Fréttablaðið - 14.04.2010, Side 35
MIÐVIKUDAGUR 14. apríl 2010 19
Ég undirritaður, Björgólfur Thor Björgólfsson, bið alla
Íslendinga afsökunar á mínum
þætti í eigna- og skuldabólunni
sem leiddi til hruns íslenska
bankakerfisins. Ég bið ykkur
afsökunar á andvaraleysi gagn-
vart þeim hættumerkjum sem
hrönnuðust upp. Ég biðst afsök-
unar á að hafa ekki auðnast að
fylgja hugboði mínu þegar ég
þó kom auga á hættuna. Ég bið
ykkur afsökunar.
Ég fagna útkomu skýrslu
rannsóknarnefndar Alþing-
is um aðdraganda og orsakir
falls íslensku bankanna 2008 og
tengda atburði. Ég kaus að tjá
mig ekki mikið um gang mála á
meðan vinna nefndarinnar stóð
yfir en nú þegar henni er lokið tel
ég rétt gera grein fyrir mínum
málum. Fyrst af öllu vil ég hér
og nú gangast við augljósum mis-
tökum mínum og biðjast afsök-
unar á þeim. Vissulega get ég
gert athugasemdir við margt af
því sem í skýrslunni stendur og
að mér snýr og mun ég gera það
á öðrum vettvangi. Niðurstaða
rannsóknarnefndarinnar er hins
vegar alveg skýr.
Eigna- og skuldabólan, sem
reis líklega hærra á Íslandi en
á nokkru öðru byggðu bóli, og
hrun fjármálakerfis og gjaldmið-
ils landsins í kjölfarið, afhjúpa
með afgerandi hætti veikleika
íslensks efnahagslífs. Gallarn-
ir eru svo augljósir og djúp-
stæðir að dapurlegt er að heyra
menn halda því fram að allt sem
að þeim sneri hafi verið í allra
besta lagi. Ekkert hafi mátt
gera betur. Slíkar yfirlýsingar í
rústunum miðjum bera vott um
sama ábyrgðarleysið og leiddi til
hrunsins.
Ég get sjálfur haldið því fram
að ég hafi á hverjum tíma tekið
ákvarðanir sem ég taldi skyn-
samlegar og réttar og ég tel
víst að ég hafi engin lög brotið.
Í þröngum skilningi hef ég því
allt mitt á þurru. En þegar ég lít
í kringum mig og sé afleiðing-
ar hrunsins þá get ég ekki varist
sjálfsásökunum. Ég hefði átt að
hafa skarpari dómgreind og ég
hefði átt að hafa einbeittari vilja
til að axla ríkari ábyrgð á hvert
stefndi í íslensku viðskiptalífi.
Eins og lesa má í skýrslunni
breyttist rekstrarumhverfi bank-
anna um og uppúr 2006. Fram að
þeim tíma var nánast ótakmark-
aður aðgangur að ódýru lánsfé
í heiminum. Þess sáust merki á
Íslandi. Fyrirtæki, sveitarfélög,
opinber fyrirtæki og heimili söfn-
uðu upp skuldum. Þetta innflæði
fjármagns gaf því skakka mynd
af velsæld í samfélaginu. Á þess-
um tíma urðu til og efldust eign-
arhaldsfélög, sem þöndust út í
krafti ótakmarkaðs lánsfjár, söfn-
uðu miklum eignum og gríðarleg-
um skuldum. Þegar fór að leka úr
íslensku bankabólunni kom í ljós
að íslenska efnahagskerfið var
komið að fótum fram. Bankarn-
ir þoldu ekki fall ofurskuldsettra
fyrirtækja. Minnstu áföll hefðu
feykt kerfinu öllu um koll.
Þetta kerfi hékk þó uppi í rúmt
ár áður en það hrundi í október
2008 vegna lausafjárþurrðar.
Allir lögðust á eitt að reyna að
halda kerfinu gangandi í von
um að ytri aðstæður breyttust
til batnaðar, einhverjar lausn-
ir fyndust eða ástandið á láns-
fjármörkuðum skánaði skyndi-
lega. Auðvitað var ástandið verra
en svo að nokkur einn aðili réði
við það. En því miður auðnað-
ist engum þeirra sem stóðu og
horfðu á að draga fram augljósa
sameiginlega hagsmuni og vinna
að því að ná samstöðu allra í
baráttunni gegn þessum vanda.
