Fréttablaðið - 19.05.2010, Blaðsíða 12
12 19. maí 2010 MIÐVIKUDAGUR
SVEITARSTJÓRNAR-
KOSNINGAR 2010 Mikil endurnýjun er fyrirsjáanleg í bæjarstjórn Akureyrar að loknum kosningum
Atvinnumálin eru aðalmálið
í kosningabaráttunni á
Akureyri. Sex listar eru í
framboði. Mikil endurnýjun
er fyrirsjáanleg í bæjar-
stjórninni.
Oddvitar allra framboða á Akur-
eyri leggja ríka áherslu á atvinnu-
mál í kosningabaráttunni. Talsvert
atvinnuleysi er í bænum, meira
en sex hundruð eru án vinnu og á
þriðja hundrað er í hlutastörfum.
Samtöl við frambjóðendur leiða í
ljós að þeir hafa ekki fullmótaðar
hugmyndir um hvernig bregðast
beri við vandanum en flestir vilja
efna til víðtæks samstarfs bæjar-
ins og atvinnulífsins. Víst má telja
að bæjarbúar hermi allar yfirlýs-
ingar um þessi efni upp á þá er ná
kjöri.
Skipulag miðbæjarins hefur
verið í opinberu ferli síðustu
mánuði og stendur um það mik-
ill styrr. Talsverð andstaða er við
hugmyndir um síki og virðast þær
vera á góðri leið með að fjara út.
Þeir sem ekki lýsa við þær beinni
andstöðu hafa á stefnuskrá að gefa
bæjarbúum færi á að kjósa um
þær.
Sjálfstæðisflokkurinn og Sam-
fylkingin mynduðu meirihluta að
loknum síðustu kosningum. Í þeim
fengu sjálfstæðismenn fjóra full-
trúa, Samfylkingin þrjá, VG tvo
og Framsókn og Listi fólksins einn
mann hvor. Kristján Þór Júlíusson,
Sjálfstæðisflokki, lét af starfi bæj-
arstjóra í framhaldi þess að hann
var kjörinn á þing 2007. Við starf-
inu tók Sigrún Björk Jakobsdótt-
ir og gegndi því þar til fyrir ári
þegar Hermann Jón Tómasson,
Samfylkingunni, tók við. Samdist
meirihlutaflokkunum um þá tilhög-
un við upphaf kjörtímabilsins.
Ljóst er að mikil endurnýjun
verður í bæjarstjórninni eftir
komandi kosningar enda margir
nýliðar í fararbroddi.
Talsverð spenna ríkir um gengi
framboðs Sigurðar Guðmundsson-
ar en hann reyndi fyrir sér í próf-
kjöri Sjálfstæðisflokksins.
Viðmælendum á Akureyri bar
saman um að kosningabaráttan
væri með rólegra móti. Allt annað
væri upp á teningnum en var 2006
þegar framboðin höfðu úr tals-
vert meiri peningum að spila en
nú. Gætti líka vonbrigða með að
svæðisútvarp Ríkisútvarpsins
heyrði sögunni til en það var öfl-
ugur vettvangur fyrir bæjarpólit-
ískar umræður.
Ekki varð þess vart að umleit-
anir um meirihlutasamstarf hefðu
þegar farið fram bak við tjöldin.
Atvinnumál í forgrunni
„Atvinnumálin eru í algjörum
forgrunni,“ segir Sigurður Guð-
mundsson, oddviti Bæjarlistans.
„Akureyri á að geta verið leiðandi
sveitarfélag í að komast út úr
hremming-
unum, ytra
og innra
umhverfi
á að vinna
með okkur í
því. Sóknar-
færin liggja
í atvinnu-
sköpuninni.“
Sigurður
segir mikil-
vægt að nýta
allt tiltækt
fjármagn til atvinnuuppbyggingar,
þannig fáist aðrir að borðinu.
Mikilvægt sé einnig að ríkið komi
að málum.
Tryggja þarf velferðina að mati
Sigurðar og þá grunnþjónustu
sem bærinn veitir íbúunum.
„Þessi málaflokkur á undir högg
að sækja og til að geta staðið
undir honum þarf að fjölga
störfum.“
Sigurður hefur þungar áhyggjur
af skuldsetningu Akureyrarbæjar,
mikilvægt sé að auka tekjurnar
til þess að standa undir henni.
