Fréttablaðið - 18.03.2010, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 18.03.2010, Blaðsíða 44
36 18. mars 2010 FIMMTUDAGUR BAKÞANKAR Dr. Gunna ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Ósýnilegi maðurinn - Á efri árum... Blessaður maður! Ein- hverjir góðir menn hérna í kvöld? Njaa... eitthvað lítið sem þú þekkir. En mér fannst ég kannast við þessa tvo fyrir aftan þig. Neibb! Þetta eru Frakkar! En samt... ég hef séð þá einhvern tímann fyrir löngu síðan! Á nú að fara að lesa skyldu- námið á síðustu stundu? Jebb. Hvernig var í skólanum í dag Solla? Frábært! Ég fékk Valentínusardags- gjöf frá öllum í bekknum mínum! Hvernig var skóladag- urinn þinn Hannes? Ömurlegur! Ég fékk Valentín- usardagsgjöf frá öllum í bekknum mínum. Líka stelp- unum. Ó. Ég held ég sé eitthvað slappur! Ísland er eyja. Það búa örfáir hérna. Það er glatað veður 75 prósent af árinu. Það er auðvelt að verða samdauna grámyglunni og veslast upp í vonleysi og væli. Það þarf átak til að komast héðan og þá fer maður á hausinn um leið og maður fær sér kaffibolla og samloku í útlöndum. Takk æðislega, sveigjanlega íslenska króna! VIÐ þetta má svo bæta að það er frábært að vera Íslendingur og alveg þrælmagnað að búa á Íslandi! ÞAÐ verður ferðast innanlands í sumar. Sem betur fer er allt fullt af ein- hverju skemmtilegu til að gera og sjá. Það þarf stórhug og áræðni til að koma einhverju upp sem trekkir að og rífur upp hversdagsleikann. Íslenska fortíðin, þegar lífið gekk út á það eitt að vinna, hefur yfir sér áru doða og samdauns. Nú í kreppunni kemur í ljós að maður er manns gaman og það ber að hlúa að því sem glæðir dagana lífi. Á SUNNUDAGINN skrapp ég um Suðurnesin. Víkinga- heimar, Rokkheimar og Skessan er allt frábært stöff í Keflavík. Saltfisk- setrið í Grindavík líka. Svo var Guðbergsísk upplifun að sjá krakka hanga í sjoppunni og strák með træbaltattú á hálsinum spila í Rauðakrosskassanum. Um allt land eru mörg frábær veitingahús, hin ýmsustu „setur“ og ísbúðir í fjósum, svo ekki sé nú minnst á náttúruna, sem er bara þarna og getur ekki annað. Allt þetta og heilmargt fleira glæðir hversdaginn lífi. AÐ þessu sögðu skil ég ekki hvað bygginga- fulltrúi borgarinnar er að böggast á Hrafni Gunnlaugssyni. Hvílík skammsýni og grá- mennska! Undraheimur Hrafns á Laugar- nestanga er flottasti blettur Reykjavíkur og hann ætti frekar að fá fjárstyrk frá borg- inni en skammarbréf. Skilur þetta lið ekki að Hrafn er hugsjónamaður á borð við Sam- úel Jónsson í Selárdal og er að byggja upp stórkostlegt ævintýraland fyrir framtíðina? Ég fór þarna einu sinni með strákinn minn og það var algjörlega frábær upplifun. Partur af fjörinu var að vera með hjartslátt yfir því að Hrafn myndi birtast kolbrjál- aður og reka okkur burtu, en svo er þetta bara rosalega flott og spennandi svæði sem listamaðurinn hefur nostrað við að koma upp. Góð lending í þessu máli þætti mér að Hrafnsheimar yrðu einhvern veginn inn- vinklaðir í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn svo að sköpunarkraftur Hrafns mætti nýt- ast almenningi. Það á ekki að kæfa snillinga með reglugerðafargani. Það á ekki að leggja stein í götu þeirra sem vilja rífa okkur úr grámyglulega íslenska hversdagsleikanum. Það á ekki að stuðla að doða. Burt með þig, grámygla Peaches í viðtali Allt um Reykjavik Fashion Festival og rokkgyðjan föstudagur fylgir Fréttablaðinu á morgun
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.