Fréttablaðið - 17.03.2010, Page 8
8 17. mars 2010 MIÐVIKUDAGUR
Ryksugur
- fyrsta flokks. Stór orð sem reynslan réttlætir.
Hátúni 6a . 105 Reykjavík
Sími 552 4420 . www.fonix.is
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
BLÓÐI DRIFIN MÓTMÆLI Mótmælendur krefjast þess að forsætisráðherra leysi upp
þing og boði til kosninga. NORDICPHOTOS/AFP
TAÍLAND, AP Rauðklæddir stjórn-
arandstæðingar í Taílandi helltu
tugum lítra af blóði á götuna fyrir
utan aðsetur ríkisstjórnar lands-
ins í Bangkok, og einnig fyrir utan
höfuðstöðvar stjórnarflokksins.
Áður höfðu þúsundir stjórnar-
andstæðinga beðið í löngum röðum
eftir að hjúkrunarkonur tækju úr
sér blóð, sem síðan var notað í
táknrænni fórnarathöfn.
Mannfjöldinn krefst þess að
Abhisit Vejjajiva forsætisráðherra
og ríkisstjórn hans segi af sér svo
Thaksin Shinawatra, fyrrverandi
forsætisráðherra, geti snúið aftur
heim úr útlegð og myndað nýja
stjórn.
„Almenningur blandar nú blóði
sínu í baráttunni fyrir lýðræði,“
sagði Nattawat Saikua, einn leið-
toga mótmælendanna sem fögn-
uðu ákaft þessum orðum. „Þegar
Abhasit er að störfum á skrif-
stofunni sinni þá verður hann
minntur á að hann situr á blóði
almennings.“
Allt að hundrað þúsund manns
komu saman í Bangkok á sunnudag
til þess að krefjast þess að Abhasit
fallist á að leysa upp þing og boða
til kosninga fyrir miðjan dag á
mánudag. Hann neitaði að verða
við þeirri ósk, en sagðist reiðubú-
inn að hlusta á það sem mótmæl-
endur hefðu að segja.
Abhasit komst til valda í kjölfar
fjöldamótmæla gegn Thaksin árið
2006, sem enduðu með því að her-
inn tók sér völd tímabundið. Hann
hafði þá verið ásakaður um marg-
víslega fjármálaspillingu og valda-
misnotkun. - gb
Stjórnarandstæðingar í Taílandi mótmæla:
Helltu blóði á götur
höfuðborgarinnar
ALÞINGI Seðlabankinn hefur ekki
orðið við óskum Gylfa Magnús-
sonar, efnahags- og viðskipta-
ráðherra, um að veita umsögn
eða upplýsingar vegna fyrir-
spurnar sem ráðherranum barst
á Alþingi.
Ásbjörn Óttarsson, Sjálfstæðis-
flokki, spurði Gylfa um aðgerðir
ráðuneyta, Seðlabankans og Fjár-
málaeftirlitsins vegna meintra
brota á gjaldeyrisreglum. Lagði
hann fyrirspurnina fram um
miðjan desember.
Í svari ráðherra, sem lagt var
fram í gær, segir að Seðlabankinn
hafi enn ekki svarað þrátt fyrir
töluverða eftirleitan.
Samkvæmt upplýsingum
Fréttablaðsins er sjaldgæft að
ríkisstofnanir hundsi fyrirspurn-
ir ráðherra. - bþs
Viðskiptaráðherra bíður enn svara:
Seðlabankinn hefur
ekki svarað fyrirspurn
MÁR GUÐMUNDSSON SEÐLABANKA-
STJÓRI Seðlabankinn hefur ekki enn
svarað fyrirspurn viðskiptaráðherra þrátt
fyrir töluverða eftirleitan.
STJÓRNMÁL Grétar Mar Jónsson,
fyrrverandi þingmaður Frjáls-
lynda flokksins, styður Sigurjón
Þórðarson, sem einnig er fyrrum
þingmaður, í embætti formanns
Frjálslynda flokksins.
Enn sem komið er hefur Sigur-
jón einn gefið kost á sér í embætt-
ið en sem kunnugt er lætur Guð-
jón A. Kristjánsson af formennsku
á landsfundi um helgina.
„Ég vona að Sigurjón fái rúss-
neska kosningu,“ sagði Grétar í
gær. „Samstaða er mikilvæg.“
Sjálfur veltir hann fyrir sér
að sækjast eftir embætti vara-
formanns en Ásta Hafberg, sem
leiddi lista flokksins í Norðaust-
urkjördæmi í síðustu kosning-
um, hefur þegar gefið kost á sér
til þess.
- bþs
Grétar Mar fyrrverandi þingmaður Frjálslyndra:
Styður Sigurjón
til formennsku
VIÐSKIPTI Birna Einarsdóttir, bankastjóri
Íslandsbanka, og Finnur Sveinbjörnsson,
bankastjóri Arion banka, eru bæði með
rúmar 1,7 milljónir króna í laun á mánuði en
Ásmundur Stefánsson, bankastjóri Lands-
bankans, með rúma 1,1 milljón krónur,
samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins.
Finnur var með rúmar 1,9 milljónir króna
í mánaðarlaun í fyrrahaust en átti frum-
kvæðið að því að lækka laun sín til jafns
við Birnu. Um heildarlaun er að ræða og er
ökutæki ekki hluti af ráðningarsamningum
hans. Umráð yfir bíl er hluti af kjörum
Birnu.
Líkt og fram kom í Fréttablaðinu í gær
var Ásmundur Stefánsson hæstlaunaði
starfsmaður Landsbankans í fyrra með 1,5
milljónir króna á mánuði að viðbættum tvö
hundruð þúsundum í hlunnindi. Ólíkt hinum
bankastjórunum heyrir Ásmundur undir
Kjararáð, sem lækkaði laun yfirmanna hjá
ríkinu og dótturfyrirtækja í samræmi við
þá stefnu að enginn yrði með hærri laun en
forsætisráðherra. Hann er því nú með 753
þúsund krónur í mánaðarlaun að viðbætt-
um fjögur hundruð þúsund krónum í fasta
yfirvinnu, álag og bifreiðastyrk. Þetta gera
1.150 þúsund krónur á mánuði. Ekki liggur
fyrir hvort hann er með hæstu launin í
bankanum í dag. - jab
Birna Einarsdóttir og Finnur Sveinbjörnsson með hærri laun en Ásmundur:
Bankastjóri Landsbankans fær minnst
ÁSMUNDUR STEFÁNSSON Laun bankastjóra Landsbank-
ans voru lækkuð um þrjátíu prósent um mánaðamótin.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
BIRGÐU SIG UPP Þúsundir stjórnarand-
stæðinga gáfu blóð til að láta hella á
göturnar. FRÉTTABLAÐIÐ/AP