Fréttablaðið - 14.04.2010, Síða 22
14. APRÍL 2010 MIÐVIKUDAGUR
LF Works álfelgur
Gæða álfelgur á frábæru verði
frá LF Works. N1 tók þessar
felgur í sölu síðasta sumar og
fengu þær mjög góðar viðtökur.
Felgurnar eru líka til í lit sem
heitir euro black. Felgurnar fást
í stærðum 14”- 15”- 16”- 17”
og 18”. Felgur fyrir þá sem vilja
gefa bílnum nýtt og glæsilegt útlit
fyrir sumarið. Felgur sem vert er
að skoða.
Michelin Energy Saver hjólbarðar
Bylting í gerð hjólbaða. Michelin hefur náð að
minnka vegmótsstöðu umtalsvert með notkun
„Silica“ tækninnar, auk þess sem grip hefur
aukist hvort sem er á blautu eða þurru
undirlagi.
Michelin Energy Saver er með
„GREEN X“ merkingu á hliðinni,
sem vísar til þess að dekkið er
umhverfisvænt. Energy Saver
sameinar alla þá kosti og kröfur
sem nútímahjólbarði þarf að
byggja á: að vera öruggur,
umhverfisvænn og orku-
sparandi. Energy Saver er með
ósamhverft mynstur í bana. Að
innanverðu eru fleiri flipar og
skurðir sem gefur aukið veg-
grip. Að utanverðu er kröftugt
hliðarmynstur með breiðum
vatnslosunarraufum. Breiðar
miðjuraufar sjá um að hámarka
vatnslosun undan barðanum, en
fliparnir minnka hemlunarvega-
lengdina á blautu undirlagi.
N1 er umboðsaðili fyrir Michelin
hjólbarða á Íslandi.
„Undanfarin 3 ár höfum við hjá EuroRAP prófað Michelin Energy Saver dekk á
sérstökum mælingabíl okkar af gerðinni Mercedes Benz B 200 CDI. Þau framdekk
sem fylgdu bílnum upphaflega entust í 18.650 km. Eftir jafn langan akstur áttu
Michelin Engergy Saver dekkin hins vegar 41% eftir – en eldsneytiseyðslan var hins
vegar mun minni. Dekkin spöruðu 0,67 lítra á hundraðið!
Dæmið er augljóst: Michelin Energy Saver dekkin endast tvöfalt lengur og spara
töluvert eldsneyti auk þess að vera hljóðlát og með gott grip við allar aðstæður.“
Ólafur Guðmundsson.
Tæknistjóri EuroRAP á Íslandi,
varaformaður FÍB og dómari í Formulu 1.
Michelin Pilot Sport hjól-
barðar fyrir mótorhjól
Þessi hjólbarði er sérlega góður
fyrir götuhjól. „Silica“ efnið er
uppistaðan í belg og bana.
Einstakir akstureiginleikar,
frábært grip. Pilot Sport mótor-
hjóladekkin eru einstaklega
fljót að ná upp hita og hafa
frábært jafnvægi í hitaupp-
byggingu milli fram og aftur-
dekkja. Óviðjafnanlegt grip á
þurru og blautu undirlagi. Góð
vatnslosun. Pilot Sport mótor-
hjóladekkin eru dekkin fyrir þá
sem gera kröfur til öryggis og
góðra aksturseiginleika.
N1 er umboðsaðili fyrir Michelin
hjólbarða á Íslandi
Cooper Discoverer ATR hjólbarðar
Alhliða heilsársmustur fyrir jeppa og
jepplinga. Virkar frábærlega á vegum
og vegleysum. Sérstaklega gert til að
gera aksturinn mjúkan og hljóðlátan.
Munstrið er míkróskorið með djúpum
„zikk – zakk“ laga skurðum sem
eykur grip við allar aðstæður ekki
síst á blautu undirlagi.
Cooper Discoverer ATR eru
endingargóðir og hafa reynst
frábærlaga í alla staði við íslenskar
aðstæður.
Cooper Discoverer ATR er rétta
dekkið fyrir alla jeppaeigendur sem
gera kröfur um endingu , veggrip og
mjúkan og hljóðlátan akstur.
N1 er umboðsaðili fyrir Cooper
hjólbarða á Íslandi
HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA / WWW.N1.IS Meira í leiðinni
N1 býður upp á mesta hjól-
barðaúrval landsins og státar
af merkjum á borð við Michel-
in, Cooper og Kumho.
„Michelin er sá framleiðandi sem
aðrir miða sig við. N1 er umboðs-
aðili Michelin á Íslandi og bjóðum
við Michelin-dekk fyrir fólksbíla,
jeppa, vörubíla, mótorhjól, lyftara
og vinnuvélar svo dæmi séu tekin.
Gæði Michelin-dekkja eru ótvíræð
og eru þau bæði orkusparandi og
endingargóð,“ segir Dagur Ben-
ónýsson, rekstrarstjóri hjólbarða-
þjónustu N1. „Dekkin hafa minna
viðnám en önnur, ökutækið rúllar
léttar og þannig næst fram orku-
sparnaður og betri ending. Dekk-
in eru því umhverfisvænni en
önnur og ódýrust miðað við ekinn
kílómetra að sögn framleiðenda,“
bætir Hlöðver Sigurðsson, deildar-
stjóri hjólbarðadeildar N1, við.
