Fréttablaðið - 19.05.2010, Page 2
2 19. maí 2010 MIÐVIKUDAGUR
Brynhildur, er þetta samstarf
í mótun?
„Já, en alls ekki á brothættu stigi.“
Nemendum í mótun, leir og tengdu efni
við Myndlistaskólann í Reykjavík hefur
boðist samstarf við þýsku postulínsverk-
smiðjuna Kahla. Brynhildur Pálsdóttir
kennir við Myndlistaskólann.
SLYS „Ég vil ekki ásaka neinn og
vil aðeins stíga fram og segja hug
minn ef það gæti orðið öðrum víti
til varnaðar. Ég vil að það sé birt
mynd af þessu tæki svo foreldr-
ar geti gert ráðstafanir og tekið
þetta niður,“ segir Hákon Hákon-
arson, afi þriggja ára drengs sem
slasaðist alvarlega á leiksvæði í
Grafarvogi á laugardag og lést á
Barnaspítala Hringsins á mánu-
dagskvöld.
„Ég spyr hvernig stendur á því
að það er hægt að selja tæki sem
veldur skaða sem þessum. Rann-
sóknarlögreglan segir að tækið sé
löglegt til nota í einkagörðum þar
sem börn leika sér undir eftirliti.
Þetta er auðvitað fásinna. Þegar
keypt eru leiktæki fyrir lítil börn
hlýtur maður að geta gengið að því
vísu að tækið sé barnvænt en ekki
stórhættulegt.“
Hákon segir að enginn hafi
orðið vitni að slysinu á laugar-
daginn. Atburðarásin hafi verið
hröð og ekki í mannlegu valdi að
grípa inn í. Hann gagnrýnir hart
að kaðlarólur séu enn seldar. „Það
getur ekki verið að ástæðulausu
að flestar rólur eru keðjurólur þar
sem sérstök hlíf kemur í veg fyrir
að hægt sé að búa til snöru eða
lykkju eins og hún sem olli slysinu
á laugardaginn,“ segir Hákon.
Hann segir að leiktækið hafi
verið keypt í BYKO, en það sé
einnig selt í fleiri verslunum um
allt land og hvergi sé varað við því
að rólurnar séu hættulegar.
Leiktækið var sett upp stutt frá
heimili drengsins en hefur verið
tekið niður. „Lögreglan tók niður
tækið að ósk fólksins sem átti
það, en það er annað eins í garði
hjá öðru fjölbýlishúsi hérna rétt
hjá. Ég er viss um að þessi leik-
tæki eru í fjölmörgum görðum um
allt land og því vil ég benda fólki á
þá hættu sem af því stafar,“ segir
Hákon.
Herdís Storgaard, forstöðumaður
Forvarnahússins, hefur unnið að
málinu frá upphafi í samstarfi við
rannsóknarlögregluna á höfuð-
borgarsvæðinu. Hún hefur jafn-
framt verið fulltrúum frá versl-
uninni BYKO til ráðgjafar. Hún
segist ekki geta tjáð sig um málið á
þessu stigi þar sem hún er bundin
trúnaði að ósk lögreglunnar. Hún
vill hins vegar fullvissa alla um
það að faglega hafi verið staðið að
rannsókn málsins og nauðsynleg-
ar ráðstafanir gerðar um leið og
mögulegt er.
Ekki eru unnt að greina frá nafni
drengsins að svo stöddu. Ekki náð-
ist í neinn af forsvarsmönnum
BYKO við vinnslu fréttarinnar.
svavar@frettabladid.is
SPURNING DAGSINS
– Þú finnur fjölda girnilegra uppskrifta að kvöldmatnum á www.gottimatinn.is
Ég man
ekki up
pskrifti
na
en ég m
an í hv
erju
ég var
þegar é
g eldað
i
LÖGREGLUMÁL Piltur um tvítugt
hefur lagt fram kæru um nauðg-
un. Samkvæmt upplýsingum
Fréttablaðsins kærði maður-
inn misneytinguna af hendi sér
eldri karlmanns til lögreglu eftir
helgina.
Fáeinar vikur munu liðnar
frá því að hin meinta nauðgun
átti sér stað. Eftir því sem næst
verður komist bauð karlmaður-
inn, sem nú hefur verið kærður,
piltinum í samkvæmi heim
til sín á höfuðborgarsvæðinu.
