Fréttablaðið - 17.03.2010, Page 19
MIÐVIKUDAGUR 17. mars 2010 3
„Velkomin í fordyri hálendisins,
þar sem veður og færð breyt-
ist dag frá degi yfir vetrartím-
ann. Einmitt þess vegna grípum
við stundum gæsina þegar hún
gefst og bjóðum upp á ferðir með
aðeins dags fyrirvara, eins og
miðnæturferð á fjallstopp Heklu.
Að vera þar uppi undir fullu tungli
og dansandi norðurljósum verður
seint lýst með orðum,“ segir Unnar
Garðarsson, eigandi Óbyggðaferða
sem stofnaðar voru haustið 2006
og hafa síðan verið með skoðun-
arferðir um hálendi Íslands á fjór-
hjólum, þar sem farið er frá Hóla-
skógi á Gnúpverja afrétti, ofan við
Þjórsárdal, jafnt vetur, sumar, vor
og haust.
„Við frændi minn höfðum þá
farið vetrarferð á fjórhjólum til
Landmannalauga, en ekki getað
ýtt þeim skemmtilega degi úr
huga okkar. Því leið ekki nema
hálft ár að við vorum komnir með
fjórtán stykki af einum bestu fjór-
hjólum heims á fjöll, ásamt nýja
skálanum í Hólaskógi á leigu, en
hann tekur 85 manns í gistingu
og býr yfir fullkominni aðstöðu,
sauna og fleiri þægindum,“ segir
Unnar og bætir við að Óbyggða-
ferðir hafi orðið að veruleika
þegar nýjar reglur heimiluðu að
fjórhjól væru götuskráð og Ísland
opnaðist fyrir þeim farkosti.
Um Hólaskóg liggja margar
af helstu reiðleiðum landsins og
ævintýravegir til allra átta, enda
Ísland allt áfangastaður Óbyggða-
ferða og farið jafnt um nágrenni
Þjórsárdals yfir í Landmanna-
laugar, Þórsmörk og eins norður
í Öskju, ef því er að skipta.
„Óbyggðaferðir eru fyrst og
fremst skoðunarferðir um íslenska
náttúru sem við njótum á fjórhjól-
um. Fjórhjól sameina bestu kosti
jeppa, mótorhjóls, fólksbíls og
hests, og ég tel að menn fái smá-
skammt af því öllu í fjórhjólaferð.
Á fjórhjóli sér maður hluti sem
annars fara framhjá manni út um
bílgluggann, finnur vindinn leika
um sig og er í óskaplegu návígi við
náttúruna, en allar ferðir förum
við í sátt við náttúruna og vinnum
henni ekki tjón,“ segir Unnar sem
er umkringdur mörgum náttúru-
perlum landsins í Hólaskógi.
„Á hverjum föstudegi förum við
í dagsferðir klukkan 14, en í þær
þarf engan hóp. Ferðin er farin
hvort sem einn ætlar með eða tíu,
og stendur í þrjá til fjóra tíma,“
segir Unnar, en því má bæta við
að í öllum ferðum Óbyggðaferða
er nesti innifalið, fjórhjól, fatnað-
ur og annar útbúnaður í mestum
gæðum.
„Það segir okkur að við erum að
gera eitthvað einstakt og skemmti-
legt að sama fólkið kemur aftur
og aftur, og oft segja útlendingar
að ferðalag með okkur hafi verið
hápunktur Íslandsferðarinnar.“
Til að mega aka fjórhjóli þarf
venjulegt bílpróf, en öll hjól
Óbyggðaferða eru tveggja manna
og götuskráð.
„Óvanur maður getur leik-
andi keyrt á fjallstoppa á fjór-
hjóli. Við förum rólega af stað og
eftir klukkustund eru allir orðnir
flinkir við stýrið. Þetta eru stór-
ar ferðir, farnar í hvaða veðri sem
er og við ökum eftir fáfarnari
leiðum, þar sem stórbrotin nátt-
úra kemur flestum á óvart. Þá
er algengt að fjórhjólaeigendur
vilji slást með í hópinn og það er
sjálfsagt í flestum tilfellum.“
Nánar á www.obyggdaferdir.is.
thordis@frettabladid.is
Farið inn um anddyri hálendisins
Hálendi Íslands er óþrjótandi uppspretta ævintýraferða, þar sem ferðalangurinn fyllist andakt yfir ósnortinni náttúru og friðsæld jökla, fjalla, fossa og dala. Engu líkt er að upp-
lifa þá dásemd á fjórhjóli. Óbyggðaferðir bjóða upp á fjórhjólaferðir frá Hólaskógi á Gnúpverjaafrétti, ofan við Þjórsárdal, sumar, vetur, vor og haust.
Ægifegurð í blankalogni við Kýlinga í
Landmannalaugum. MYND/ÚR EINKASAFNI
Allir klárir að leggja upp í ævintýraferð frá nýja skálanum í Hólaskógi.
MYND/ÚR EINKASAFNI
Unnar Garðarsson með „varðhundana sína“, Golíat og Herkúles, á toppi Heklu í
dásamlegu útsýni. MYND/ÚR EINKASAFNI
VERSLUN / VERKSTÆÐI
Helluhrauni 4 220 Hafnarfjörður
Sími 555 4900
Allar nánari upplýsingar um þjónustu og vörur á www.rotor.is. lang - stærsti húsbílavefurinn
Viðgerðir Kæliskápar Reiðhjólagrindur Ferðasalerni Fortjöld
Húsbílaþjónusta og fylgihlutir í ferðalagið
Allt í húsbílinn...
...í settum fyrir handlagna
Rótor ehf býður upp á viðgerðaþjónustu
á rafbúnaði húsbíla og vagna ásamt
uppsetningu og tengingu á þeim búnaði
sem við seljum á einu besta
þjónustuverkstæði landsins.
Gasmiðstöðvar
1900 - 2800W
Vatnshitarar
13L gas / 220V
Sólarsellusett í úrvali.
A
u
g
lý
si
n
g
a
sí
m
i
Allt sem þú þarft…