Fréttablaðið - 17.03.2010, Side 20
17. mars 2010 MIÐVIKUDAGUR4
Dr. Michael Grocott heldur fyrir-
lestur um ferð sína og félaga
sinna á Mt. Everest vorið 2007.
Félag íslenskra fjallalækna (FÍFL)
í samvinnu við 66°N og Íslenska
fjallaleiðsögumenn stendur fyrir
fyrirlestri á Hótel Hilton Nordi-
ca á morgun klukkan 20. Þar mun
Michael P. Grocott, halda fyr-
irlestur um ferð sína og félaga
sinna á Mt. Everest vorið 2007,
The Xtreme Everest Expedition.
Dr. Grocott er heimsfrægur
fjallagarpur en jafnframt virtur
gjörgæslulæknir og vísindamað-
ur frá London sem klifið hefur
mörg af hæstu fjöllum veraldar,
meðal annars Everestfjall (8.850
m) og Cho Oyu (8.201 m). Í maí
2007 leiddi hann stærsta leið-
angur sinnar tegundar, Xtreme
Everest, á samnefnt fjall, þar
sem rannsökuð voru áhrif súr-
efnisskorts á mannslíkamann.
Rúmlega 200 manns tóku þátt í
leiðangrinum og átta læknar sem
náðu toppnum tóku sýni hver úr
öðrum á leiðinni. Leiðangurinn
vakti heimsathygli og hefur verið
gert skil í frægum sjónvarps-
þáttum á BBC; Everest: Doctors
in the Death Zone og í hinu virta
vísindariti New England Journal
of Medicine.
Grocott mun lýsa göngunni á
toppinn og þeim vandamálum sem
leiðangursmenn urðu að kljást
við. Fyrirlesturinn verður hald-
inn á ensku og er sniðinn að öllu
áhugafólki um útiveru og fjall-
göngur. Fyrirlesturinn er ókeypis
og öllum opinn.
Fyrirlestur um ferð
lækna á Everest
Everest: Doctors In The Death Zone er heimildarmynd um ferð læknanna á Everest.
Ásgeir Eiríksson þvælist með ferða-
menn upp á hálendi Íslands hverja
helgi en hann er framkvæmdastjóri
Jeppaleigunnar Ísak ehf. Í ferðum á
vegum fyrirtækisins fá ferðamenn-
irnir sjálfir að setjast undir stýri á
breyttum Land Rover-jeppum.
„Áður en við leggjum af stað
höfum við yfirferð varðandi örygg-
isatriði og meðferð á bílnum. Þar
er útskýrt hvernig bílunum hefur
verið breytt og að þeir hafi aðra
aksturseiginleika en aðrir óbreytt-
ir bílar,“ útskýrir Ásgeir og ítrekar
að fyllsta öryggis sé gætt.
Ísak var stofnað árið 2007. Þá
voru níu Land Rover-jeppar flutt-
ir inn sem fyrirtækið SS.Gíslason
sá um að breyta en nú eru jepparn-
ir fjórtán. Þeir eru allir upphækk-
aðir á 38 tommu dekkjum með inn-
byggðri loftdælu og búnir öflugum
gps-tækjum og talstöðvum.
„Við erum með okkar eigin
rás milli bíla og getum veitt leið-
sögn gegnum hana milli bílanna
en algengast er að farnar séu svo-
kallaðar halarófuferðir. Þá er fag-
menntaður leiðsögumaður í fremsta
bíl og ef bílarnir eru fleiri en fimm
er eftirfararbíll eða sópari aftast
sem sér um að allir fylgi með. Leið-
sögumaðurinn fer á undan yfir ár
og leiðbeinir fólki.“
Ferðamennirnir sem sótt hafa
jeppaferðirnar eru langflestir
erlendir ferðamenn og stórborg-
arbúar sem ekki eru vanir nein-
um svaðilförum. Ásgeir segir þó
engin óhöpp hafa orðið og flestir
upplifi ferðirnar sem mikið ævin-
týri og lífsreynslu. „Við höfum ekið
um 600-700 þúsund kílómetra síðan
við fórum af stað og það má telja
óhöpp á fingrum annarrar handar.
