Fréttablaðið - 17.03.2010, Blaðsíða 26
17. MARS 2010 MIÐVIKUDAGUR6 ● fréttablaðið ● fjármál heimilanna
Sáralitlar breytingar urðu á
á gjaldskrám íþróttafélaga
í Reykjavík frá árinu 2008
til 2009. Gjaldskrárnar hafa
lítið hækkað með tilkomu frí-
stundakortsins eins og margir
óttuðust og virðast íþrótta-
félögin halda að sér höndum.
Íþróttabandalag Reykjavíkur
hefur gert yfirlit yfir gjaldskrár-
breytingar hjá
íþróttafélögum
í borginni. Þar
kemur fram að
frá árinu 2005
til 2006 var með-
altalshækkun-
in tæp tíu pró-
sent. Það sama
á við frá árinu
2006 til 2007.
Hækkunin var um ellefu prósent
frá árinu 2007 til 2008 en einung-
is 2,3 prósent frá 2008 til 2009 og
var eitthvað um að íþróttafélög
lækkuðu verð. „Hækkunin getur í
sumum tilfellum skýrst af því að
æfingatímabilin séu að lengjast en
þrátt fyrir það varð augljós breyt-
ing í fyrra og var afar lítið um
að íþróttafélögin hækkuðu verð,“
segir Gísli Árni Eggertsson, skrif-
stofustjóri íþrótta- og tómstunda-
sviðs Reykjavíkurborgar.
Frístundakortið var fyrst tekið
í notkun haustið 2007 og fylgd-
ust menn grannt með því hvort
einhverjar hreyfingar yrðu á verð-
skrám. „Það voru haldnir fund-
ir með forsvarsmönnum íþrótta-
hreyfinganna og voru skýr tilmæli
frá Reykjavíkurborg um að kortið
myndi ekki valda verðbólgu enda
færi kjarabótin þannig fyrir lítið.
Yfir 160 félög af ýmsum toga eru
aðilar að frístundakortinu og hafa
gjaldskrár sem snúa að börnum og
unglingum lítið breyst þó svo að
kostnaður við húsnæðisrekstur,
innflutningur á vörum og annað
hafi í sumum tilfellum hækkað.“
Markmið og tilgangur frístunda-
kortsins er að öll börn og ungling-
ar í Reykjavík geti tekið þátt í upp-
byggilegu frístundastarfi óháð
efnahag og félagslegum aðstæðum.
Styrkurinn nemur 25.000 krónum
á barn á ári og hafa forráðamenn
rétt til að ráðstafa honum í nafni
barns síns til niðurgreiðslu á þátt-
töku- og æfingagjöldum. Til stóð að
styrkurinn myndi hækka í 40.000
krónur árið 2008 en vegna efna-
hagsástandsins hefur ekki orðið
af frekari hækkun.
Gísli Árni segir að algeng æf-
ingagjöld séu frá 25.000 til 50.000
króna á ári og að styrkurinn dugi
því í sumum tilfellum nokkuð langt
og jafnvel út allt árið. „Það á þó
sérstaklega við um yngstu krakk-
ana sem eru ekki farnir að æfa
mjög oft í viku.“ Heimilt er að nýta
frístundastyrkinn til niðurgreiðslu
á fleiri en einni íþróttagrein en þó
ekki á fleirum en þremur. Annirnar
eru vorönn, sumarönn og haustönn
og er undirbúningur fyrir sumar-
önnina í fullum gangi. Sumarvefur-
inn verður opnaður á itr.is 1. apríl
og verða engar hækkanir í sumar-
frístundir á vegum borgarinnar.
- ve
Gjaldskrár standa að mestu í stað
Gísli Árni
Eggertsson
Algengt er að æfingagjöld í íþróttastarfi séu frá 25.000 til 50.000 kr. á ári. Hér eru ungir handboltastrákar í Gróttu á æfingu.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM