Fréttablaðið - 17.03.2010, Side 6
6 17. mars 2010 MIÐVIKUDAGUR
ALÞINGI Steinunn Valdís Óskars-
dóttir vinnur nú að því að fá Hans
Blix til lands-
ins til skrafs og
ráðagerða vegna
rannsóknar á
stuðningi Íslend-
inga við innrás-
ina í Írak. Stein-
unn er fyrsti
flutningsmaður
þingsályktunar-
tillögu um rann-
sóknina. Tillag-
an er enn í nefnd, en er væntanlega
þaðan á næstunni. Þingmenn allra
flokka nema Sjálfstæðisflokksins
styðja hana.
Steinunn segir að það myndi
bæta mjög við umræðuna fengist
Blix hingað til landsins, en tekur
fram að ekkert sé fast í hendi í
þessum efnum. „Hann var fyrir
sveitinni sem fór þangað niður
eftir til að skoða málin og ég held
að það sé fróðlegt að fá hans sjón-
armið á því hvað var í gangi þarna.
- kóp
sumarferdir.is
... eru betri en aðrar.
Nóatúni 4 · Sími 520 3000
www.sminor.is
A
T
A
R
N
A
Þvottavél
WM 14E261DN
á hreint
frábærum kjörum.
Tekur mest 6 kg,
vindur upp í 1400 sn./mín.
Með 15 mínútna þvottakerfi
og íslensku stjórnborði.
Tækifærisdagar
í verslun okkar!
129.900
Tækifærisverð:
kr. stgr.
(Verð áður: 169.900 kr.)
SKIPULAGSMÁL „Fyrstu athuganir á mögulegum
breytingum á húsnæðinu og kostnaði benda
til að þær eru innan þeirra marka að áhugi er
fyrir hendi að láta reyna á þessar hugmyndir
um hótelrekstur í húsnæðinu,“ segir Sigurður
Hallgrímsson arkitekt í bréfi sem hann send-
ir fyrir hönd Icelandair Hotels til borgaryfir-
valda um Heilsuverndarstöðina á Barónsstíg.
Sigurður segir ætlunina að reka einfalt
ferðamannahótel með áherslu á sölu á gistingu
og morgunverði. „Reiknað er með að hægt
verði að ná um 90 herbergjum til útleigu, bæði
með og án snyrtinga,“ segir í bréfi Sigurðar
sem kveður þetta mundu verða „spenn-
andi kostur fyrir nútíma ferðamanninn, þar
sem um er að ræða einstaka staðsetningu í
miðborginni í nálægð við Laugaveginn, Skóla-
vörðuholtið og Sundhöll Reykjavíkur“.
Þá segir Sigurður að mikið sameiginlegt
rými í húsinu eigi að nota til afþreyingar fyrir
hótelgesti. Nokkrar breytingar þurfi að gera
á húsnæðinu. „Fyrst og fremst er þar um að
ræða, að koma fyrir salernum tengdum hótel-
herbergjunum,“ segir Sigurður sem minnir á
að húsið sé að hluta til verndað. Hugmyndin
sé að ekki verði hróflað við útliti hússins og
að útlit ganga og sameiginlegra rýma haldist
óbreytt. Einungis verði breytt veggjum eða
veggjaskipan milli útveggja hússins og ber-
andi gangaveggja. „Þessar breytingar munu
því ekki sjást er komið er inn í húsið eftir
framkvæmdir.“ - gar
Eigendur Heilsuverndarstöðvarinnar vilja níutíu herbergja hótel í byggingunni:
Útlit á göngum stöðvarinnar verði óbreytt
Vilja fá fyrrverandi yfirmann vopnaeftirlitsnefndar í Írak til landsins:
Blix aðstoði við rannsóknina
STEINUNN VALDÍS
ÓSKARSDÓTTIR
HERBERGJASKIPAN NÝJA HÓTELSINS Arkþing hefur gert
frumtillögu að því hvernig koma megi fyrir 90 hótelher-
bergjum í Heilsuverndarstöðinni. MYND/ARKÞING
Hans Blix á að baki langan feril í alþjóðlegum stofnun-
um. Hann var fulltrúi Svíþjóðar í ýmsum afvopnunar-
nefndum og utanríkisráðherra 1978 til 1979. Árið 1981
varð hann yfirmaður Alþjóðakjarnorkumálastofnunar-
innar og gegndi því embætti til ársins 1997.
Árið 2002 var hann skipaður yfir vopnaeftirliti í Írak.
Hann talaði gegn innrás og sakaði bandarísk og bresk
stjórnvöld um að ýkja hættuna á gereyðingarvopnum
Íraka til að styrkja málstað sinn. Engin gereyðingarvopn
hafa fundist í Írak.
HANS BLIX
HANS BLIX
Vegir afhentir Vegagerðinni
Landsvirkjun og Vegagerðin hafa
undirritað samning sín á milli um að
forræði og umsjón með Kárahnjúka-
vegi, og að hluta á Hraunavegi,
færist yfir til Vegagerðarinnar, án
greiðslna eða endurgjalds. Vegirnir
voru lagðir af Landsvirkjun í tengsl-
um við rannsóknir og framkvæmdir
við Kárahnjúkavirkjun.
