Fréttablaðið - 17.03.2010, Page 40
24 17. mars 2010 MIÐVIKUDAGUR
SÍÐUSTU SÝNINGAR
NÝTT Í BÍÓ!
SÍMI 564 0000
12
12
10
16
16
14
L
10
THE GREEN ZONE kl. 5.30 - 8 - 10.30
THE GREEN ZONE LÚXUS kl. 5.30 - 8 - 10.30
THE LIGHTNING THIEF kl. 5.40
LEGION kl. 8 - 10.15
SHUTTER ISLAND kl. 8 - 11
LOFTKASTALINN SEM HRUNDI kl. 5 - 8 - 11
ALVIN OG ÍKORNARNIR 2 kl. 3.45 íslenskt tal
AVATAR 3D kl. 4.40 Síðustu sýningar
SÍMI 462 3500
12
10
12
14
L
THE GREEN ZONE kl. 8 - 10.30
THE GOOD HEART kl. 5.50 - 8 - 10.10
PRECIOUS kl. 5.30 - 10.30
LOFTKASTALINN SEM HRUNDI kl. 6 - 9
MAMMA GÓGÓ kl. 6 Síðustu sýningar
SÍMI 530 1919
10
16
16
10
L
THE GOOD HEART kl. 5.50 - 8 - 10.10
FROM PARIS WITH LOVE kl. 5.50 - 8 - 10.10
LEGION kl. 8 - 10.15
THE LIGHTNING THIEF kl. 5.30 - 8 - 10.30
NIKULÁS LITLI kl. 6
SÍMI 551 9000
.com/smarabio
AÐDÁENDUR GETA UNNIÐ BÍÓKORT ÚT ÁRIÐ,
BOÐSMIÐA Á FORSÝNINGAR O.M.FL.
12
16
14
16
THE GREEN ZONE kl. 8 - 10.10
FROM PARIS WITH LOVE kl. 8 - 10
LOFTKASTALINN SEM HRUNDI kl. 5.20
SHUTTER ISLAND kl. 5.20
Þ.Þ. - Fbl
T.V. - kvikmyndir.isÓ.H.T. - Rás2
T.Þ.Þ. - DV Ó.H.T. - Rás2
H.G. - Mbl.
★★★
S.V. - MBL
★★★
Ó.H.T. - Rás-2
★★★
-Dr. Gunni, FBL
FRÁ LEIKSTJÓRANUM PAUL
GREENGRASS KEMUR EIN BESTA
SPENNUMYND ÁRSINS
HEIMSFRUMSÝNING
EMPIRE
ROGER EBERT
-S.V., MBL
116.000 GESTIR!
FRÁBÆR MYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA
Stórkostlegt mynd frá DISNEY fyrir alla fjölskyldunaÁLFABAKKA KRINGLUNNI
12
12
12
L
L
L
L
L
L
L
L
L
L
L
L
10
AKUREYRI
THE BLIND SIDE kl. 8 - 10:30
AVATAR 3-D kl. 10:20
ALICE IN WONDERLAND kl. 8
THE BLIND SIDE kl. 5:20 - 8 - 10:40
ALICE IN WONDERLAND 3D
kl. 5:40(3D) - 8(3D) - 10:20(3D)
ALICE IN WONDERLAND kl. 5:40
THE REBOUND kl. 8 - 10:20
BROTHERS kl. 8
BROTHERS kl. 5:50 - 8 - 10:20
VALENTINE ‘S DAY kl. 8 - 10:40
SHERLOCK HOLMES kl. 10:20
PLANET 51 M/ ísl. Tali kl. 5:50
BJARNFREÐARSON kl. 5:50
THE BLIND SIDE kl. 5:50D - 8:10D - 10:50D
ALICE IN WONDERLAND 3D
kl. 5:50(3D) - 8:10(3D) - 10:30(3D)
SHUTTER ISLAND kl. 8 - 10:50
INVICTUS kl. 5:30 Síðasta sýn. helgi
VANN ÓSKARINN
BESTA LEIKKONA Í AÐALHLUTVERKI
S A N D R A B U L L O C K
TEKJUHÆSTA MYND SÖNDRU BULLOCK FYRR OG SÍÐAR
- bara lúxus
Sími: 553 2075
GREEN ZONE kl. 5.45, 8 og 10.15-P 12
FROM PARIS WITH LOVE kl. 5, 8 og 10 16
SHUTTER ISLAND kl. 7 og 10 16
IT’S COMPLICATED kl. 5.35 12
T.V. -KVIKMYNDIR.ISÁ.J. -DV
S.V. -MBL Ó.H.T. -RÁS2
T.V. -KVIKMYNDIR.IS
FRÁ LEIKSTJÓRA TAKEN
POWERSÝNING
KL. 10.15
Hljómsveitin Mínus hefur kveikt á hreyflunum
aftur. „Við komum okkur fyrir í hlöðu á Húsafelli og
erum búnir að vera að vinna þar í þrjár vikur. Við
stefnum að því að taka upp grunna að nýrri plötu
í apríl,“ segir Bjössi trommari, sem er kominn frá
Danmörku til að vinna með félögum sínum. Nýja
platan verður fimmta plata Mínuss. Sú síðasta, The
Great Northern Whalekill, kom út 2007.