Cooper-dekk fást undir fólks-
bíla, jepplinga og jeppa en Komho-
dekkin aðallega undir fólksbíla og
jepplinga. „Síðan erum við með
Mitas-dekk sem eru undir land-
búnaðarvélar, vinnuvélar og mótor-
hjól auk þess sem við bjóðum upp á
fjölda annarra tegunda dekkja frá
hinum ýmsu framleiðendum til að
mæta þörfum sem flestra,“ segir
Hlöðver og nefnir Starfire-dekk
frá Cooper sem eru fyrir þá sem
vilja ódýrari kost og Super Swamp-
er-dekk undir stóra og breytta
jeppa.
N1 heldur úti átta verkstæðum
sem öll bjóða upp á hjólbarðaþjón-
ustu auk almennra viðgerða. Sex
eru á höfuðborgarsvæðinu, eitt á
Akranesi og eitt í Reykjanesbæ.
„Verkstæðin eru búin bestu tækj-
um sem völ er á og geta tekið við
ökutækjum af öllum stærðum og
gerðum. N1 er til að mynda um-
boðsaðili fyrir Corghi-umfelgun-
arvélar sem þykja afar góðar og
flestöll alvöru dekkjaverkstæði
nota. Þess má geta að hjólbarða-
verkstæði N1 eru með vél frá
Corghi sem er sérstaklega hönnuð
til umfelgunar á „low profile“ og
„run flat“ dekkjum,“ segir Dagur.
Hann hvetur fólk til að koma með
ökutækin sín og láta sérfróða aðila
fara yfir dekkin. „Það er mikil vægt
að mæla ástand og loftþrýsting hjól-
barða en þetta virðist þó oftar en
ekki gleymast. Ef loftþrýstingur-
inn er of lítill verður hitauppbygg-
ingin í dekkjunum meiri sem þýðir
að þau slitna fyrr. Þá eyða ökutæk-
in meira eldsneyti auk þess sem
aksturseiginleikar þeirra minnka,“
útskýrir Hlöðver.
Báðir leggja þeir Dagur og Hlöð-
ver áherslu á að að aka á góðum
dekkjum jafnt sumar sem vetur og
segja að ekki dugi að slá slöku við
þótt færið sé betra á sumrin. „Ef
dekkin eru slitin er mikil hætta
á að ökutækin fljóti upp í bleytu.
Eins er fólk oft með fullan bíl af
farangri og fólki á þessum tíma
árs og þá þarf loftþrýstingurinn í
dekkjunum að vera í samræmi við
það.“
Þeir félagar benda einnig á að
afar gott sé að leita ráða á verk-
stæðum N1 en þar starfa menn
sem sumir hafa yfir 30 ára reynslu.
„Auk þess erum við með vegaað-
stoð allan sólarhringinn og erum til
dæmis til taks ef það springur eða
ef fólk hefur sett rangt eldsneyti á
bílinn. Síminn hjá vegaaðstoðinni
er 660-3350,“ segir Hlöðver.
Frá smæstu upp í stærstu
Þeir Hlöðver og Dagur hvetja fólk til að koma með ökutæki sín á verkstæði N1 til að láta yfirfara dekkin en verkstæðin geta tekið
við ökutækjum af öllum stærðum og gerðum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
● MARGLITIR HJÓLBARÐAR Dekk eiga það til að eyði-
leggjast með tímanum, þorna upp og springa. Tiltekið efni
verndar dekkin fyrir slíkri eyðingu og þar sem langflestir
dekkjaframleiðendur nota sama efnið til verndar dekkjun-
um eru eiginlega öll dekk svört að lit. Með tímanum eyðist
efnið og eyðileggst og því verða dekk grárri með aldrinum.
Lituð dekk eru hins vegar fáséð en þó fáanleg á
nokkrum stöðum. Helst eru þau notuð til sýninga eða
af tískumeðvituðu bíladellufólki. Fyrirtækið Tomahawk í
Bandaríkjunum hefur til dæmis á boðstólum ýmsa liti á
mótorhjóladekk, allt frá grænum og appelsínugulum til
marglitra. Sjá www.cycletires.com.
● BLÓMAKER Þótt við setjum hjólbarða yfirleitt ekki í samband við
skraut þá geta þeir orðið að mikilli prýði við híbýli okkar ef þeir eru fylltir
af mold og fallegum blómum. Þeir halda vel utan um jarðveginn og
gefa rótum jurtanna svigrúm til að teygja sig út í hliðarnar.
Ásdís Pálsdóttir, blómaskreytir í Reykjanesbæ, sýnir á þessari mynd
hvernig svertan og áferð dekkjanna mynda flotta andstæðu við
litfögur og fínleg blómin.
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 l Umsjónarmaður auglýsinga: Bjarni Þór Sigurðsson bjarnithor@365.is s. 512 5471