Fréttablaðið - 26.04.2010, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 26.04.2010, Blaðsíða 36
16 26. apríl 2010 MÁNUDAGUR BAKÞANKAR Gerðar Kristnýjar zebra Heilsuveisla í Smáralind Þekkir þú sjúkraþjálfara? Í dag fagnar Félag íslenskra sjúkraþjálfara 70 ára afmæli sínu og blæs til veislu í Vetrargarðinum. Hluti af daglegum viðfangs- efnum sjúkraþjálfara verður kynntur með fjölbreyttum vinnusmiðjum, örnámskeiðum og fræðslufyrirlestrum. Íþróttaálfurinn kemur í heimsókn og allir geta gripið í borðtennisspaða. Vinnusmiðjur kl. 15-19. Hópæfingar og fræðsla 16.15 Háls- og herðaæfingar 18.15 Íþróttaálfurinn 16.45 Hvernig á ég að æfa? Dagskrá kl. 16-19. borðtennis úr röðum fatlaðra skorar á þig! Frá því vorið 1986 hef ég skrifað niður hjá mér hverja einustu bók sem ég hef lesið í svarta stílabók. Þess vegna er hægur vandi að sjá að í maí fyrir 24 árum las ég Alexis Sorbas eftir Nikos Kaz- antzakis, Svein Elversson eftir Selmu Lag- erlöf, Barn náttúrunnar og Sjálfstætt fólk eftir Halldór Laxness og Nafn rósarinn- ar eftir Umberto Eco. Vorprófunum í MH lauk greinilega snemma þetta árið og ég hef örugglega verið komin í brýna þörf fyrir að taka mér ærlega bók í hönd. Þegar ég blaða í þeirri svörtu rifj- ast eitt og annað upp fyrir mér, svo sem eins og hvers vegna ég las í raun og veru svona mikið þetta vor. ÉG hafði lent upp á kant við gaml- ar bekkjarsystur og var óttalega ein. Félagslífið fór ekki að glæð- ast fyrr en líða tók á sumarið og ég eignaðist skemmtilega vinkonu í sumarvinnunni. Samtals voru átta bækur lesnar í júní og júlí en ekki ein einasta í ágúst. Aldrei las ég neitt mér til skemmtunar meðan á skólanum stóð, aðeins í fríum. Maður tamdi sér aga. Og maður setti sér líka skrásetn- ingarreglur því skólabækurnar færði ég aldrei til bókar nema ef svo heppilega vildi til að mér hefðu verið sett fyrir skáldverk. ÞESS vegna fá Persónur og leikendur eftir Pétur Gunnarsson að fljóta með í september árið 1987 og í febrúar 1988 skráði ég hjá mér The Life and Loves of a She-Devil eftir Fay Weldon. Ég á það til að fá rífandi áhuga á vissum höfund- um og les þá allt sem ég kem höndum yfir eftir þá. Selmu Lagerlöf-sýkin var allskæð, tekin var djúp Laxnessdýfa og sumarið sem ég dvaldi í suður-frönsku klaustri las ég bersöglar bækur eftir Rég- ine Deforges. Fyrir um það bil 15 árum gleypti ég í mig allt sem ég komst yfir eftir Martin Amis og þegar ég bjó í Nice árið 2003 hnaut ég um bækur Arto Paas- ilinna í frönskum þýðingum. Hryssings- legi finnski húmorinn vó upp á móti öldu- gjálfr inu á ströndinni. ÁRI síðar mælti tímaritið 19. júní með bókinni Cat’s Eye eftir Margaret Atwood – og ég féll í stafi. Lars Saabye Christen- sen hefur líka komist í gegnum nálar- auga mitt og þá er gott að eiga skírteini að Bókasafni Norræna hússins. Engin ljóð orka síðan jafn sterkt til mín og íslenskra skálda. Steinunni, Vigdísi, Þorstein, Hann- esana og Gyrði les ég reglulega án þess að hafa fyrir því að skrifa niður bækurnar þeirra í hvert einasta skipti sem þær eru gripnar úr hillu. Ég fletti líka oft í gegn- um svörtu stílabókina. Hún er sönnun þess hvað líf mitt hefur verið gott. Vika svörtu bókarinnar ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Áður en GPS leið- sögutæki komu til sögunnar Ekki þessi hægri beygja! Þessi sem við vorum að fara framhjá. Taktu U- beygju Beygðu til hægri Beygðu á næstu ljósum Uuu pabbi... Ég kíkti aðeins í þennan kassa með gömlu tónleikabolun- um þínum og fann svolítið. Er þetta ekki hass- pípa? Ég var að vona ég myndi ekki sjá þessa aftur. Hún minnir mig á erfitt og undarlegt tímabil í lífi mínu. Reyk- tirðu of mikið hass? ÉG??? Nei! Ég hélt að þetta væri vasi og gaf mömmu þinni þetta þegar við vorum að byrja saman. Stelpan sem ég var að leigja með hló í heila viku að okkur! Vannstu 100 kílóa páskaegg? Finnst þér það ekki vera stórt? Vá! Er það satt, mamma? Erum við að tala um mjólkursúkku- laði eða dökkt súkkulaði? Jú heldur betur! 100 kíló er meira en ein fjölskylda getur borðað á fimm árum!

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.