Fréttablaðið


Fréttablaðið - 14.04.2010, Qupperneq 16

Fréttablaðið - 14.04.2010, Qupperneq 16
 14. apríl 2010 MIÐVIKUDAGUR FRÉTTASKÝRING: Xxxxxxx 16 F A B R I K A N Mannfæð og fjárskortur stóðu Fjármálaeftirlitinu helst fyrir þrifum á árun- um fyrir hrun, segir Jónas Fr. Jónsson, fyrrverandi forstjóri eftirlitsins. Hann sér eftir að hafa ekki reynt að stækka og efla eftirlitið hraðar en segir eigendur og stjórnendur bankanna bera höfuðábyrgð á hruni þeirra. Einn þeirra sjö sem rannsóknar- nefnd Alþingis segir að hafi gerst sekur um vanrækslu í aðdraganda hrunsins er Jónas Fr. Jónsson. Hann var forstjóri Fjármálaeftir- litsins (FME) frá miðju ári 2005 til 1. mars 2009. Þú ert sakaður um vanrækslu í skýrslu rannsóknarnefndarinnar. Vanræktir þú starf þitt sem for- stjóri FME? Nei, ég tel mig ekki hafa gert það. Mér finnst þetta mjög ósann- gjörn niðurstaða og finnst hún ekki taka neitt tillit til þeirra aðstæðna sem voru hjá eftirlitinu þegar ég kom þar til starfa og þeirra breyt- inga sem ég gerði á meðan ég var þarna. Ég fjölgaði starfsmönnum, þeir voru 35 þegar ég kom á meðan fjármálafyrirtækin voru 38. Ég fjölgaði þeim í 56 fastráðna og yfir 60 með lausráðnum. Ég náði að auka fjármagn eftirlitsins úr því að vera 300 milljónir í 950. Ég vann í að breyta innra skipulagi og náði að stytta málshraða verulega. Ég setti mikið prógramm í gang til að bæta upplýsingatæknikerfi og ýmislegt annað. Á sama tíma erum við að eiga við markað sem er mjög kvikur, stærstu og öflugustu fyrir- tæki landsins. Mér finnst þetta starf sem var unnið ekki metið að verðleikum. Bankarnir voru á móti eflingu FME Þú ert gagnrýndur fyrir að hafa ekki brugðist við því að FME var í fjársvelti og gat því ekki vaxið. Hvers vegna sýndir þú ekki ráða- mönnum svart á hvítu nauðsyn þess að efla eftirlitið verulega eftir að þú komst til starfa? Ég gerði það, ég skilaði reglu- lega skýrslum til Alþingis um þetta efni. Vandamálið var að á árunum 2003 til 2005 margfölduðust bank- arnir að stærð. Á sama tíma, áður en ég tók við sem forstjóri, fjölg- aði starfsmönnum Fjármálaeftir- litsins um þrjá. Þarna sat eftirlit- ið eftir og við þurftum að reyna að vinna þetta upp. Ég er ekki viss um að það hafi verið hægt að ná því í gegn að stækka eftirlitið hraðar en við gerðum. Það er, eftir á að hyggja, eitthvað sem ég sé eftir að hafa ekki reynt. Ég hefði átt að reyna að stækka enn þá meira og enn þá hraðar. Bankarnir voru mikið á móti því að eftirlitið fengi aukið fjármagn eða auknar vald- heimildir, sérstaklega í upphafi. Í skýrslunni kemur fram að starfsmannavelta FME hafi verið afar mikil, starfsmenn embættisins hafi verið reynslulausir og í raun varla átt séns í sérfræðinga bank- anna. Ert þú sammála þessu? Starfsmennirnir voru ekki reynslulausir, en þeir voru oft á tíðum reynsluminni. Fólk var keypt út úr eftirlitinu í miklum mæli. En við vorum með stíft ráðningar- ferli og vorum að ráða gott fólk. Það vantaði kannski upp á reynsl- una, en það var verið að þjálfa fólkið mjög hratt, og við vorum með ákveðið prógramm í gangi til þess. Þetta var sú staða sem við vorum í. Hefðir þú átt að sjá veikleika fjármálakerfisins, vara stjórnvöld við og annaðhvort benda á leiðir til úrlausnar eða koma að vinnu við það ásamt stjórnvöldum? Fjármálaeftirlitið lýtur ákveðn- um lögum. Hlutverk þess er að gæta þess að fjármálafyrirtæk- in fari að lögum, og á meðan þau brjóta ekki lög er erfitt um vik að gera eitthvað. Í þessu tilviki hrundi kerfið. Það var eitthvað sem við sáum ekki fyrir, en við vorum í því að afla upplýsinga. Eins og fram kemur í skýrslunni var viðbúnað- arhópur okkar á fullu að safna upp- lýsingum. Skýrsluhöfundar segja að hóp- urinn hafi ekki metið stöðuna rétt. Við reyndum að lesa út úr þessu eins og við best gátum, en það virðist vera samkvæmt þess- ari skýrslu að við höfum hreinlega verið blekkt. Rangar upplýsingar hafi farið til stjórnvalda og eftir- litsaðila. Það er mjög alvarlegur hlutur, því það þýðir að stjórnvöld hafi verið í blindflugi. Gerðuð þið nóg af því að sann- reyna upplýsingar frá fyrirtækj- unum, til dæmis með því að fara í vettvangsrannsóknir? Hér komum við aftur að starfs- mannaveltunni. Vettvangsrann- sóknir eru tímafrekar og kosta mannafla. Það var mikill vilji til að auka þessar rannsóknir, eins og sjá má í ársskýrslu eftirlitsins 2007. Á árunum 2007 og 2008 fjölguðum við mikið eftirlitsheimsóknum. Gagnrýni á álagspróf lítið rökstudd Í skýrslunni er hörð gagnrýni á álagspróf FME, og að stofnunin hefði haldið áfram að nota þau þrátt fyrir gagnrýni, til dæmis frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Þá er gagnrýnt að FME hafi treyst um of á að álagsprófin gæfu rétta mynd af stöðu bankanna. Voru það mis- tök að treysta á prófin? Mér finnst þetta vera frekar lítið rökstutt í skýrslunni, og er svolít- il eftiráskýring. Álagsprófin eru aldrei betri en forsendur þeirra og þau gögn sem fóru í þau. Gögn- in komu úr uppgjörum bankanna. Forsendurnar voru svo auðvitað alltaf birtar, svo markaðurinn gat metið þær sjálfur. Álagspróf björguðu ekki bönk- um í Bandaríkjunum og Bretlandi, ekki frekar en hér. Þetta eru bara tæki, það voru engin álagspróf sem gátu spáð fyrir um þessa ofboðs- legu fjármálakrísu sem varð. Þessi próf voru birt að tillögu sendinefndar Alþjóðagjaldeyris- sjóðsins, og hann hefði væntan- lega ekki lagt það til ef hann hefði talið þau mjög gölluð. Auðvitað mátti þróa álagsprófin frekar, sem við vorum raunar byrjuð á, en það var engin hörð gagnrýni á að þetta væri ómögulegt. Skýrsluhöfundar gagnrýna að FME hafi haldið málum of lengi í óformlegu ferli í stað þess að grípa til aðgerða. Hvers vegna brást FME ekki harðar við brotum? Ég svaraði þeim einstöku málum sem skýrsluhöfundar tilnefna í mínum andsvörum. Öll þau mál voru í ákveðnu ferli, en auðvitað er alltaf spurning hvenær menn grípa til ákveðinna aðgerða. Svo komu heimildir til að leggja á stjórn- valdssektir vegna stórra áhættu- skuldbindinga ekki fyrr en um mitt ár 2007. En það verður eiginlega að útskýra hvert mál fyrir sig. Landsbankinn ekki sammála Í skýrslunni er einmitt nefnt til- vik frá árinu 2005, þar sem lán Landsbankans til Björgólfs Thors og tengdra fyrirtækja námu um 50 prósentum af eiginfé bankans. Þar kemur fram að þar hefði FME