Þegar þangað var komið var
enginn þar fyrir nema húsráð-
andi. Áfengi var haft um hönd
og sofnaði pilturinn. Hann vakn-
aði síðan við að maðurinn var að
misnota hann.
Pilturinn fór nokkru síðar á
neyðarmóttöku fyrir fórnarlömb
kynferðislegs ofbeldis á Land-
spítalanum og kærði í kjölfarið.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
fer með rannsókn málsins. - jss
Plataður í heimahús:
Piltur kærir
nauðgun
AÞENA, AP Grikkir fengu í gær
fyrsta hluta fjárhagsaðstoð-
ar frá Evrópusambandinu. Alls
voru þeim afhentir 14,5 milljarð-
ar evra. Hluti þeirrar upphæð-
ar, níu milljónir evra, fara til
afborgana lána sem eru á gjald-
daga í dag.
Alls munu Grikkir fá 110 millj-
arða í aðstoð frá Evrópusam-
bandinu og Alþjóðagjaldeyris-
sjóðnum. Fyrsta greiðslan frá
sjóðnum barst í síðustu viku, 5,5
milljarðar evra.
Skilyrði fyrir lánunum voru
sársaukafullar aðhaldsaðgerðir
í ríkisfjármálum: niðurskurður,
launalækkanir og skattahækk-
anir. Mikill órói hefur verið í
landinu vegna þessa og oft soðið
upp úr. - kóp
Evrópusambandið borgar:
Fyrsti hluti að-
stoðar afhentur
ÍSRAEL, AFP Tónlistarmaðurinn
Elvis Costello hefur aflýst tveim-
ur tónleikum í Ísrael í mótmæla-
skyni við framferði Ísraela í garð
Palestínumanna. Vísar Costello
til „hótana“ og „niðurlægingartil-
burða“ Ísraela.
Fleiri tónlistarmenn hafa aflýst
viðburðum í Ísrael af sömu sökum,
þar á meðal Carlos Santana og Gil
Scott-Heron.
Sum samtök sem styðja málstað
Palestínu mælast til þess að fræði-
menn og listafólk sniðgangi Ísrael.
- óká
Hættur við tónleika:
Elvis Costello
þrýstir á Ísrael
PÓLLAND, AP Flóðin í Evrópu hafa
kostað að minnsta kosti fimm
manns lífið í Póllandi. Í gær
þurfti að loka aðgangi að útrým-
ingarbúðunum Auschwitz-Birken-
au svo hægt verði að verja skjöl
og muni þar.
Flóðin hófust í Mið-Evrópuríkj-
um í kjölfar mikilla rigninga um
síðustu helgi en hafa nú einnig
borist til Ungverjalands, Slóvakíu
og Tékklands.
Þúsundir manna hafa þurft að
yfirgefa heimili sín, þar af um
tvö þúsund í Póllandi. Rafmagn
hefur farið af á stórum svæðum
og lestarsamgöngur hafa sums
staðar legið niðri. - gb
Flóð víða í Evrópu:
Auschwitz lok-
að vegna flóða
BRUSSEL, AP Efnahagsráðherrar Evrópusambands-
ríkjanna samþykktu í gær á fundi sínum í Brussel
reglur um hert eftirlit með vogunarsjóðum og
öðrum áhættufjárfestingum.
Samþykktin þykir sýna eindreginn áhuga
Evrópu sambandsríkjanna á því að setja frekari
hömlur á fjármálaviðskipti til að koma í veg fyrir
að áhættuviðskipti leiði af sér efnahagshrun á borð
við það sem varð haustið 2008.
Reglurnar gera framkvæmdastjórum vogunar-
og fjárfestingasjóða að skrá sig hjá eftirlitsstofn-
unum og veita upplýsingar um viðskipti sín. Einnig
verður þeim gert að leggja til hliðar fé til að verj-
ast áföllum, með svipuðum hætti og bönkum er
gert að gera.
Einnig verður þeim ekki sjálfkrafa heimilt að
stunda viðskipti utan Evrópusambandsins. Þetta
ákvæði eiga Bandaríkjamenn erfitt með að sætta
sig við, og hefur Timothy Geithner, fjármálaráð-
herra Bandaríkjanna, meðal annars sagt hættu
á því að bandarískir sjóðir verði útilokaðir frá
Evrópusambandinu.