Bjössi segir sveitasæluna leggjast vel í rokkar-
ana. „Við hittum Pál á Húsafelli og fengum að spila
á steinhörpuna. Hann gaf okkur stein. Að fara svona
út á land og spila í stórhríð og finna fyrir snjónum
og náttúrunni hefur vissulega áhrif á sköpunar-
gáfuna. Nýja efnið er mjög frábrugðið því sem við
höfum gert, það er mikil þróun í gangi og við erum
spenntir yfir þessu. Við stoppum oft þegar við erum
að spila og spyrjum hvort við megum gera þetta
sem við erum að gera. Þetta eru lengri lög og þetta
„grúfar“ meira. Við erum búnir að setja okkur þá
vinnureglu að það verður ekki eitt „tjugga tjugga“
metal-riff á plötunni. Við viljum fara frá þeirri
klisju.“
Í Danmörku hefur Bjössi verið að vinna og njóta
þess að vera fjölskyldufaðir. „Ég er að leita mér
að námi fyrir næsta vetur. Ég tek þetta bara á
rólegheita hraða,“ segir hann.
Fyrstu tónleikar Mínuss í langan tíma verða á
Batteríinu, áður Organ, á föstudagskvöldið. „Biogen
spilar með okkur. Við vildum fá raftónlistarmann
því við vildum hafa okkar sett óhreyft. Þetta verða
langir tónleikar, við spilum bæði nýtt efni og
gamalt. Þetta verður flott gigg. Daginn eftir fljúg-
um við til Danmerkur og spilum á Íslandsbryggju á
stað sem er kallaður Færeyingahúsið.“ - drg
Mínus í hlöðu á Húsafelli
HLJÓMSVEITIN MÍNUS Ekki eitt metal-riff á nýju plötunni.
Kvikmyndir ★★★★
Shutter Island
Leikstjóri: Martin Scorsese
Aðalhlutverk: Leonardo DiCaprio,
Mark Ruffalo, Ben Kingsley
Árið er 1954. Á hinni einangruðu
Shutter-eyju er rekið öryggisgeð-
sjúkrahús fyrir snældubilaða og
óforbetranlega ofbeldisfauta og
morðingja. Þegar einn vistmann-
anna hverfur sporlaust er alríkis-
lögreglan kölluð til og á staðinn
mæta tveir vaskir lögreglumenn,
Teddy og Chuck, sem Leonardo
DiCaprio og Mark Ruffalo leika.
Stormur er í aðsigi þannig að
allt útlit er fyrir að lögreglumenn-
irnir verði veðurtepptir á þess-
um undarlega stað þar sem starfs-
fólkið er eiginlega skuggalegra en
vistmennirnir.
Þrúgandi andrúmsloft einangr-
unar og annarleika hvílir yfir
hælinu og sturlunin sem svífur
yfir vötnum er svo þrúgandi að
ekki líður á löngu þar til aðalhetjan
okkar, hann Teddy, fer að efast um
geðheilsu sína og hálfgert ofsóknar-
æði rennur á hann þegar hann
áttar sig á því að hann er genginn
í gildru geðlæknanna, sem stunda
hryllilegar tilraunir á sjúklingum
sínum, og á vart afturkvæmt.