átt að benda lögreglu á lögbrot sem þar virðist hafa verið framið. Hvers vegna var það ekki gert? Þarna er ágreiningur um tengsl Björgólfs Thors [Björgólfssonar] og Actavis. Við töldum þar um tengda aðila að ræða en Landsbankinn var því ekki sammála. Auðvitað tók þetta mál lengri tíma en æskilegt hefði verið, en það helgaðist af því að það vantaði mannskap, og megn- ið af þeim mannskap sem vann að rannsókninni lét af störfum. Svo má ekki gleyma því að það eru gerðar mjög stífar kröfur um málsmeðferð, sönnun og fleira. Málinu lauk í mars 2007 með ákvörðun okkar sem þeir mót- mæltu, en skömmu síðar tók Björ- gólfur Thor yfir Actavis og ágrein- ingurinn var úr sögunni. Málið leystist eins og við vildum, áttum við þá að krefjast þess að menn færu í fangelsi? Það var ekki raun- hæft. Þegar þú horfir til baka, sérðu eitthvað sem þú hefðir átt að gera til að afstýra hruninu eða milda höggið þegar það kom? Það er alltaf hægt að horfa á hlut- ina eftir á og hugsa um hvað hefði getað gerst. En miðað við þær upp- lýsingar og mannskap sem ég hafði held ég að það hefði verið erfitt að bregðast öðruvísi við. Hins vegar er þetta eitthvað sem við eigum að læra af. Við eigum að skoða hvað fór úrskeiðis, og ég mun auðvitað leggja mitt af mörkum til að það megi draga lærdóm af þessu. Hver ber ábyrgð á hruninu? Eigendur og stjórnendur bank- anna að sjálfsögðu. Þeir tóku við- skiptaákvarðanirnar. Það sýn- ist mér vera meginniðurstaðan í skýrslunni. brjann@frettabladid.is Ábyrgðin hjá bönkunum HORFT UM ÖXL „Það er alltaf hægt að horfa á hlutina eftir á og hugsa um hvað hefði getað gerst. En miðað við þær upplýsingar og mannskap sem ég hafði held ég að það hefði verið erfitt að bregðast öðruvísi við,“ segir Jónas Fr. Jónsson, fyrrverandi forstjóri Fjármálaeftirlitsins. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Flestir helstu fjölmiðlar Vestur- landa hafa sagt frá skýrslu rann- sóknarnefndar Alþingis um banka- hrunið. „Íslenskir ráðamenn sekir um vanrækslu“ er algengasta fyrir- sögnin, og oftast minnst í því sam- hengi á Geir Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, og Davíð Odds- son, fyrrverandi seðlabankastjóra. Í norska dagblaðinu Aften posten er mikið gert úr því að íslenski seðla- bankinn hafi hreinlega gleymt að framlengja samning um 500 milljón dala lán frá Alþjóðagreiðslubankan- um í Sviss, og þetta sagt ein alvar- legustu mistökin sem gerð voru. Breskir fjölmiðlar beina athygl- inni að Icesave-málinu. Breska rík- isútvarpið BBC segir niðurstöðu skýrslunnar, hvað þetta varðar, þá að „íslensk stjórnvöld hefðu átt að tryggja að breskir sparifjáreigend- ur á Icesave væru tryggðir í Bret- landi“. Þá hefur grein Eiríks Berg- manns Einarssonar um skýrsluna á vef breska dagblaðsins Guardian vakið nokkra athygli. Þýska dagblaðið Die Welt skýr- ir eins frá vinnu nefndarinnar og segir að ummæli dagsins hafi komið í athugasemd lesanda við fréttina á Netinu: „Verið nú svo vænir, elsku Íslendingar, að gera svona líka hjá okkur.“ - gb Skýrslan vekur athygli erlendra fjölmiðla: Geir og Davíð oftast nefndir

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.