Fréttablaðið - 17.03.2010, Page 43
SAMFÉLAGSVERÐLAUN
Samfélagsverðlaunin - Slysavarnafélagið Landsbjörg
Meirihluti starfs björgunarsveitanna fer fram innanlands en Íslenska alþjóðabjörgunarsveitin er þó til taks þegar neyðarástand skapast í öðrum löndum. Sú sveit
uppskar aðdáun ekki bara hér á landi heldur víða um lönd þegar hún brást skjótt við eftir jarðskjálftana á Haítí í janúar síðastliðnum.
Tilnefnd: Kvenfélagasamband Íslands, Bergmál, Vímulaus æska, Hjálparstarf kirkjunnar
Til atlögu gegn fordómum - Hugarafl
Í Hugarafli starfa saman á jafnréttisgrundvelli notendur geðheilbrigðisþjónustunnar
sem eru í bata og fagfólk.
Tilnefnd: Adrenalín gegn rasisma, Kristín Vilhjálmsdóttir / Borgarbókasafn, Páll Óskar
Hjálmtýsson, Þórdís Elva Þorvaldsdóttir
Heiðursverðlaun - Jón Böðvarsson
Jón Böðvarsson sagnfræðingur, kennari og sögumaður hlaut heiðursverðlaun fyrir
ómetanlegt framlag sitt við að kynna Íslendingasögur fyrir samborgurum sínum.
Frá kynslóð til kynslóðar - Gauraflokkurinn í Vatnaskógi
Drengjum með ADHD býðst sumarbúðadvöl í sérstökum flokki fyrir kraftmikla stráka.
Tilnefnd: Hallfríður Ólafsdóttir, Laila Margrét Arnþórsdóttir, Rauði kross Íslands
og Öldrunarráð, Tónstofa Valgerðar
Hvunndagshetjan - André Bachmann
André Backmann hefur glatt samferðafólk sitt í áratugi. Einkum var hann heiðraður
fyrir framgöngu sína við að halda á hverju ári jólaskemmtun fyrir fatlaða þar sem
vinsælustu skemmtikraftar þjóðarinnar koma fram.
Tilnefnd: Lovísa Christiansen, Jakob Einar Jakobsson, Jóna Berta Jónsdóttir,
Embla Ágústsdóttir
Fréttablaðið vill óska landsmönnum til hamingju með alla þá
sem tilnefndir voru til Samfélagsverðlauna Fréttablaðsins í ár.
Þau standa fyrir dýrmætt og öflugt starf þúsunda landsmanna
sem getur skipt sköpum í lífi fólks. Um leið og Fréttablaðið
óskar sigurvegurum og tilnefndum til hamingju, vill það þakka
lesendum fyrir þann metfjölda tilnefninga sem þeir sendu og
gera þessi verðlaun að veruleika.
SIGUR SAMFÉLAGSINS!
VINNINGSHAFAR SAMFÉLAGSVERÐLAUNA FRÉTTABLAÐSINS 2010