Leonardo DiCaprio er öflugur
leikari sem gerir Teddy stórfín
skil en þessi glöggi lögreglumað-
ur er með allskyns beinagrindur
í farteskinu og því veikur fyrir
þegar hann er kominn á þennan
sjúka stað sem er tíu sinnum verri
en Gaukshreiðrið. Hann syrgir enn
eiginkonu sína sem brann inni eftir
að brennuvargur kveikti í heimili
þeirra og minningar úr stríðinu
sækja á hann en hann var í hópi
bandarískra hermanna sem frels-
uðu gyðinga úr útrýmingarbúð-
um nasista. Það er ekki nóg með
að Teddy sjái samsvörun milli
læknanna og hrottanna sem dund-
uðu sér við að murka lífið úr gyð-
ingum í Dachau heldur er hann
fyrst og fremst kominn til þess
að finna manninn sem hann telur
bera ábyrgð á dauða konu sinnar
og mun vera vistaður með leynd á
eyjunni.
Martin Scorsese er besti kvik-
myndaleikstjóri í heimi. Um það
þarf ekkert að þræta sérstaklega
og í þessari mynd sýnir hann alls
konar meistaratakta og eflist með
hverjum ramma sem færir Teddy
fjær raunveruleikanum og nær
botnlausri geðbilun. Áhorfand-
inn sogast því óhjákvæmilega inn
í furðuheim hælisins, sundlar á
köflum yfir gamalreyndum leik-
fimiæfingum með tökuvélina sem
skekkja sýn hans og Teddys á raun-
veruleikann þannig að það er ekki
hægt að segja annað en að maður
þjáist með Teddy greyinu.
Scorsese stýrir hér frábærum
hópi leikara með nýja óskabarnið
sitt, DiCaprio, í fararbroddi. Ben
Kingsley, Max Von Sydow og Ted
Levine klikka ekki og hinn sorg-
lega sjaldséði Mark Ruffalo er
flottur að vanda.
Plottið er eiginlega eini veikleiki
myndarinnar þar sem framvindan
er nokkuð dæmigerð fyrir myndir
um fólk sem telur sig vera að missa
vitið og endirinn er sorglega fyrir-
sjáanlegur þótt leiðin að honum sé
heilmikil veisla fyrir augað. Scor-
sese er því í miklu stuði á Shutter-
eyju þótt hann hafi oft verið miklu
betri. Þórarinn Þórarinsson
Niðurstaða: Scorsese er klárasti
leikstjóri í heimi og sýnir hér eiginlega
allar sínar bestu hliðar en sagan er því
miður veikasti hlekkur Shutter Island
þannig að í lokin er boðið upp á hálf
vandræðalega lausn á annars frábærri
mynd.
Leo lendir í Gaukshreiðri
„Þetta er örugglega alltof mikið til
að gefa út en ég ætla samt að gera
það,“ segir Dalvíkingurinn Daði
Jónsson, eða Dathi, sem ætlar að
gefa út fjórar plötur á þessu ári. Sú
fyrsta, Self Portrait, er nýkomin
út.
„Um áramótin fyrir ári síðan
setti ég mér áramótaheit um að ég
ætlaði að byrja að taka upp þrjá
diska á síðasta ári,“ segir Daði.
„Ég byrjaði á þeim fyrsta í febrú-
ar og kláraði hann í október. Ég
byrjaði á öðrum í september og á
þriðja 30. desember þannig að ára-
mótaheitið stóðst. Ég held að það
sé það eina í lífi mínu sem hefur
staðist.“
Daði, sem er 36 ára, bjó í Eng-
landi í tíu ár og safnaði þar bunka
af lögum í sarpinn. Hann flutti
heim til Dalvíkur fyrir þremur
árum og var í nokkurn tíma að
finna rétta mannskapinn til að
taka upp með honum tónlist. Eftir
að hann fékk að taka upp í nýju
hljóðveri Gunnlaugs Helgasonar,
bassaleikara í Pöpunum sem býr
á Ólafsfirði, var ekki aftur snúið.
Nýja platan og sú næsta eru sam-
hangandi og fjalla þær um myrku
hliðarnar á tilverunni. Þriðja plat-
an verður samstarfsverkefni sem
nefnist The Two Trees sem fjall-
ar um umhverfismál en á þeirri
fjórðu verður ástin í fyrirrúmi.
„Ég er alveg með tilbúnar átta
plötur í viðbót. Ég verð bara að
koma þessu frá mér svo ég geti
farið að „funkera“ almennilega,“
segir þessi afkastamikli tónlist-
armaður. Hægt er að kaupa nýju
plötuna í verslun 12 Tóna og á net-
síðunni Gogoyoko.com. - fb
Fjórar plötur á einu ári
DATHI Dalvíkingurinn Daði Jónsson
ætlar að gefa út fjórar plötur á þessu ári.