Fréttablaðið - 14.04.2010, Blaðsíða 8
14. apríl 2010 MIÐVIKUDAGUR
FRÉTTASKÝRING: Xxxxxxx
8
Hvernig leysir maður verkefni sem hefur aldrei
verið unnið áður og verður aldrei unnið aftur?
Í fyrirlestrinum munu verkfræðingarnir Sigurður
Ragnarsson og Pétur Már Ómarsson fjalla um
lausn þessa verkefnis sem er einstakt í íslenskri
byggingarsögu og e.t.v. það flóknasta sem nokkru
sinni verður byggt á Íslandi.
Fyrirlesturinn er öllum opinn. Aðgangur er ókeypis.
Fyrirlestur á vegum MPM-náms við HÍ.
Fyrirlesturinn verður haldinn í Námu,
húsnæði Endurmenntunarstofnunar HÍ,
fimmtudaginn 15. apríl kl. 12.00.
www.mpm.is
Glerhjúpur Hörpu
– á mörkum þess gerlega
PIPA
R
\TB
W
A
- SÍA
Siðvæðingar er þörf í
íslensku samfélagi, segir
vinnuhópur um siðferði sem
kemst að þeirri niðurstöðu
að siðferði og starfshættir
hafi víða verið bágbornir í
aðdraganda bankahrunsins.
Sú staðreynd að starfsháttum og sið-
ferði var víða ábótavant í íslensku
samfélagi er hluti af margþætt-
um skýringum á því hve illa fór á
Íslandi. Þetta er niðurstaða vinnu-
hóps rannsóknarnefndarinnar um
siðferði og starfshætti. „Þetta á við
jafnt í stjórnmálum og viðskiptalífi
sem í stjórnsýslu og fjölmiðlum,“
segir í lokaorðum skýrslu hópsins.
Hópurinn skoðaði siðferði fjármála-
lífsins, stjórnsýslu og stjórnmál auk
þess að líta á samfélagið og umræð-
una í því. Alls staðar var pottur
brotinn út frá sjónarhóli siðferðis.
Nefndin skoðaði ítarlega fyrir-
tækjamenningu bankanna og kemst
í stuttu máli að þeirri niðurstöðu að
þar hafi siðferðislegum þáttum og
dygðum verið kastað fyrir róða.
Hópurinn sem stýrði bönkunum hafi
„fallið í nánast allar freistingar sem
á vegi hans urðu“. Sú grundvallar-
setning einkavæðingar að einstakl-
ingar fari betur með eigið fé en ann-
arra hafi ekki reynst sönn. Allt hafi
miðast við það að draga úr ábyrgð
þeirra sem tóku áhættu, og þau
rof hafi haft skelfilegar afleiðing-
ar fyrir fjármálakerfið og almenn-
ing um heim allan. Hvatakerfi hafi
miðast við skammtímagróða stjórn-
enda og eigenda á kostnað almenn-
ings. Eiginhagsmunir stjórnenda
hafi ráðið mestu, gróðahyggjan hafi
verið taumlaus.
Regluverðir gleðispillar
Vinnuhópurinn skoðaði innri starfs-
hætti og eftirlit fjármálastofnan-
anna og kemur þar í ljós að þeir
sem sinntu starfi regluvarða og
aðrir sem koma að innra eftirliti
nutu lítillar virðingar stjórnenda og
annarra starfsmanna. Hvorki hafi
lagareglum verið fylgt né siðferð-
islegum viðmiðum um heilbrigða
stjórnunarhætti.
Reglubókum var ekki fylgt og
almennt litið á regluverði sem
gleðispilla. Sigurjón Geirsson hjá
innri endurskoðun Landsbankans
segir svo frá að menn hafi litið á
reglur sem eitthvað sem hægt var
að „chall engera“, að virðing hafi
ekki verið borin fyrir þeim heldur
hafi menn frekar verið viljugir að
„þróa reglur … þróa túlkun á reglum
þannig að menn kæmust … svona
eins og í fótbolta, menn reyndu að
tækla án þess að vera dæmdir.“
Regluverðir störfuðu lögum sam-
kvæmt í bönkunum en þeir eiga
að gæta þess að farið sé eftir gild-
andi lögum og góðum starfsháttum.
Almennt var lítill áhugi á störfum
þeirra. Einn þeirra, Arnar Þór Jóns-
son hjá Íslandsbanka, lýsir starfinu
eins og að róa í árabát á móti olíu-
skipi. Hann hafi verið tekinn á tepp-
ið af bankastjóra fyrir óhlýðni eftir
að hafa ætlað sér að skoða vandlega
pappíra sem ætlast var til að hann
skrifaði undir.
Slakt siðferði bankamanna birt-
ist víðar að mati vinnuhópsins. Þeir
gerðu almenningi erfitt fyrir að
átta sig á starfsháttum. Stjórnend-
ur voru á gríðarlega háum launum,
óhóf einkenndi lífsstíl þeirra eins og
hann blasti við almenningi.
