Fréttablaðið


Fréttablaðið - 17.03.2010, Qupperneq 38

Fréttablaðið - 17.03.2010, Qupperneq 38
22 17. mars 2010 MIÐVIKUDAGUR folk@frettabladid.is Öðlingarnir efna til uppboðs til styrktar Neyðarmóttöku vegna nauðgana í dag kl. 17 á Grand Hóteli í Reykjavík. Allir munu þeir leggja sitthvað persónulegt til uppboðsins. Þar verður í boði knattspyrnutreyja frá ferli fótboltamannsins Rúnars Kristinssonar, uppákoma á vegum hljómsveitarinnar Baggalúts, hefð- bundin „kvennastörf“, ódauðleg listaverk og frumsaminn skáld- skapur. Uppboðið er öllum opið og „munirnir“ eru afar fjölbreytt- ir. Allur ágóði uppboðsins rennur óskiptur til Neyðarmóttökunnar. Uppboðið er um leið lokaathöfn þeirra öðlinga sem hleyptu átak- inu af stokkunum en eru nú búnir að skila því í hendur nýrra kyndilbera. Við þetta tækifæri hlýtur einn þeirra nafnbótina Öðlingurinn 2010 fyrir að hafa vakið mesta athygli á málstaðn- um, þar sem markmiðið er barátta gegn kynbundnu ofbeldi. Aukin fræðsla er vopn í þeirri baráttu og þess vegna selja öðlingarnir bók- ina Ofbeldi á Íslandi: Á manna- máli eftir Þórdísi Elvu Þorvalds- dóttur, sem hún var í tvö ár að skrifa. Allur ágóði þeirrar sölu fer til Neyðarmóttökunnar og í söfnunarsjóð vegna samstöðu- fundar gegn kynbundnu ofbeldi sem verður haldinn á kvennafrídaginn 25. október. Tónlistarhátíðin South by south west (SXSW) fer fram um næstu helgi í Austin, Texas. Síðustu árin hafa íslenskar hljómsveitir verið duglegar að sækja þessa miklu hátíð. Í ár eru þrjú íslensk atriði meðal þeirra 1.400 sem troða upp á yfir áttatíu stöðum í borg- inni, Ólöf Arnalds, Seabear og Steed Lord. Ólöf spilar á þrenn- um tónleikum, meðal annars á tónleikum sem tímaritið Mojo og plötufyrirtækið One Little Indi- an halda. Ólöf er tilbúin með nýja plötu, Innundir skinni, sem er sett á útgáfuáætlun í vor. Seabear spilar fjórum sinnum á SXSW og er að kynna plötuna We Built a Fire, sem kemur út um þessar mundir. Svala Björgvins og félagar í Steed Lord hafa dvalið í Los Ang- eles og gefa út plötuna Heart II Heart EP bráðlega. Steed Lord spilar á þrennum tónleikum á SXSW, meðal annars á kynningu fyrir bókunarfyrirtækið AM Only, sem þau gerðu nýlega samn- ing við, og fyrir útgáfufyrirtækið Dim Mak. - drg Íslendingar á SXSW STEED LORD Eru á SXSW eins og Sea- bear og Ólöf Arnalds. Öðlingarnir efna til uppboðs HLUTI ÖÐLINGANNA Þórdís Elva Þorvalds- dóttir, forsprakki verkefnisins, og tveir Öðling- ar: Björn Hlynur Haralds- son og Sveppi. > FRAMHALD AF ZOOLANDER Leikarinn Ben Stiller hefur staðfest að hann sé að undirbúa framhald gamanmyndarinnar Zoolander. „Við höfum unnið að myndinni síðustu sex eða sjö ár. Stærsta hindrunin fyrir mig var að Drake Sather, sem bjó til persónuna, lést. Hann var góður vinur minn og það var erfitt að ímynda sér verkefnið án hans,“ sagði Stiller. Hljómsveitin Í svörtum fötum er snúin aftur eftir þriggja ára hlé. „Við erum búnir að vera að spila síðan í fyrrasum- ar en þorum formlega að viðurkenna það núna,“ segir Jónsi söngvari. „Við erum farnir að semja tónlist eins og trylltir villimenn og gefum út safnplötuna Tíma- bil á næstu dögum með helstu verkum okkar frá liðnum árum. Þarna verða líka tvö ný lög, Ást í meinum og Leiðin heim. Sveitin er bókuð í allt sumar – „sem er frábært því við erum svo helvíti spilaglaðir,“ segir Jónsi. Hvað með sam- keppnina frá ungu strákunum, eins og Ingó og Veðurguðunum. Eruð þið ekki orðnir alltof gamlir í þetta? „Nei, nei, við erum að toppa. Erum fyrst að fá bringuhár núna. En varð- andi Veðurguðina þá erum við nú ekki búnir að lána þeim beislið, bara búnir að sýna þeim hvar hesturinn er. Við þurf- um náttúrlega að sýna þeim hvernig á að gera þetta. Við stukkum inn á markað- inn þegar Land og synir, Sóldögg og Skíta- mórall voru aðal, en erum komnir á þann stað sem við erum á í dag, sem ég veit svo sem ekkert hver er. En að sjálfsögðu fögnum við nýliðun í bransanum, eins og til dæmis Hvanndalsbræðrum. Það eru sko almennilegir nýliðar, ekki búnir að spila nema tíu árum lengur en við. Tón- listarlífið væri náttúrlega eitthvað óeðli- legt ef við værum alltaf yngstir.“ Verður hart barist á sveitaballamark- aðinum í sumar? „Ekkert harðar eða linar en áður. Þetta er alltaf spurning um hver gerir skemmtilegustu lögin og hver er í mesta stuðinu. Ég tek þeirri áskorun. Ég skal snúa mig á höndum og fótum bara við að sjá fólkið á gólfinu glotta.“ - drg Fyrst að fá bringuhár núna Í SVÖRTUM FÖTUM Lána ekki beislið, sýna bara hvar hesturinn er. 1.950.0 1950 TÍMALAUSAR MILLJÓNIR F í t o n / S Í A

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.