Fréttablaðið - 17.03.2010, Page 37

Fréttablaðið - 17.03.2010, Page 37
MIÐVIKUDAGUR 17. mars 2010 21 HVAÐ? HVENÆR? HVAR? Miðvikudagur 17. mars 2010 ➜ Tónleikar 12.15 Fríkirkjan í Reykjavík býður upp á hádegistónleika alla miðviku- daga. Umsjón með tónleikunum hefur Gerrit Schuil. Enginn aðgangseyrir og allir velkomnir. 12.30 Una Sveinbjarnardóttir fiðluleikari og Tinna Þorsteinsdóttir píanóleikari frumflytja verk eftir Unu á tónleikum í Norræna Húsinu við Sturlugötu. Einnig flytja þær verk eftir rússneska tónskáldið Alfred Schnittke. 20.00 Tónleikar til styrktar hjálpar- starfi á Haítí fara fram á Batteríinu við Hafnarstræti 1-3. Meðal þeirra sem koma fram eru Bárujárn, Caterpillar- men, DLX ATX, og Nothing Burns By Itself Tríó. Húsið verður opnað kl. 19. ➜ Sýningar Hjá Gallerí Myndmáli að Laugavegi 86 hefur verið opnuð ljósmyndasýning á verkum eftir Enrique Pacheco. Opið virka daga kl. 11-18 og lau. kl. 12-16. ➜ Uppboð Öðlingarnir efna til uppboðs á Grand Hótel við Sigtún kl. 17-19, til styrktar Neyðarmóttöku vegna nauðgana. Meðal þeirra sem koma fram og leggja til muni til uppboðs eru Rúnar Kristinsson, Björn Hlynur Haraldsson, Snorri Ásmundsson, Sverrir Þór Sverris- son og Dofri Hermannsson. ➜ Opið hús Þjóðdansafélag Reykjavíkur við Álfabakka 14a, verður með opið hús kl. 20.30-23. Stiginn dans við lifandi tónlist. Allir velkomnir. ➜ Kvikmyndir 17.15 Konfúsíusarstofnunin Norður- ljós sýnir kvikmyndina „Óþekktar Nautnir” (2002) eftir kínverska leik- stjórann Jia Zhangke. Sýningin fer fram í Öskju við Sturlugötu, stofu 132. Aðgangur ókeypis og allir velkomnir. ➜ Leikrit 20.00 Verðandi, leikfélag Fjölbrauta- skólans í Garðabæ, sýnir verkið Déjà Vu eftir Bjarna Snæbjörnsson. Sýningar fara fram í Urðabrunni, hátíðarsal FG við Skólabraut í Garðabæ. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@frettabladid.is Fimmta úthlutun úr Leikrit- unarsjóðnum Prologos, sem starfar við Þjóðleikhúsið, fór fram í síðustu viku. Að þessu sinni bárust alls 49 umsókn- ir. Fjórir höfundar hlutu styrk til handritsgerðar og fimm leikhópar fengu styrk vegna leiksmiðjuverkefna. Er þetta stærsta úthlutun úr sjóðnum frá upphafi. - pbb Fjöldi styrkja veittur úr Prologos LEIKLIST Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir leikkona er ein þeirra sem fengu styrk til leikverkaskrifa úr Sjóði Bjarna Ármannssonar og Þjóðleikhússins. Handritsstyrki hlutu eftirtaldir aðilar: ■ Hrafnhildur Hagalín með leikritið Sek. Hrafnhildur er eitt af þekktari leikskáldum samtímans. ■ Hlín Agnarsdóttir með leikritið Flóttamenn. Hlín hefur margþætta reynslu af störfum í leikhúsi, sem leikstjóri, leikskáld, kennari og dramatúrg. ■ Guðmundur Kr. Oddsson með leikritið Blindhríð. Hann útskrifað- ist á liðnu vori með próf í fræðum og framkvæmd frá Listaháskól- anum. ■ Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir með leikritið Ást. Steinunn Ólína er ein af þekktustu leikkonum sinnar kynslóðar, en kveður sér nú hljóðs sem leikskáld. Styrki vegna leiksmiðjuverkefna hlutu eftirtaldir aðilar: ■ Shalala með Inn að beini, dans- leikhússpjallþátt með tónleikaívafi, þar sem fólk úr ólíkum listgrein- um; dansi, tónlist, leiklist og bók- menntum, vinnur saman. Listrænir stjórnendur eru Erna Ómarsdóttir og Valdimar Jóhannsson. ■ Íslenska hreyfiþróunarsamsteypan, sem skipuð er dönsurunum Ásgerði Guðrúnu Gunnarsdóttur, Katrínu Gunnarsdóttur, Melkorku Sigríði Magnúsdóttur, Ragnheiði Sigurðardóttur Bjarnason og Vigdísi Evu Guðmundsdóttur, með dansleikhússýninguna Kandíland. Sýningin er unnin upp úr kon- ungaverkum Shakespeares, og að henni koma einnig leikararnir Víkingur Kristjánsson og Hannes Óli Ágústsson. ■ Krummafótur kompaní með dansleikhússýninguna Nú skal ég muna þér kinnhestinn, sem byggð verður á persónulýsingum kven- skörunga í Íslendingasögunum. Í hópnum eru fjórir dansarar: Katrín Gunnarsdóttir, Saga Sigurðardóttir, Sigríður Soffía Níelsdóttir og Snædís Lilja Ingadóttir. ■ Sigríður Soffía Níelsdóttir með Reykjavík – Bruxelles, þar sem dansarar og sirkuslistafólk frá Íslandi og Belgíu leiða saman hesta sína. ■ Kristín Eysteinsdóttir leikstjóri, leikararnir Ólafía Hrönn Jónsdótt- ir og Ólafur Darri Ólafsson og Þórarinn Eldjárn rithöfundur með spunaverkið Er ekki allt í lagi? Leikritunarsjóðurinn Prologos hefur starfað við Þjóðleikhúsið frá því í júní árið 2008, og vinnur að því að efla íslenska leikritun og nýsköp- un í sviðslistum með styrkveitingum til listamanna og öðrum verkefnum. MENNING Hvernig áttu að haga þér á opnun? MYND FRETTABLADID Lífið finnst Sviðslistahópurinn Kviss búmm bang er skipaður þremur konum sem eru allar með menntun í gjörninga/ leiklistarfræðum, myndlist og kynjafræði. Í verkum þeirra mætast því ólík sjón- armið, aðferðir og efnistök. Kvisskonur skapa heima sem eru bein framlenging á vestrænum menningar- heimi samtímans og láta þátttakendur takast á við viðfangsefni sem viðkoma neyslumenningu, kynjafræði og lífsháttum í samtíma samfélagi. Um þessar mundir sýna þær verkið GET A LIFE! sem var styrkt af Prologus og Reykjavíkurborg. Það er í formi sex vikna átaksnám- skeiðs þar sem fólk tekur þátt og fær um leið nokkurs konar instant „allt inni- falið“-pakka að nýju lífi. Í kvöld verður farið í félags- legu hliðina og fólki verður kennt að vinna með „small talk“ og mynda sér tengsla- net, „network-a“ og spjalla við mikilvægt fólk. Nám- skeiðið það kvöld endar á því að umbreytast í opnun myndlistarsýningar. Sam- fundir þessir verða kl. 18.30 í sal á annarri hæð í Rest- aurant Reykjavík (gamla Kaffi Reykjavík). Allir eru velkomnir. - pbb Fermingargjöf sem gefur Fermingarskeyti eða gjafabréf frá Hjálparstarfi kirkjunnar er gjöf sem heldur áfram að gefa. Fermingarbarnið fær skeytið eða bréfið í hendurnar en andvirðið rennur til jafnaldra fermingarbarnsins sem býr við fátækt. Sendu skeyti, það kostar 1.990 kr. Eða gefðu fermingargjafabréf að upphæð 5.000 kr. Þú færð skeytin og gjafabréfin á www.gjofsemgefur.is eða pantar þau á skrifstofunni okkar, 528 4400. Þú prentar út, sækir til okkar – eða við sendum fyrir þig. Einfalt og gleðilegt. Óskalistinn minn: Rúm Myndavél Svefnpoki iPod Vefmyndavél Handklæði Teppi Orðabók Hálsmen Svo væri gaman að fá pening og „Gjöf sem gefur“. Mig langar til að einhver sem er ekki eins heppinn og ég fái að njóta með mér. www.gjofsemgefur.is Við systkinin erum munaðarlaus. 1.990 kr. fermingarskeyti á Íslandi dugar fyrir 4 hænum. Þær gefa okkur fullt af eggjum. Eða við gætum fengið sparhlóðir. Þá færi ekki allur dagurinn í að leita að eldsneyti og við hefðum meiri tíma til að læra. 5.000 kr. gjafabréf á Íslandi myndi gefa okkur 2 geitur. Namm! Mjólk og kjöt, ekki lengur bara maísgrautur! Eða kannski reiðhjól. Þá kæmist ég á markað með uppskeruna okkar og við fengjum pening fyrir ýmsu sem okkur vantar. Óskalistinn minn: HEIMILI OG SKÓLI - LANDSSAMTÖK FORELDRA, Í SAMSTARFI VIÐ VERZLUNARSKÓLA ÍSLANDS OG MENNTA- OG MENNINGARMÁLARÁÐUNEYTIÐ BOÐA TIL MÁLÞINGS. NÝJAR INNRITUNARREGLUR Í FRAMHALDSSKÓLA ERINDI FLYTJA: · Þórir Ólafsson, mennta- og menningarmála- ráðuneytinu. · Sjöfn Þórðardóttir, formaður Heimila og skóla. · Ingi Ólafsson, skólastjóri Verzlunarskólans. · Magnús Þorkelsson, skólameistari Flensborgarskólans í Hafnarfirði. · Katrín Ósk Ásgeirsdóttir, nemandi í 10. bekk. · Pawel Bartoszek, stærðfræðikennari við Háskólann í Reykjavík. Að erindum loknum verða pallborðsumræður. Fundarstjóri: Sigurlaug Anna Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Heimila og skóla. ALLIR VELKOMNIR. Málþingið verður haldið í Verzlunarskóla Íslands nk. fimmtudagskvöld, 18. mars kl. 20. Gengið inn um inngang gengt Borgarleikhúsinu.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.