Hann varð því sífellt stærri og
óviðráðanlegri.
Við í viðskiptalífinu biðum eftir
lausnum og forystu frá stjórnvöld-
um. Án efa hafa stjórnmálamenn-
irnir beðið eftir að við kæmum
með lausnir. Þegar á reyndi hugn-
aðist stjórnmálamönnunum ekki
leiðirnar sem við vildum fara og
við skildum ekki hvert stjórnvöld
vildu stefna. Slíkt ástand þarf
ekki að koma á óvart þegar órói
og óvissa er ríkjandi. En við slík-
ar aðstæður verður fólk að stíga
fram, hætta að líta eingöngu til
Við vorum miklu færri sem
gátum haft bein áhrif á stefnu
stærstu fyrirtækja eða stofnana
samfélagsins. Ég var einn þeirra
sem var í hvað bestri aðstöðu til að hafa áhrif
á gang mála. Sú staða sem nú er uppi segir allt
um hvernig mér tókst til.
5.000 umslög af heppilegri stærð.
UMHVERFISVOTTUÐ
PRENTSMIÐJA
2.000 bæklingar með
afar djúpum pælingum.
Oddi – umhverfisvottuð prentsmiðja. Höfðabakka 7, 110 Reykjavík, sími 515 5000, www.oddi.is
TÖKUM NOTUÐ VEL MEÐ
FARIN HJÓL UPPÍ NÝ
SKIPTIMARKAÐUR
MEÐ NOTUÐ REIÐHJÓL
19.995
58.995
69.995
BARNAHJÓL
VERÐ FRÁ
PL 500
20% AFSLÁTTUR Í APRÍL
AF AUKABÚNAÐI Á HJÓLIN
Ég bið ykkur afsökunar
eigin hagsmuna og vinna saman.
Okkur auðnaðist það ekki. Enginn
steig fram og tók af skarið. Allir
biðu eftir hinum.
Ég sé nú að það sem ég þó
reyndi að gera var ekki alltaf hið
rétta eða var of lítið og kom of
seint. Ég vildi brjóta upp veik-
leika bankanna með því að ráða
útlenda og reynslumikla banka-
menn til Straums. Hugmyndin
var að þeir myndu lækna Straum
af „íslensku veikinni“ og taka í
kjölfar sameiningar við stjórn
Landsbankans. Með þessu vildi ég
freista þess að draga bankana út
úr þröngum og fámennum hring
íslenskra viðskipta. En tíminn
hefur leitt í ljós að aðgerðir mínar
voru of veikar og komu of seint.
En ég ætla ekki að bera blak
af ákvörðunum mínum eða
aðgerðaleysi. Hver Íslending-
ur ber ábyrgð á eigin fjármálum
og situr uppi með þær ákvarðan-
ir sem hann tók. Ég er þar engin
undantekning. Ég er nú að vinna
að uppgjöri skulda minna og mun
gera betri grein fyrir því síðar.
Ljóst er að þótt miklar eignir
mínar renni til lánardrottna mun
ég jafnframt starfa í þeirra þágu
um ókomin ár, þar til ég hef að
fullu gert upp við þá. Ég er stað-
ráðinn í að ljúka því verki með
sóma.
Þótt hver og einn beri ábyrgð
á sínum fjármálum voru flest-
ir í þeirri aðstöðu að hafa lítt um
þróun mála að segja, en verða að
búa við afleiðingarnar. Við vorum
miklu færri sem gátum haft bein
áhrif á stefnu stærstu fyrirtækja
eða stofnana samfélagsins. Ég
var einn þeirra sem var í hvað
bestri aðstöðu til að hafa áhrif
á gang mála. Sú staða sem nú er
uppi segir allt um hvernig mér
tókst til.
Ég bið Íslendinga afsökunar á
að hafa ekki staðið mig betur.
Björgólfur Thor
Björgólfsson
kaupsýslumaður
Efnahagshrunið