Fréttablaðið - 17.03.2010, Page 25
fjármál heimilanna ● fréttablaðið ●MIÐVIKUDAGUR 17. MARS 2010 5
● Aktu með jöfnum hraða, spar-
aðu inngjöfina og forðastu að
snögghemla.
● Láttu bílinn renna í brekkum.
● Vertu í viðeigandi gír og láttu
vélina ekki snúast yfir 2.000
snúninga.
● Ekki nota loftkælingu eða
sætishitara í bílnum, það eykur
eyðsluna um tíu prósent.
● Loftþrýstingur í dekkjum á að
vera sem næst því hámarki sem
framleiðandinn gefur upp. Lin
dekk skapa aukna núningsmót-
stöðu og auka á eyðsluna.
● Veldu greiðfærar umferðargötur
til að draga úr stoppum.
● Dreptu á bílnum ef stoppað er
lengur en í mínútu. Hægagang-
ur í eina mínútu er bensínfrek-
ari en gangsetning.
● Ekki vera með óþarfa dót í bíln-
um sem eykur á þyngd hans.
● Ekki aka með opna glugga eða
tóma farangursgrind á toppn-
um, það eykur loftmótstöðuna.
Heimild: fib.is
Opnir gluggar auka á loftmótstöðu
bílsins og auka þar með bensíneyðsl-
una.
„Aðalmarkmið bankans með þess-
ari ráðgjöf er að auka fjármála-
læsi almennings,“ segir Berghild-
ur Bernharðsdóttir, upplýsinga-
fulltrúi hjá Arion banka. Bankinn
hefur síðan í desember síðastliðn-
um boðið almenningi upp á nám-
skeiðaröðina Fjármál þar sem farið
er yfir ýmis málefni sem varða
fjármál heimilanna, svo sem mikil-
vægi markmiðssetningar í fjármál-
um, fjármálalausnir bankanna og
fleira því tengt. Að sögn Berghild-
ar hafa um þrjú hundruð manns
sótt þessa fræðslufundi. Næsta
námskeið verður haldið í kvöld í
höfuðstöðvum Arion banka í Borg-
artúni og er umræðuefnið greiðsl-
ur úr lífeyrissjóðum og hvað ber
að hafa í huga í sambandi við þær.
Á morgun verður svo námskeiðið
Lífeyrismál á mannamáli haldið á
Hótel KEA á Akureyri.
Nýlega var undirritaður sam-
starfssamningur milli Arion
banka og Stofnunar um fjármála-
læsi við Háskólann í Reykjavík og
mun stofnunin, með Breka Karls-
son forstöðumann í broddi fylking-
ar, í kjölfarið leiða fjármálanám-
skeið bankans. Ætlunin er að halda
námskeiðin víða um land og segist
Berghildur vonast til að þau verði
til þess að stuðla að því að almenn-
ingur nái betri tökum á fjármál-
um. „Við búumst fastlega við því
að þessi námskeið komi til með að
vekja mikinn áhuga hjá almenn-
ingi,“ segir Berghildur.
Íslandsbanki hefur boðið upp á
fjármálanámskeið fyrir almenn-
ing frá árinu 2005 og segir Ragn-
ar Már Vilhjálmsson, sem starfar
hjá markaðsdeild bankans, þátt-
takendur skipta þúsundum á þeim
tíma. Þór Clausen, viðskiptafræð-
ingur sem hefur meistaragráðu í
fjármálum, hefur leiðbeint á nám-
skeiðum Íslandsbanka og skipu-
lagt þau undanfarin ár.
Ragnar Már segir farið vítt og
breitt um fjármálasviðið á nám-
skeiðunum. „Þarna er verið að
kenna fólki grundvallaratriði varð-
andi skuldir, lán, rekstrarreikning
heimilisins, verðbólgu, tryggingar,
skattamál og fleira. Síðustu vikur
höfum við líka kennt fólki á Men-
iga, sem er sjálfvirkt heimilisbók-
hald sem við bjóðum upp á í heima-
bankanum okkar. Meniga hefur
vakið mikla athygli og forvitni og
þeir eru margir sem vilja kynna
sér það betur,“ segir Ragnar.
Íslandsbanki býður einnig upp á
fjármálanámskeið fyrir unglinga.
„Með þessum námskeiðum erum
við að mæta óskum viðskiptavina
okkar,“ segir Ragnar Már.
Landsbankinn og Byr bjóða
einnig upp á fjármálanámskeið á
sínum vegum. Nánari upplýsingar
um þau er að finna á heimasíðum
bankanna á netinu. - kg
Fjármálanámskeið
á vegum bankanna
Berghildur Bernharðsdóttir, upplýsinga-
fulltrúi Arion banka. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Ragnar Már Vilhjálmsson, hjá markaðs-
deild Íslandsbanka.
● NOKKUR ATRIÐI SEM GETA LÆKKAÐ BENSÍNREIKN-
INGINN
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki