Fréttablaðið - 19.05.2010, Blaðsíða 8
8 19. maí 2010 MIÐVIKUDAGUR
KJÓSUM MEIRI KRAFT
OG ÖRUGGA ATVINNU
Vekjum
Reykjavík!
Kynntu þér markvissa aðgerðaráætlun
gegn atvinnuleysinu á xsreykjavik.is
NÝTT
Ný kynslóð af liðvernd
Hýalúrónsýra
Viðheldur heilbrigðum liðum og liðleika
Bionovex olía
Hefur bólgueyðandi eiginleika
Hýalúrónsýra er lykilefni í brjóski og í liðvökvanum
í liðamótum. Hýalúrónsýra er talin auka virkni
liðvökvans sem virkar smyrjandi og höggdeyfandi á
liðina. Með aldrinum gengur á þessar birgðir og með
því að taka inn Regenovex endurhlöðum við þessar
birgðir líkamans.
Þegar magn og gæði liðvökvans sem umlykur liðina er ekki
nægjanlegt geta beinin í liðnum farið að nuddast saman,
mynda bólgur og valda sársauka. Bionovex olían er unnin úr
grænkræklingi og er því náttúruleg. Bionovex olían inniheldur
einstaka omega 3 olíu sem finnst aðeins í þessari tegund
grænkræklings og hefur sýnt bólgueyðandi eiginleika.
Regenovex hentar öllum sem leita
að bættri heilsu í liðum en kjósa náttúlegar
lausnir fram yfir lyf m.a. vegna mögulegra
aukaverkana þeirra.
Gel Perlur Plástur
Almennt um liðverki
Vandamál í liðum skapast með áreynslu á liðina sem
með tímanum geta skemmt liði og/eða brjósk og valdið
óþægindum og sársauka.
Hýalúrónsýra er meginefni í liðvökvanum sem umlykur
beinin og brjóskið og höggverndar beinin í liðnum.
Hýalúrónsýran virkar sem smurning og höggdeyfir á liðina
og bætir liðleikan.
Þegar við eldumst framleiðir líkaminn minna magn af
Hýalúrónsýru sem leiðir til þess að magn liðvökvans fer
minnkandi og er í kjölfarið ekki eins áhrifaríkur í að hlífa
liðum við minniháttar höggum og
áreynslu sem leiðir til þess að flísast getur úr beinunum.
Fæst í apótekum Kynntu þér málið á regenovex.is
og fáðu sent frítt sýnishorn
Einstök samsetning Regenovex
unað ekki sársauka
A
u
g
lý
si
n
g
a
sí
m
i
Allt sem þú þarft…
SKÓLAR Stéttarfélög grunnskóla-
kennara, leikskólakennara og
tónlistarkennara í grunnskól-
um sveitarfélaganna hafa vísað
ti l ríkissáttasemjara deilu
sinni við launanefnd sveitar-
félaga um efndir á ákvæðum
stöðugleikasáttmálans.
Ólafur Loftsson, formaður Félags
grunnskólakennara, segir að við
gerð stöðugleikasáttmálans hafi
kennarar fallist á að félagsmenn
fengju nánast engar kjarabæt-
ur fram til nóvember á þessu ári;
samið hafi verið um að eingöngu
taxtar undir 210.000 krónur yrðu
hækkaðir. Allir taxtar kennara eru
yfir þeim mörkum.
Staðan breyttist hins vegar,
segir Ólafur, þegar ríkið sjálft
samdi við sína starfsmenn, þar á
meðal framhaldsskólakennara, um
hækkanir á töxtum upp að 310.000
krónum. Með því hafi forsendum
verið kippt undan samkomulagi
kennara við sveitarfélögin enda
sé nokkur fjöldi kennara undir
310.000 króna föstum mánaðar-
launum. Þeir verði ekki látnir sitja
eftir.
Kennarar í leikskólum og tónlist-
arskólum hafa einnig vísað sínum
samningum til ríkissáttasemjara
af sömu ástæðum.
Marta Dögg Sigurðardóttir, for-
maður Félags leikskólakennara,
segir að um helmingur félags-
manna sé á töxtum sem eru undir
310.000 króna mörkunum. Þessi
hópur fái því ekkert nema leið-
rétting verði gerð. Leikskóla-
kennarar telja að það mundi kosta
sveitarfélögin innan við 1 prósent
í aukinn launakostnað að tryggja
þeim sömu hækkanir og aðrir
aðilar stöðugleikasáttmálans hafa
fengið.
Inga Rún Ólafsdóttir, fram-
kvæmdastjóri launanefndar sveit-
arfélaga, segir að sveitarfélögin
hafi lagt áherslu á að fylgja stöð-
ugleikasáttmálanum í samningum
við sína starfsmenn. Því sé málið
nú á borði ríkissáttasemjara.
Næsti fundur er boðaður á föstu-
dag. - pg
Kennarar vilja að lægstu laun hækki:
Kennaradeilur hjá
ríkissáttasemjara
SKÓLAR Í stöðugleikasáttmálanum var samið um að taxtalaun yfir 210.000 krónum á
mánuði yrðu ekkert hækkuð fyrr en eftir 1. nóvember. Ríkið hefur engu að síður gert
samninga við eigin starfsmenn um hækkanir upp að 310.000 krónum.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
LÖGREGLUMÁL Sjö voru hand-
teknir eftir hópslagsmál í Kóra-
hverfi í Kópavogi síðdegis í gær.
Tveir mannanna voru fluttir
með sjúkrabíl á slysadeild vegna
áverka sem þeir hlutu í slagsmál-
unum. Annar mannanna var flutt-
ur í fangageymslur eftir skoðun en
hinn var lagður inn vegna slæmra
höfuðáverka.
Eftir því sem næst verður kom-
ist hófust deilurnar í Hafnarfirði
en enduðu í blóðugum átökum
fyrir utan fjögurra hæða fjölbýl-
ishús við Tröllakór. Samkvæmt
upplýsingum frá lögreglu virðist
sem um einhvers konar uppgjör
við einn íbúa í fjölbýlishúsinu
hafi verið að ræða, líklega vegna
skulda. Vopnum var beitt í átök-
unum, meðal annars hafnabolta-
kylfu og öxi.
„Þeir voru fimm í annarlegu
ástandi, hoppandi og gargandi
með hafnaboltakylfur og öxi og
létu kylfurnar dynja á tveimur
mönnum og pallbíl. Annar þeirra
var í mótorhjólagalla með hjálm.
Hann fékk öxina í höfuðið og virt-
ist illa leikinn,“ sagði einn sjónar-
votta í samtali við Fréttablaðið.
Mennirnir eru allir íslenskir,
á þrítugs- fertugs- og fimmtugs-
aldri, og hafa samkvæmt heim-
ildum Fréttablaðsins allir komið
við sögu lögreglu áður. Sex
þeirra var haldið í fangaklefa í
nótt og til stóð að yfirheyra þá í
morgunsárið.
Fjórir lögreglubílar voru send-
ir á vettvang átakanna í gær og
tveir sjúkrabílar.
Að loknum handtökunum var
gerð húsleit í íbúðinni og fundust
þar á þriðja hundrað kannabis-
plantna í ræktun.
Nær eingöngu fjölskyldufólk
býr í hverfinu og varð íbúum þess
mjög brugðið í gær. Einn sjónar-
votta sagðist í samtali við Frétta-
blaðið hafa talið einn þeirra sem
stóð í átökunum vera látinn. Hann
hafi legið á grúfu á götunni.
Bæði börn á leikskóla- og
grunnskólaaldri urðu vitni að
átökunum.
Íbúar í nærliggjandi húsum
segja mikinn umgang hafa verið
við íbúðina þar sem kannabis-
plönturnar fundust. Fólk hafi
komið þar kvölds og morgna,
jafnt á virkum dögum sem um
helgar. Að sögn sjónarvotta,
líktist það helst vaxtaræktar-
tröllum og passa engan veginn
inn í samfélagið þar. Íbúa hafi
grunað að þar væri ekki allt með
felldu. - sh, jab
Börn horfðu upp á
blóðug hópslagsmál
Sjö voru handteknir eftir blóðugt uppgjör í fjölskylduvænu hverfi í Kórunum
í Kópavogi. Sjónarvottar hafa lengi grunað einn hinna handteknu um vörslu
ólöglegra efna. Miður að svona geti gerst í barnmörgu hverfi, segja íbúar.
HANDTÖKUR Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sendi fjóra bíla til að yfirbuga menn-
ina. Tveir þeirra voru fluttir á slysadeild og þurfti að leggja annan þeirra inn vegna
slæmra höfuðáverka.
Þeir voru fimm í
annarlegu ástandi,
hoppandi og gargandi með
hafnaboltakylfur og öxi og
létu kylfurnar dynja á tveimur
mönnum og pallbíl.