Fréttablaðið - 19.05.2010, Síða 4
4 19. maí 2010 MIÐVIKUDAGUR
SVEITARFÉLÖG Gunnlaugur Júlíusson,
sviðstjóri hag- og upplýsingasviðs
Sambands sveitarfélaga, hefur sent
stjórn sambandsins harða gagnrýni
á vinnubrögð reikningsskila- og
upplýsinganefndar sveitarfélaga.
Nefndin ákvað 9. apríl síðastliðinn
að breyta reikningsskilareglum
hvað varðar lóðir og lönd sveitar-
félaga.
Samkvæmt
nýrri reglu ber
sveitarfélögum
að færa öll lönd
sín og leigulóð-
ir sem eignir í
efnahagsreikn-
ingi. Heimilt
er að gera það
í ársreikningi
2009 en skylt í
ársreikningi 2010.
Hafnarfjörður og Mosfellsbær
hafa nýtt sér þessa heimild, sem
reikningsskilanefndin samþykkti
29. apríl og hafa kynnt ársreikn-
inga þar sem aðferðinni er beitt.
Hún eykur eigið fé Hafnarfjarð-
arbæjar um 6,6 milljarða og leið-
ir til þess að eiginfjárstaða bæjar-
ins verður jákvæð um rúma fjóra
milljarða.
Gunnlaugur sat hjá þegar nefnd-
in samþykkti álit á málinu og
gagnrýnir málsmeðferð harðlega
í bókun. Vinnubrögðin séu ófag-
leg og málið of stórt til að afgreiða
umræðulítið og án nægilegs und-
irbúnings. Það hafi komið á borð
nefndarinnar með óumbeðnu áliti
frá starfsmönnum KPMG og feng-
ið afgreiðslu á næsta fundi.
„Leigutekjur eru ekki fastar í
hendi,“ segir Gunnlaugur Júlíus-
son. „Það er ekki sanngjarnt að
þær séu notaðar sem grunnur að
eignamati.“ Sumar lóðir sveitar-
félaga verði aldrei seldar og eigi
því ekki að eignfæra út frá ímynd-
uðu markaðsverði. „Maður spyr
sig hvert er gangvirði lóða sem á
aldrei að selja?“ segir hann.
Hann birtir með bókun sinni
yfirlit til að sýna að nýja reglan sé
ekki nægilega varfærin og henni
sé hvergi beitt á Norðurlöndum þar
sem áhersla er lögð á að þenja ekki
út efnahagsreikninga sveitarfélaga
út á hæpnum forsendum.
Kristján Jónasson, endurskoð-
andi hjá KPMG, er formaður nefnd-
arinnar. Hann vildi ekki svara
gagnrýni Gunnlaugs á málsmeð-
ferðina en sagði breytinguna styðj-
ast við þau rök að sveitarfélög eigi
miklar eignir í löndum og lóðum.
Talið hafi verið nauðsynlegt að
þær kæmu fram í efnahagsreikn-
ingi á sama tíma og sveitarfélögum
verður skylt að gera ýmsar skuld-
bindingar sem hafa staðið utan við
efnahagsreikning sýnilegar. Reikn-
ingsskil eigna sveitarfélaga verði
endurskoðuð í heild í haust.
peturg@frettabladid.is
Nýjar bókhaldsreglur blása
út eigið fé sveitarfélaganna
Fulltrúi Sambands sveitarfélaga gagnrýnir nefnd sem vill að sveitarfélög stækki efnahagsreikninga með
því að telja framtíðarleigutekjur af lóðum. Nýju reglurnar juku eigið fé Hafnarfjarðar um 6,6 milljarða.
LÖND OG LÓÐIR Sumar lóðir og lönd borgarinnar stendur aldrei til að selja og þær á því ekki að færa til eignar miðað við ímynd-
að markaðsvirði, segir Gunnlaugur Júlíusson, sviðsstjóri sambands sveitarfélaga. Hann segir að ný reikningsskilaregla dragi úr
trausti á reikningsskilanefnd sveitarfélaga. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
GUNNLAUGUR
JÚLÍUSSON
SVEITARSTJÓRNARMÁL Framsóknar-
flokkurinn vill að frístundakortið
verði hækkað úr 25 þúsund krón-
um í 40 þúsund krónur á kjörtíma-
bilinu og skólabörn fái ókeypis
hafragraut og lýsi í skólum borg-
arinnar. Flokkurinn kynnti stefnu-
mál sín í Elliðaárdalnum í gær.
Einar Skúlason, oddviti listans,
segir ekki ástæðu til að hækka
skatta í borginni, né hækka gjald-
skrár umfram verðlagsþróun. For-
gangsraða verði í þágu barna og
velferðarmála á kjörtímabilinu.