SAMGÖNGUMÁL
Fundað um makríl
Fundur um heildarstjórnun makríl-
veiða hófst í norska bænum Ála-
sundi í gærmorgun og stendur í þrjá
daga. Fulltrúar Íslands sitja fundinn
með starfsbræðrum frá Evrópusam-
bandinu, Noregi og Færeyjum. Rætt
verður um aflahámark, skiptingu
afla, aðgang að lögsögu og eftirlit
með veiðum.
SJÁVARÚTVEGUR
VIÐSKIPTI Bankarnir trössuðu að
veita skattayfirvöldum upplýsing-
ar um hundraða milljarða hagnað
þúsunda einstaklinga upp til skatts
á árunum fyrir hrun. Forsætisráð-
herra talar um að þar hafi verið
rekið svart hagkerfi. Stjórnvöld
hafa ákveðið að leggja skattayfir-
völdum til aukið fé til að koma á
fót tuttugu manna teymi sérfræð-
inga sem rannsaka eiga málið og
reyna að endurheimta féð.
Stefán Skjaldarson skattrann-
sóknarstjóri segir rannsókn-
ina, sem nú er á frumstigi, ná til
áranna 2006, 2007 og 2008. Hún
snúi að almennum viðskiptavin-
um bankanna, bönkunum sjálfum,
starfsmönnum þeirra, stjórnend-
um og eigendum, þeirra á meðal
félögum sem áttu stóra hluti í
bönkunum.
Stærstur hluti er afleiðuvið-
skipti, en einnig eru til rann-
sóknar viðskipti með hluta-
bréf, gjaldeyri og aðkeypta
erlenda þjónustu. Afleiðuvið-
skipti einstaklinga voru veru-
leg og greindi Stöð 2 meðal
annars frá því fyrir skömmu
að einn einstaklingur hefði á einu
ári hagnast um nærri 60 milljarða
á slíkum viðskiptum.
Sá hluti viðskiptanna sem eru
næst yfirborðinu og er að mestu
búið að kortleggja eru afleiðuvið-
skipti einstaklinga, að sögn Stef-
áns. Þeir einstaklingar eru á annað
þúsund.
Stefán segir ekki ljóst hversu
mikið kemur til með að fást upp
í hinar vangreiddu skattskuldir.
„En það er ekkert sem bendir til
þess að þessir einstaklingar ættu
ekki að geta staðið skil á tíu pró-
senta skatti af hagnaðinum,“ segir
hann.
Stefán segir að rannsóknin komi
til með að taka langan tíma, en til-
greinir það ekki nánar. Hann segir
skattayfirvöld hins vegar hafa
mjög miklar áhyggjur af því að
reynt verði að skjóta hagnaðinum
undan og því sé brýnt að frumvarp
sem liggur fyrir Alþingi um heim-
ildir skattayfirvalda til að kyrr-
setja eignir við upphaf rannsókn-
ar verði að lögum sem fyrst. „Það
bráðliggur á því,“ segir hann.
Ýmis önnur mál eru til skoðunar
hjá skattayfirvöldum, meðal ann-
ars mál sem tengjast kauprétt-
arsamningum og niðurfellingum
ábyrgða, viðskiptavild og skuld-
settum yfirtökum. Þá segir Stefán
ýmislegt benda til þess að leggj-
ast þurfi af þunga í rannsóknir á
aflandsfélögum banka og eigna-
manna.
Stefán lýsti í samtali við Ríkis-
útvarpið í gær óánægju með vinnu-
brögð skilanefnda föllnu bank-
anna, sem hefðu engin mál sent
skattayfirvöldum til rannsóknar
frá hruni þrátt fyrir að fullt til-
efni hafi verið til og að sú skylda
hafi raunar hvílt á nefndun-
um. Þá hafi einnig verið erf-
itt að nálgast upplýsingar frá
nefndunum. stigur@frettabladid.is
Rannsaka hundraða
milljarða skattsvik
Bankarnir ráku svart hagkerfi þar sem hagnaður upp á hundruð milljarða var
ekki talinn fram til skatts. Tuttugu manna teymi mun rannsaka málið. Mjög
brýnt er að fá heimild til kyrrsetningar sem fyrst, segir skattrannsóknarstjóri.
Enn skelfur undir jökli
Enn skelfur undir Eyjafjallajökli en
skjálftarnir eru ekki stórir. Þar hafa
mælst 30 til 40 skjálftar á klukkustund
og var sá snarpasti 2,4 á Richter.
Flestir voru þó um og innan við tveir
á Richter.
NÁTTÚRA
SJÁVARÚTVEGUR Matís ohf. mun
vinna greiningu á nýtingar- og
gæðamálum smáútgerðarinnar í
landinu í samvinnu við Landssam-
band smábátaeigenda. Markmiðið
er skýrt og það er að komið sé með
allan afla að landi og jafnframt
að ná fram hámarksnýtingu og
gæðum hráefnisins að öðru leyti.
- shá
Nýting afla á oddinn:
Matís greinir
smábátaútgerð
Eiga bankastarfsmenn skilið að
fá bónusgreiðslur?
Já 8%
Nei 92%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Á Frjálslyndi flokkurinn enn
erindi í íslensk stjórnmál?
Segðu skoðun þína á vísir.is
KJÖRKASSINN