Venjulega eru þetta dagsferðir og
við sníðum þær eftir óskum fólks.
Oft förum við Gullfoss-Geysis-
hringinn með útúrdúrum, að Lang-
jökli eða línuveg milli Kaldadals
og Geysis. Einnig förum við í Þórs-
mörk allan ársins hring og keyr-
um þá gjarnan niður á ströndina en
fólki finnst yfirleitt mikil upplifun
að keyra jeppana í svörtum sandin-
um og horfa á brimið. Nú í febrúar
vorum við með fimm daga ferð um
hálendið sem er einstakt að geta
boðið upp á hér á Íslandi.“
En vex óvönu fólki ekki í augum
að keyra óbrúaðar ár á hálendinu?
„Leiðsögumennirnir okkar fara
ekki út í neina tvísýnu með ferða-
fólkið. Ef aðstæður eru slæmar þá
snúum við við. Um síðustu helgi var
ég með tólf bíla á ferð og tók ekki
sénsinn á því að láta ferðamennina
fara sjálfa. Þá fór ég bara tólf sinn-
um yfir ána. En eftir að við höfum
útskýrt hvernig á að bera sig að og
fólk sér að þetta er hægt þá gengur
yfirleitt vel. Á bakaleiðinni er fólk-
ið orðið svo sjóað að því finnst ekk-
ert mál að demba sér yfir árnar.“
heida@frettabladid.is
Ferðamenn undir
stýri á ofurjeppum
Ferðamenn geta nú ekið um hálendi Íslands á upphækkuðum breyttum jeppum einir eða undir leiðsögn
vanra manna. Erlendir stórborgarbúar standa sig vel í akstri yfir óbrúaðar ár og torfærur.
Ferðirnar eru mikið ævintýri fyrir erlenda stórborgarbúa. MYND/ÍSAK
Leiðsögumaður fer alltaf fyrstur yfir árnar en ferðamenn aka sjálfir bílunum í hálend-
isferðum Ísak. MYND/ÍSAK
Ásgeir Eiríksson, framkvæmdastjóri jeppaleigunnar Ísak, hefur ekið hátt í sjö hundr-
uð þúsund kílómetra á hálendinu með ferðamenn í halarófu á eftir sér.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Sp
ör
e
hf
.
Nánari upplýsingar og bókanir á www.fjallaleidsögumenn.is
eða í síma 587 9999 | fjallaleidsogumenn@fjallaleidsogumenn.is
Mont Blanc. 8 daga ferð á ókrýndan konung Alpanna. Brottför 26. júní.
Verð kr. 489.000 (innifalið: flug, akstur, gisting, tæknilegur búnaður, fæði og íslensk fararstjórn).
Gengið umhverfis Mont Blanc. 8 daga gönguferð um
óviðjafnalegt landslag Alpanna. Brottför 17. júlí.
Verð kr. 360.000 (innifalið: flug, akstur, gisting, fæði og íslensk fararstjórn).
Suðurhluti Grænlands. 8 daga lúxusferð um slóðir Eiríks Rauða
í Eystribyggð. Brottfarir 10. og 24. júlí og 7. ágúst.
Verð kr. 299.000 (innifalið: flug, gisting, fæði, trúss og íslensk fararstjórn).
Ammassalikeyja, Grænland. 7 daga ævintýraferð um heillandi
landslag með bakpoka og tjald. Brottfarir 19. júlí og 2. ágúst.
Verð kr. 192.000 (innifalið: flug, bátsferðir, gisting, fæði, íslensk fararstjórn).
Marokkó, Toubkal. 9 daga ganga um uppsveitir Atlasfjalla þar
sem Toubkal er takmarkið. Brottför 1. ágúst.
Verð kr. 249.000 (innifalið: flug, gisting, fæði, trúss, íslensk fararstjórn).
GÖNGUFERÐIR
UM ERLENDAR GRUNDIR