Framsóknarflokkurinn vill
aukna áherslu á mannaflsfrekar
viðhaldsframkvæmdir og atvinnu-
skapandi verkefni. Einar segir það
geta snúið að því að auka framboð
á afþreyingu í borginni, til dæmis
með því að auka aðgengi að opnum
svæðum og gera þau meira spenn-
andi. Til dæmis mætti breyta Ell-
iðaárdal í ævintýraskóg með frum-
legum upplýsingaskiltum, sem
þurfi ekki að kosta mikið.
Einar segir flokkinn einnig
leggja áherslu á íbúalýðræði.
Flokkurinn vilji að fimm prósent
borgarbúa geti krafist umræðu um
tiltekið málefni í borgarstjórn með
undirskriftasöfnun. - bj
Framsóknarflokkurinn í Reykjavík kynnti stefnuskrá sína í Elliðaárdalnum:
Vilja ókeypis hafragraut og lýsi
STEFNAN KYNNT Einar Skúlason og Val-
gerður Sveinsdóttir, efstu menn á lista
Framsóknarflokksins í Reykjavík, kynntu
stefnuna í Elliðaárdalnum í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
23°
15°
14°
17°
14°
14°
13°
17°
17°
22°
19°
22°
16°
33°
22°
18°
17°
15°
Á MORGUN
Hæg breytileg átt.
FÖSTUDAGUR
Hægviðri.
6
4
5
3
4
6
6
8
6
7
8
10
10
10
9
13
13
14
13
5
9
9
6 10
10
12
12
12
10
10
9
12
HLÝTT NA-LANDS
Það verður áfram
hlýtt um allt land
og í dag gæti hit-
inn náð 18 stigum
norðaustanlands.
Það dregur úr vætu
þegar líður á kvöld-
ið og á morgun
verður víða skýjað
með köfl um og
þurrt en dálítil
væta suðaustan-
lands.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
SVEITARSTJÓRNARMÁL Fjórir
greiddu atkvæði í íslensku sveit-
arstjórnarkosningunum í utan-
kjörfundaratkvæðagreiðslu sem
fram fór í Lúxemborg í gær. Kjör-
deild var opin í fjóra tíma, frá
klukkan tíu að morgni til klukkan
tvö eftir hádegi. Önnur tækifæri
gefast ekki til að greiða atkvæði
utan kjörfundar þar ytra.
„Þetta eru auðvitað pínulítil
vonbrigði, en samt eins og við er
að búast,“ segir Roland Frising,
aðalræðismaður Íslands í Lúxem-
borg sem annaðist atkvæða-
greiðsluna. og taka við atkvæðum
á ræðisskrifstofunni við Notre-
Dame-stræti 16 í Lúxemborg.
„Alla jafna kjósa mjög fáir í
sveitarstjórnarkosningum hér
því að til þess að taka þátt í þeim
þarf fólk að vera skráð til heimil-
is í sveitarfélaginu,“ segir hann.
- óká
Utankjörfundaratkvæði:
Fjórir greiddu
atkvæði í Lúx
ÍRAN, AP Bandaríkjamenn lögðu
fram í gær á fundi öryggisráðs
Sameinuðu þjóðanna drög að
nýjum refsiaðgerðum gegn Íran,
sem eiga að vera harðari en fyrri
refsiaðgerðir.
Að sögn Hillary Clinton, utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna,
höfðu fulltrúar fastaríkjanna
fimm í ráðinu og Þýskalands náð
samkomulagi um aðgerðirnar.
Írönsk stjórnvöld höfðu fyrr
um daginn sagst gera sér vonir
um að Vesturlönd myndu þrátt
fyrir tortryggni sætta sig við
nýjan samning, sem Tyrkland
og Brasilía höfðu milligöngu um,
sem gengur út á að Íranar sendi
auðgað úran til Tyrklands og fái í
staðinn kjarnorkueldsneyti. - gb
Öryggisráð SÞ:
Nýjar refsiað-
gerðir á Íran
LÖGREGLUMÁL Þremur hollensk-
um karlmönnum, sem handteknir
voru síðastliðinn laugardag
vegna rannsóknar á fíkniefna-
máli, hefur verið sleppt úr haldi
lögreglu. Þar sem krafa hafði
ekki borist erlendis frá um varð-
hald var ekki talin forsenda til að
halda þeim lengur.
Þremenningarnir eru allir í
áhöfn 1000 brúttólesta gamals
fiskiskips sem kom til hafnar í
Seyðisfirði á laugardag. Gerð var
leit í skipinu en engin fíkniefni
fundust. - jss
Þrír Hollendingar lausir:
Ekki forsenda
fyrir varðhaldi
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is
GENGIÐ 18.05.2010
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
207,4864
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
130,08 130,7
187,89 188,81
161,55 162,45
21,709 21,837
20,911 21,035
16,882 16,98
1,4012 1,4094
191,12 192,26
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
®