Fréttablaðið - 19.05.2010, Blaðsíða 10
10 19. maí 2010 MIÐVIKUDAGUR
KÖNNUN Þrjá flokka þarf til að
mynda meirihluta í sveitarstjórn-
arkosningunum á Akureyri, sam-
kvæmt niðurstöðu skoðanakönn-
unar Fréttablaðsins og Stöðvar 2.
Engir tveir flokkar fá nógu mikið
fylgi til að mynda saman meiri-
hluta.
Meirihlutasamstarf Sjálfstæð-
isflokks og Samfylkingar getur
ekki haldið óbreytt áfram eftir
kosningar, miðað við niðurstöður
könnunarinnar. Samkvæmt henni
fengju flokkarnir samanlagt fjóra
bæjarfulltrúa af ellefu, en eru
samtals með sjö bæjarfulltrúa í
dag.
L-listinn, Listi fólksins, er
stærsti stjórnmálaflokkurinn
á Akureyri samkvæmt könnun-
inni. Flokkurinn fengi 24,5 pró-
sent atkvæða og þrjá bæjarfull-
trúa verði niðurstöður kosninga í
samræmi við könnun Fréttablaðs-
ins og Stöðvar 2, sem gerð var á
mánudagskvöld.
Listi fólksins ríflega tvöfaldar
fylgi sitt frá síðustu sveitar-
stjórnarkosningum árið 2006,
þegar flokkurinn fékk 9,6 prósent
atkvæða og einn bæjarfulltrúa.
Alls sögðust 18,6 prósent þeirra
sem afstöðu tóku myndu styðja
Vinstri græn yrði gengið til kosn-
inga nú. Það er aukning frá því í
síðustu kosningum, þegar flokk-
urinn fékk 15,9 prósent atkvæða.
SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR
AKUREYRI
SAMKVÆMT KÖNNUN FRÉTTABLAÐSINS OG STÖÐVAR 2 17. MAÍ
40
30
20
10
0%
11 24 23 22
Ko
sn
in
ga
r
311
Flestir styðja Lista
fólksins á Akureyri
Engir tveir flokkar geta myndað meirihluta í bæjarstjórn Akureyrar samkvæmt
skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Listi fólksins ríflega tvöfaldar fylgi
sitt frá kosningum en stuðningur við Sjálfstæðisflokk og Samfylkingu hrynur.
Aukningin nær þó ekki að skila
flokknum fleiri bæjarfulltrú-
um, og fengju Vinstri græn tvo
bæjarfulltrúa áfram samkvæmt
könnuninni.
Sjálfstæðisflokkurinn tapar
gríðarmiklu fylgi frá síðustu kosn-
ingum samkvæmt könnun Frétta-
blaðsins og Stöðvar 2. Flokkur-
inn mælist nú með stuðning 16,4
prósenta kjósenda, en fékk 31,2
prósent í síðustu kosningum.
Munurinn er 14,8 prósentustig.
Flokkurinn fengi tvo bæjarfull-
trúa yrðu þetta niðurstöður kosn-
inga, en er með fjóra í dag.
Stuðningur við Samfylkinguna á
Akureyri hefur minnkað verulega
frá kosningunum 2006. Flokkur-
inn mælist nú með stuðning 15,7
prósenta bæjarbúa, en hlaut 23,1
prósent atkvæða í kosningunum.
Fylgistapið er 7,4 prósentustig.
Samfylkingin fengi samkvæmt
könnuninni tvo borgarfulltrúa,
en er með þrjá í dag.
Bæjarlistinn, nýtt framboð
með fólki tengdu bæði Sjálfstæð-
isflokki og Vinstri grænum, nýtur
stuðnings 13,4 prósenta kjósenda
samkvæmt könnuninni. Flokk-
urinn fengi samkvæmt því einn
bæjarfulltrúa.
Heldur dregur úr stuðningi við
Framsóknarflokkinn samkvæmt
könnun Fréttablaðsins og Stöðvar
2. Alls segjast 11,4 prósent myndu
kjósa flokkinn ef kosið yrði nú,
en 15,0 prósent studdu flokkinn
í síðustu kosningum. Þrátt fyrir
fylgistap myndi flokkurinn sam-
kvæmt þessu halda sínum eina
bæjarfulltrúa.
Hringt var í 800 manns mánu-
daginn 17. maí. Þátttakendur
voru valdir með slembiúrtaki
úr þjóðskrá. Svarendur skiptust
jafnt eftir kyni, og hlutfallslega
eftir aldri. Spurt var: Hvaða lista
myndir þú kjósa ef gengið yrði til
sveitarstjórnarkosninga í dag? Ef
ekki fékkst svar var spurt: Hvaða
flokk er líklegast að þú mynd-
ir kjósa? Ef ekki fékkst svar var
að lokum spurt: Er líklegra að þú
myndir kjósa Sjálfstæðisflokkinn
eða einhvern annan flokk?