Hugmyndafræði afskiptaleysis
Vinnuhópurinn bendir á að gegndar-
laus vöxtur bankanna hafi verið lát-
inn óáreittur vegna þess að ríkjandi
hugmyndafræði í samfélaginu hafi
verið hugmyndafræði afskiptaleys-
is. Í anda hennar hafi verið áhersla á
að íþyngja ekki fjármálafyrirtækj-
um með ströngu eftirliti. „Fram-
takssömum og reynslulitlum“ ein-
staklingum hafi verið falin mikil
ábyrgð og gefið svigrúm til athafna.
Hæfileikum þeirra hafi svo verið
lýst í ræðu og riti og eru þær lýsing-
ar til marks um mikla drambsemi.
Lagt var traust á það „að einka-
aðilar myndu ástunda sjálfseftir-
lit“. Ráðherrar og embættismenn
sinntu þannig ekki hlutverki sínu
og Alþingi gætti ekki almannahags-
muna eins og því ber skylda til.
Aðrir geirar samfélagsins brugð-
ust einnig, fjölmiðlar og háskóla-
samfélagið. Gagnrýni á fjármála-
heiminn féll í grýtta jörð og þjóðin
var blind á hættumerkin. „Skort-
ur á hófsemi og ráðdeild í íslensku
samfélagi, ásamt með ógagnrýn-
inni sjálfsánægju meðal þjóðarinn-
ar, bjuggu á sinn hátt í haginn fyrir
þá atburðarás sem hér varð í banka-
hruninu.“ sigridur@frettabladid.is
Bankastjórnendur féllu í allar freistingar
STJÓRNENDUR BANKANNA Sigurður Einarsson, stjórnarformaður Kaupþings, Halldór Kristjánsson, bankastjóri Landsbankans, og
Bjarni Ármannsson, bankastjóri Íslandsbanka, á ráðstefnu Fjármálaeftirlitsins 2005. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
„Ég fékk að fara í eina svona ferð, það var einhver stjórnendahópur,
og ég hef aldrei upplifað mig eins og kóng en það var iPod þegar
þú vaknaðir og það var bók þegar þú fórst að sofa og viskíflaska
þegar þú vaknaðir. Þetta var samt „low-budget“ sko.“
KRISTJÁN GUNNAR VALDIMARSSON
FORSTÖÐUMAÐUR SKATTARÁÐGJAFAR LANDSBANKANS
„En það var aldrei meðvindur alltaf mótvindur“ … „Það eru fleiri í
ferða- og skemmtanadeild hjá bankanum heldur en í innri endur-
skoðun og regluvörslu og í raun og veru áhættustýringu“ [13 á móti
1 regluverði innsk. Fréttablaðs].
KRISTINN ÖRN STEFÁNSSON
REGLUVÖRÐUR Í GLITNI
„Það mátti ekki vera til staðar í gamla bankanum, ég stakk upp á
því 2006 við Sigurjón [Þ. Árnason] að hafa reglur um gjafaferðir en
hann vildi það ekki af því að það takmarkaði kannski hans laxveiði-
heimildir.“
ÞÓRÐUR ÖRLYGSSON
REGLUVÖRÐUR Í LANDSBANKANUM
Úr skýrslu rannsóknarnefndar
Hagsmunir viðskiptalífsins voru
teknir fram yfir fræðilega hlut-
drægni í skýrslum háskólamanna í
aðdraganda bankahrunsins. Vinnu-
hópurinn um starfshætti og siðferði
segir að skýrsla Frederics Mishkin,
prófessors við Columbia-háskóla, og
Tryggva Þórs Herbertssonar, þáver-
andi forstöðumanns Hagfræðistofn-
unar Háskóla Íslands, frá árinu 2006
hafi beinlínis unnið íslensku samfé-
lagi ógagn.
Skýrslan, sem samin var að
beiðni Viðskiptaráðs Íslands, fjall-
aði um fjárhagslegan stöðugleika á
Íslandi. Hún birtist í framhaldi af
tveimur erlendum skýrslum sem
gagnrýndu íslensku bankana. Bent
er á að höfundarnir hafi ekki lagst
í sjálfstæðar rannsóknir á bönkun-
um. Þeir hafi tekið gagnrýnislaust
upp áhættumat Fjármálaeftirlits-
ins og fullyrt að ólíklegt væri að
alvarleg vandamál myndu steðja að
íslenska bankakerfinu.
Vinnuhópurinn bendir á að skýrsl-
an hafi haft skaðleg áhrif því hún
fegraði stöðu íslensku bankanna á
viðkvæmum tímum. Í kjölfarið hafi
þeir átt greiðari leið að erlendu fjár-
magni, orðið stærri og erfiðara að
taka á þeim.
Vinnuhópurinn kemst að þeirri
niðurstöðu að hættan á hagsmuna-
árekstrum í háskólasamfélaginu
aukist með auknum styrkveitingum
einkaaðila. Gagnrýnt er hversu lítið
háskólasamfélagið tók þátt í opin-
berri umræðu í aðdraganda hruns-
ins. Fram kemur að styrkveitingar
viðskiptalífsins til háskólanna hafi
hugsanlega dregið úr hvata fræði-
manna til gagnrýninnar umræðu.
- sbt
Fræðimenn brugðust í aðdraganda hrunsins:
Lofrolla varð dýrkeypt
FREDERIC
MISHKIN
TRYGGVI ÞÓR
HERBERTSSON