um
næstu skref í Icesave. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Bilun hjá Landsneti
Það var bilun á línu Landsnets frá
Búrfelli að Flúðum sem orsakaði að
rafmagn fór af hjá viðskiptavinum
RARIK í Hrunamannahreppi, Bisk-
upstungum og í hluta Skeiða- og
Gnúpverjahrepps um kl. 13 á mánu-
daginn. Straumlaust var í rúmar tvær
klukkustundir.
ORKUMÁL
KNATTSPYRNA Skotheld vesti kól-
umbíska fatahönnuðarins Migu-
els Caballero seljast sem aldrei
fyrr í aðdraganda heimsmeist-
arakeppninnar í knattspyrnu sem
verður haldin í Suður-Afríku í
sumar.
Vestin eru nægilega sterk til
að standast vélbyssuskothríð
en þykja einnig svo vel hönnuð
að hægt er að vera í þeim í fín-
ustu kokteilboðum. Leiðtogar á
borð við Barack Obama og Gor-
don Brown eru sagðir á meðal
viðskiptavina Caballeros. - fb
HM í knattspyrnu í sumar:
Skotheld vesti
seljast mjög vel
ÉG NEFNI ÞIG Kristjana Milla Thorsteins-
son afhjúpaði nafn bónda síns á vélinni.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FLUG Flugakademía Keilis heiðr-
aði minningu Alfreðs Elíasson-
ar, stofnanda Loftleiða, í gær með
því að nefna flaggskip flugflota
síns eftir honum. Það var Kristj-
ana Milla Thorsteinsson, ekkja
Alfreðs, sem afhjúpaði nafnið
á vélinni. Þess var jafnframt
minnst með athöfninni á Reykja-
víkurflugvelli að Alfreð hefði
orðið níræður í ár.
Meðal viðstaddra voru sam-
gönguráðherra, gamlir Loftleiða-
menn, fjölskylda Alfreðs og
helstu forystumenn íslenskra
flugmála. - shá
Stofnanda Loftleiða minnst:
Minning Alfreðs
heiðruð í gær
ATVINNUMÁL Hópur sem vinnur að
því að uppræta bótasvik sparaði
Vinnumálastofnun útgjöld sem
nema á fjórða hundrað milljónum
króna á um þriggja mánaða tíma-
bili. Tugir mála vegna ofgreiddra
bóta verða sendir til innheimtu á
næstu vikum.
Fjögurra manna teymi á
vegum Vinnumálastofnunar var
sett á laggirnar síðasta haust til
að hafa eftirlit með bótasvikum.
Eftirlitsdeildin á gott samstarf
við Ríkisskattstjóra og fleiri
opinberar stofnanir. Um 16.900
manns eru atvinnulausir í dag
en bæturnar nema um 150.000
krónum á mánuði. - ghh
Bótasvikahópur nær árangri:
Stórfé sparast
með eftirliti
Formaður viðskiptanefndar Alþingis vill svör um árangurstengd laun:
Spyr um bónuskerfi bankanna
LILJA
MÓSESDÓTTIR
SPURNING DAGSINS
Handklæða-
ofnar
Hitastýrð sturtusett
með öllu
Sturtusettin
komin aftur
l -
f r
it t r t rt tt
ll24.900.- kr
• Sett fyrir sturtu 13.900.- , 24.900.- og 29.900.-
• Sett fyrir sturtu og bað 29.900.- og 34.900.-
Haukur, ertu svona hundlatur?
„Nei, bara hundheppinn.“
Haukur Páll Finnson keypti sérsniðinn
bakpoka fyrir tíkina sína, Köru. Í pokan-
um ber hún ýmsa muni fyrir húsbónda
sinn og léttir honum þannig lífið.
LÖGREGLUMÁL Þrír ökumenn voru
teknir um helgina á höfuðborgar-
svæðinu fyrir að aka undir áhrif-
um fíkniefna. Þetta voru allt karl-
ar, 19-35 ára, en í bíl eins þeirra
fundust fíkniefni. Einn þessara
ökumanna hafði þegar verið
sviptur ökuleyfi.
Þá voru sjö ökumenn teknir
fyrir ölvunarakstur á höfuðborg-
arsvæðinu um helgina. Fjórir voru
stöðvaðir í Reykjavík og einn í
Kópavogi, Garðabæ og Hafnar-
firði en sá á síðasttalda staðnum
var á stolnum bíl. Fimm voru tekn-
ir á laugardag og tveir á sunnudag.
Nóg að gera hjá lögreglunni:
Þrír undir stýri
í eiturlyfjavímu
Litlu landað á Akranesi
Skessuhorn segir frá því að síðustu
17 árin hafi aldrei verið landað eins
litlum uppsjávarafla á Akranesi og
á síðasta ári. Þetta kemur fram í
yfirliti Fiskistofu. Á síðasta ári komu
13.477 tonn af uppsjávarafla á land á
Akranesi en árið áður komu 26.763
tonn en þetta eru tvö döprustu árin á
þessu tímabili.
SJÁVARÚTVEGUR
Skóflustunga tekin
Íbúar Hvalfjarðarsveitar glöddust í gær
þegar tekin var skóflustunga að nýjum
Heiðarskóla sem á að verða tilbúinn
til notkunar fyrir upphaf nýs skólaárs.
Fjölmenni var við athöfnina en það
voru 38 ungir nemendur Heiðarskóla
sem sameinuðust um að taka skófl-
ustungurnar að nýja skólanum.
MENNTAMÁL