Fréttablaðið - 17.03.2010, Side 36

Fréttablaðið - 17.03.2010, Side 36
20 17. mars 2010 MIÐVIKUDAGUR BAKÞANKAR Jóns Sigurðar Eyjólfssonar ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Frábært. Þar fór þessi nætur- leiðangur fyrir lítið... Þar með er það ljóst. Leeds er fallið! Aftur! Þetta er ótrúlegt! Ohhhh eymdin! Ansans! Ég veit ekki hvað ég á að gera til að hressa þig við! Það er ekkert hægt að gera! Við erum fallnir! Hjálpar það ef ég fer í vara- búninginn frá ´72? Við munum rísa upp aftur! Hljómar bara vel! Nú er kvöldið fyrir skólasetningu og þú ert ekki byrjaður á því sem þú áttir að lesa í sumar??? Róleg mamma. Það er ekki eins og ég þurfi að lesa allar þessar bækur. Sjáðu, hérna stendur „skyldu- lesning“. Nú kemur það... Skyldu þýðir valfrjáls, ekki satt? Það eru auðir blettir með mold undir rólunum, leikföng úti um allt og fíflar farnir að spretta um allan garð! Já. Garðurinn okkar er sá versti í bænum. Garðurinn okkar er sá besti í bænum. SAMA ÚTSÝNI, MISMUNANDI SKOÐANIR Eflaust hef ég setið of lengi á spjalli með gömlu körlunum hér í spænska þorpinu Zújar. Þeir mega nefnilega ekkert misjafnt sjá en þá grípa þeir í gömlu tugguna: „Svona vitleysa var ekki látin líðast þegar Franco var og hét. Réttast væri að flengja liðið.“ Ég er ekki orðinn hlynntur einræði en tel að flengingar gætu komið okkur á beinu braut- ina þar sem pólitísk rétthugsun afvegaleiddi okkur. Á MÍNUM sokkabandsárum var tekið í hnakkadrambið á krökkum sem voru með óknytti á almannafæri. Nú verða foreldrar feimnir við slíkar aðstæður og upphefja frekar einhver ólíkindalæti en að taka á aðstæðum. MÉR er minnisstætt þegar ég var í heita- potti einum í Reykjavík að óþekktar- æði rennur á einn drenginn. Náði hann að skvetta framan í tíu baðgesti án þess að nokkur reisti rönd við honum. „Hættu þessu nú,“ sagði faðirinn vandræða- lega en setti síðan Íslandsmet í heita- pottsköfun. FYRIR skemmstu las ég um skólameistara sem rak nem- endur eftir að þeir hefðu lengi vanvirt reglur skólans um mætingu. Ítrekanir og áminningar höfðu þá engan árangur borið. Í minni sveit hefði ákvörðunin ekki verið dregin á lang- inn. Þar þykir þægð við þá sem vanvirða reglur vera vanvirðing við þá sem hafa fyrir því að virða þær. Skilst mér að for- eldrar hafi kært skólameistarann enda kom brottreksturinn sér illa fyrir nemendurna. Vikufrí hefði hins vegar verið vel þegið. FYRR í vetur las ég um ungan handbolta- mann sem beitti bolabragði í leik. Var hann digurbarkalegur þegar blaðamenn spurðu hann út í atvikið. Forráðamenn urðu þá hneykslaðir á að svo ungur maður væri krafinn skýringa á athæfi sínu. ÞJÓÐFÉLAG sem hefur helsti mikinn skiln- ing á virðingarleysi annarra er ákjósanleg- ur leikvöllur fyrir siðlausa spretti eins og þá er Pálmi Haraldsson tók árin fyrir hrun. Nýverið sagði hann í fjölmiðlum að hann væri ábyrgur gjörða sinna. Þó ekki eins ábyrgur og þeir sem áttu að stoppa hann af. Í MÍNUM landsfjórðungi mátti finna skáld- mælta menn meðal örgustu siðleysingja. Enginn þeirra hafði þó það hugarflug að skella skuldinni á eftirlitsmanninn. EF flengingar yrðu móðins á ný er ég viss um að fólk neyddist til að hætta að slá skjaldborg um virðingarleysi og sjálfbirging. Eini vandinn er sá að ég veit ekki hver ætti að hafa auga með börnunum meðan forráðamennirnir eru flengdir. Hin eina sanna siðbót 10. HVE R VINNUR ! SENDU SMS SKEYTIÐ ESL VDB Á NÚMERIÐ 1900 ÞÚ GÆTIR UNNIÐ MIÐA Á MYNDINA! FULLT AF AUKAVINNINGUM: TÖLVULEIKIR, DVD MYNDIR, GOS OG MARGT FLEIRA FRUMSÝND 19. MARS Vinningar afhentir í ELKO Lindum. 149 kr/skeytið. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. VILTU MIÐA? BARÁTTAN MILLI MANNKYNSINS OG HINNA ÓDAUÐLEGU ER HAFIN!

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.