Endanleg afgreiðsla nýju reglnanna verður
þó ekki fyrr en í júlí, en fram að þeim tíma
þurfa aðildarríkin að samræma þær reglur sem
ráðherraráðið samþykkti í gær og sambærilegar
reglur sem Evrópuþingið hefur samþykkt. - gb
Evrópusambandsríkin koma sér saman um hert eftirlit með vogunarsjóðum:
Dregið verði úr áhættunni
WOLFGANG SCHÄUBLE Fjármálaráðherra Þýskalands svarar
spurningum fréttamanna að loknum fundinum í Brussel.
NORDICPHOTOS/AFP
HEILBRIGÐISMÁL Aukning varð á
ávísun á rítalín í marsmánuði síð-
astliðnum miðað við mánuðina þar
á undan. Hún virðist einkum bund-
in við stúlkur og ungar konur á
aldrinum tíu til tuttugu ára. Rítal-
ín er einkum gefið við athyglis-
bresti og hegðunarvandamálum.
Þetta segir Kristján Oddsson,
yfirlæknir hjá Landlæknisemb-
ættinu. Þórarinn Tyrfingsson,
yfirlæknir á Vogi, sagði við Frétta-
blaðið í gær að ávísun á rítalín virð-
ist vera komin úr böndunum. Hann
sagði upplýsingar liggja fyrir um
hversu margir noti rítalín með
öðrum örvandi efnum eða eitt og sér
og sagðist hafa gert landlæknisemb-
ættinu viðvart um þessa stöðu.
Kristján segir almennt aukna
notkun á rítalíni hjá konum en eink-
um þó í ofangreindum aldurshópi.
„Við vitum ekki hver ástæðan er
né hvort þetta er einungis bundið
við marsmánuð. Það verður tíminn
að leiða í ljós,“ segir Kristján. „Það
er of snemmt að segja til um hvort
um er að ræða misnotkun á lyfinu
eða hvort þarna er á ferðinni aukin
þörf.“
Kristján segir engar breytingar
sjáanlegar á ávísunum lækna. Emb-
ættið muni fylgjast með þessu máli.
- jss
Aukin notkun stúlkna og ungra kvenna á lyfi gegn athyglisbresti:
Ávísun á rítalín hefur aukist
STJÓRNMÁL Dagur B. Eggertsson,
oddviti Samfylkingarinnar í
borgarstjórn Reykjavíkur, segir
óásættanlegt að niðurskurður í
velferðarkerfinu leiði til uppsagna
og hefur komið á framfæri alvar-
legum athugasemdum við forystu
ríkisstjórnarinnar og Árna Pál
Árnason félagsmálaráðherra.
„Ef menn eru ekki búnir til að
taka hraustlega til í ríkiskerfinu,
sameina ráðuneyti og stofnanir
og spara yfirstjórn þá eru störf í
hættu,“ segir Árni Páll og leggur
áherslu á að taka þurfi verulega
til og forgangsraða í ríkisrekstr-
inum. „Þetta er rétti tíminn til að
stokka upp,“ segir hann. - jab
Niðurskurður í velferðarkerfi:
Rétti tíminn til
að stokka upp
ÁRNI PÁLL Menn verða að vera tilbúnir
til að taka hraustlega til í ríkiskerfinu,
segir félagsmálaráðherra. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
RÍTALÍN Landlæknisembættið mun fylgj-
ast með þróun á notkun rítalíns.
„Ég vil að allir sjái
mynd af þessu tæki“
Hákon Hákonarson, afi drengsins sem lést eftir slys í leiktæki um helgina, spyr
hvernig standi á því að sala tækja sem geta valdið slíkum skaða sé leyfileg.
Hann stígur fram í minningu drengsins og til að vara fólk við lúmskri hættu.
LEIKTÆKI SÖMU TEGUNDAR Tvær kaðlarólur og rennibraut eru á leiktækinu. Þetta
tæki, sem er nákvæmlega eins, er stutt frá heimili drengsins sem lést. Rólurnar tvær
voru skornar niður eftir slysið á laugardaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Það getur ekki verið
að ástæðulausu að
flestar rólur eru keðjurólur
þar sem sérstök hlíf kemur í
veg fyrir að hægt sé að búa
til snöru eða lykkju eins og
hún sem olli slysinu á laugar-
daginn.
HÁKON HÁKONARSON