Alls tóku 55,0 prósent afstöðu
til spurningarinnar. Stór hluti
kjósenda hefur því enn ekki gert
upp hug sinn eða vill ekki gefa
upp skoðun. brjann@frettabladid.is
13,4%
11,4%
16,4%
24,5%
15,7%
18,6%
15%
31,2%
9,6%
23,1%
15,9%
KÖNNUN Listi fólksins mun
vinna stórsigur í komandi
sveitarstjórnarkosningum
verði niðurstöður kosninga
í takt við skoðanakönnun
Fréttablaðsins og Stöðvar
2, segir Grétar Þór Eyþórs-
son, prófessor í stjórn-
málafræði við Háskólann
á Akureyri.
„Mér þykir líklegt að vel-
gengni Lista fólksins megi
rekja til óánægju fólks með stjórn-
málin og þróunar landsmála,“ segir
Grétar.
Listi fólksins bauð fyrst fram árið
2002 og fékk tvo bæjarfulltrúa, og
fékk einn í síðustu kosningum. Sam-
kvæmt könnuninni fengi flokkur-
inn þrjá bæjarfulltrúa yrði geng-
ið til kosninga núna. Grétar tengir
þennan árangur ekki síst alþýðlegri
ásjónu listans. Kjósendur telji sig sjá
eitthvað sem sé ótengt hruninu.
Sjálfstæðisflokkurinn bíður skip-
brot samkvæmt könnuninni og tapar
helmingi fylgi síns, segir Grét-
ar. Erfitt er að benda á nákvæm-
lega hvað veldur fylgishruninu, en
þrennt kemur einkum til greina að
mati Grétars.
Í fyrsta lagi hafi flokkurinn verið
í meirihlutasamstarfi og sé
einn af svokölluðum hrun-
flokkum. Í öðru lagi geti
umtalsverður stuðningur
við Bæjarlistann, sem sé
að hluta til nokkurs konar
klofningsframboð, komið
að miklu leyti frá fólki sem
ella myndi kjósa Sjálfstæð-
isflokkinn.
Í þriðja lagi hafi við-
brögð Sigrúnar Bjarkar
Jakobsdóttur, oddvita Sjálfstæðis-
flokksins á Akureyri, við fréttum
af kaupmála hennar og eiginmanns
hennar eflaust kostað flokkinn
stuðning einhverra kjósenda.
Samfylkingin tapar einnig fylgi,
og segir Grétar að það megi eink-
um tengja því að flokkurinn hefur
verið í meirihlutasamstarfi, og er
að auki einn af svokölluðum hrun-
flokkum.
Slæmur árangur Framsóknar-
flokksins vekur einnig athygli,
segir Grétar. Flokkurinn fékk 24
prósenta fylgi í kosningum 2002,
og 15 prósent í kosningunum 2006.
Grétar segir að almennt hafi menn
spáð flokknum betri árangri en í
síðustu kosningum, en það virðist
ekki ætla að ganga eftir. - bj
Meirihlutaflokkar fá slæma útreið segir sérfræðingur:
Óánægjufylgið
fer til Lista fólksins
GRÉTAR ÞÓR
EYÞÓRSSON
Al
lt u
m
m
ein
ta
m
ar
ka
ðs
m
isn
ot
ku
n b
an
ka
nn
a!
Bræðraborgarstíg 9
STYRMIR KYNNIR BÓK SÍNA
HRUNADANS OG HORFIÐ FÉ!
Styrmir Gunnarsson kynnir metsölubók sína Hrunadans og horfið fé – Skýrslan
á 160 síðum í Eymundsson, Skólavörðustíg, í dag kl. 17. Þetta er heildstæð
úttekt á Skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis sem nú skekur samfélagið auk þess
sem horft er fram á veginn. Bók sem vekur miklar umræður – og jafnvel deilur!
D
Y
N
A
M
O
R
E
Y
K
JA
V
ÍK
ALLIR
VELKOMNIR
– LÉTTAR
VEITINGAR!
Bankastræti 7 Sími: 510 6100 lsr@lsr.is www.lsr.is
Ársfundur LSR og LH verður haldinn miðvikudaginn 26. maí
nk. á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, kl. 15:00.
Fundurinn er opinn öllum sjóð félögum og launagreiðendum.
Dagskrá
Skýrslur stjórna
Tryggingafræðilegar úttektir
Fjárfestingarstefna
Ársreikningar 2009
Skuldbindingar launagreiðenda
Breytingar á samþykktum
Önnur mál
Fundurinn er opinn öllum sjóðfélögum og launagreiðendum.
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins
Lífeyrissjóður hjúkrunarfræðinga
Ársfundur
LSR og LH
2010
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki