Fréttablaðið - 17.03.2010, Page 36
20 17. mars 2010 MIÐVIKUDAGUR
BAKÞANKAR
Jóns
Sigurðar
Eyjólfssonar
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Frábært.
Þar fór þessi
nætur-
leiðangur
fyrir lítið...
Þar með er það
ljóst. Leeds er
fallið! Aftur!
Þetta er
ótrúlegt!
Ohhhh
eymdin!
Ansans! Ég veit
ekki hvað ég á
að gera til að
hressa þig við!
Það er
ekkert
hægt
að gera!
Við
erum
fallnir!
Hjálpar það ef
ég fer í vara-
búninginn
frá
´72?
Við
munum
rísa upp
aftur!
Hljómar
bara vel!
Nú er kvöldið fyrir
skólasetningu og þú
ert ekki byrjaður á
því sem þú áttir
að lesa í
sumar???
Róleg
mamma.
Það er ekki eins
og ég þurfi að lesa
allar þessar bækur.
Sjáðu, hérna
stendur „skyldu-
lesning“.
Nú
kemur
það...
Skyldu þýðir
valfrjáls, ekki
satt?
Það eru auðir blettir með mold undir
rólunum, leikföng úti um allt og fíflar
farnir að spretta um allan garð!
Já.
Garðurinn okkar er
sá versti í bænum.
Garðurinn okkar er
sá besti í bænum.
SAMA ÚTSÝNI, MISMUNANDI SKOÐANIR
Eflaust hef ég setið of lengi á spjalli með gömlu körlunum hér í spænska þorpinu
Zújar. Þeir mega nefnilega ekkert misjafnt
sjá en þá grípa þeir í gömlu tugguna: „Svona
vitleysa var ekki látin líðast þegar Franco
var og hét. Réttast væri að flengja liðið.“ Ég
er ekki orðinn hlynntur einræði en tel að
flengingar gætu komið okkur á beinu braut-
ina þar sem pólitísk rétthugsun afvegaleiddi
okkur.
Á MÍNUM sokkabandsárum var tekið í
hnakkadrambið á krökkum sem voru með
óknytti á almannafæri. Nú verða foreldrar
feimnir við slíkar aðstæður og upphefja
frekar einhver ólíkindalæti en að taka á
aðstæðum.
MÉR er minnisstætt þegar ég var í heita-
potti einum í Reykjavík að óþekktar-
æði rennur á einn drenginn. Náði hann
að skvetta framan í tíu baðgesti án þess
að nokkur reisti rönd við honum. „Hættu
þessu nú,“ sagði faðirinn vandræða-
lega en setti síðan Íslandsmet í heita-
pottsköfun.
FYRIR skemmstu las ég um
skólameistara sem rak nem-
endur eftir að þeir hefðu
lengi vanvirt reglur skólans
um mætingu. Ítrekanir og
áminningar höfðu þá engan
árangur borið. Í minni sveit
hefði ákvörðunin ekki verið dregin á lang-
inn. Þar þykir þægð við þá sem vanvirða
reglur vera vanvirðing við þá sem hafa
fyrir því að virða þær. Skilst mér að for-
eldrar hafi kært skólameistarann enda kom
brottreksturinn sér illa fyrir nemendurna.
Vikufrí hefði hins vegar verið vel þegið.
FYRR í vetur las ég um ungan handbolta-
mann sem beitti bolabragði í leik. Var hann
digurbarkalegur þegar blaðamenn spurðu
hann út í atvikið. Forráðamenn urðu þá
hneykslaðir á að svo ungur maður væri
krafinn skýringa á athæfi sínu.
ÞJÓÐFÉLAG sem hefur helsti mikinn skiln-
ing á virðingarleysi annarra er ákjósanleg-
ur leikvöllur fyrir siðlausa spretti eins og
þá er Pálmi Haraldsson tók árin fyrir hrun.
Nýverið sagði hann í fjölmiðlum að hann
væri ábyrgur gjörða sinna. Þó ekki eins
ábyrgur og þeir sem áttu að stoppa hann af.
Í MÍNUM landsfjórðungi mátti finna skáld-
mælta menn meðal örgustu siðleysingja.
Enginn þeirra hafði þó það hugarflug að
skella skuldinni á eftirlitsmanninn.
EF flengingar yrðu móðins á ný er ég
viss um að fólk neyddist til að hætta
að slá skjaldborg um virðingarleysi og
sjálfbirging. Eini vandinn er sá að ég veit
ekki hver ætti að hafa auga með börnunum
meðan forráðamennirnir eru flengdir.
Hin eina sanna siðbót
10. HVE
R
VINNUR
!
SENDU SMS SKEYTIÐ
ESL VDB
Á NÚMERIÐ 1900
ÞÚ GÆTIR UNNIÐ
MIÐA Á MYNDINA!
FULLT AF
AUKAVINNINGUM:
TÖLVULEIKIR,
DVD MYNDIR,
GOS
OG MARGT FLEIRA
FRUMSÝND 19. MARS
Vinningar afhentir í ELKO Lindum. 149 kr/skeytið.
Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb.
VILTU
MIÐA?
BARÁTTAN MILLI
MANNKYNSINS OG
HINNA ÓDAUÐLEGU
ER HAFIN!