„Skuldirnar hafa aukist úr sextán
milljörðum í 24 milljarða og það
er meira en við ráðum við með
þær tekjur sem við höfum í dag.“
Skipulagsmálin hafa verið í
„tómri upplausn allt kjörtíma-
bilið“ að mati Sigurðar. „Hvert
slysið hefur rekið annað. Þar ber
miðbæjarskipulagið hæst og ég
berst af hörku gegn þessari síkis-
hugmynd og of miklu bygginga-
magni. Skipulagsmálin verða að
vera í föstum skorðum svo menn
geti ekki vaðið áfram af hentug-
leika.“
Skipulagsmálin í
tómri upplausn
„Við byggjum okkar málflutning á tveimur
meginatriðum: velferðarmálum í víðum skiln-
ingi og atvinnumálum,“ segir Hermann Jón
Tómasson, bæjarstjóri og oddviti Samfylkingar-
innar. „Hér er þónokkuð atvinnuleysi núna en
við teljum að það séu talsverð sóknarfæri og
viljum vinna með atvinnulífinu að því að sækja
þau.“
Hermann segir meirihlutann hafa staðið vel
að velferðarmálum á síðastliðnu kjörtímabili
og að önnur sveitarfélög horfi til árangurs
bæjarins í þeim efnum. Áfram þurfi að halda á
sömu braut, meðal annars þurfi að samþætta
betur skóla- og tómstundastarf barna. Þá segir hann
mikilvægt að koma á fót vettvangi þar sem
fólk geti nálgast allar upplýsingar um þjónustu
bæjarins og helst ríkisins líka á einum stað.
Hermann segir fjármál Akureyrar standa
nokkuð vel. „Okkur tókst að snúa áætlun upp
á eins milljarðs króna tap upp í afgang upp á
milljarð króna.“ Þar hafi nokkrir þættir hjálpast
að, meðal annars sala á hlut Norðurorku í
Þeistareykjum. Aðhaldsaðgerðir hafi líkað
skilað talsverðu.
Um skipulagsmálin í miðbænum segir Her-
mann að taka beri tillit til þeirra athugasemda
sem borist hafa og í stað síkis sé rétt að búa til
svæði af öðru tagi sem verði bæjarbúum til hagsbóta.
Vel staðið að velferðarmálunum og fjármálin standa vel
„Við leggjum mikla áherslu á atvinnu- og velferð-
armál,“ segir Guðmundur Baldvin Guðmundsson,
oddviti Framsóknarflokksins. „Það er mjög brýnt að
gera eitthvað í atvinnumálunum enda atvinnuleys-
ið stórt vandamál sem bregðast þarf við af fullum
krafti.“ Guðmundur segir flokk sinn jafnframt ætla
að standa vörð um velferðina, miklu máli skipti að
ekki verði skorið meira niður en þegar hafi verið
gert.
„Svo skerum við okkur frá öðrum, allavega hinum
fjórflokkunum, að því leyti að við viljum ráða fagleg-
an bæjarstjóra. Allt bendir til að hér þurfi tveir eða
þrír flokkar að mynda meirihluta eftir kosningar og
við teljum mjög mikilvægt að bæjarstjórinn verði ráðinn faglegri ráðn-
ingu.“
Guðmundur telur að fjárhagsáætlanir bæjarins verði að vera mun raun-
hæfari en raun hefur verið á undanfarin ár, mikilvægt sé að nákvæmar
kostnaðaráætlanir liggi fyrir áður en ráðist sé í framkvæmdir. „Við þurfum
að læra af mistökum núverandi meirihluta í þeim efnum. Það er frumskil-
yrði að vita hvað verkin kosta áður en farið er af stað.“
Guðmundur segir algjörlega óraunhæft að gera síki í miðbænum, það
kosti allt of mikla peninga og hugmyndin sé í anda liðinnar tíðar.
Leggur hann jafnframt ríka áherslu á að framsóknarmenn séu sam-
vinnumenn. „Við viljum vinna með fólki.“
Brýnt að taka á atvinnumálunum
„Okkar helsti útgangspunktur er að breyta for-
gangsröðinn í bænum. Við göngum út frá því að
hagsmunir Akureyrar komi fyrst en hjá öðrum hafa
hagsmunir flokka komið fyrst og svo hagsmunir
bæjarins,“ segir Geir Kristinn Aðalsteinsson, oddviti
Lista fólksins.
„Atvinnumálin eru fyrirferðamikil enda hefur sá
málaflokkur gjörsamlega gleymst hjá meirihlutanum.
Það er sorglegt að þeir skuli vakna fyrst núna þegar
kemur að kosningum. Við heyrum í fyrirtækjunum
að yfirvöld hafi ekki haft nokkurn áhuga á málinu.
Það er mikilvægt að brúa það gil sem hefur verið
milli atvinnulífsins og bæjaryfirvalda.“ Geir segir
vilja breyta skipan mála í bæjarkerfinu og virkja alla
hlutaðeigandi til atvinnuuppbyggingar.
Um velferðarmálin segir Geir ljóst að bæjarfélagið þurfi að standa
betur við bakið á fólki. „Fólk hefur orðið út undan og þurft að bera meiri
byrðar.“
Fjármálin segir hann í ágætu lagi, miðað við önnur sveitarfélög.
„Meirihlutinn má eiga það. En við höfum áhyggjur af framtíðinni þegar til
dæmis þarf að reka menningarhús fyrir 300 milljónir á ári.“
Meirihlutinn gleymdi atvinnumálunum
Björn Þór
Sigbjörnsson
bjorn@frettabladid.is
Kynntu þér námið með því að bóka viðtal
við verkefnastjóra meistaranáms dagana
18.- 21. maí.
MBA – hrafnhildur@hr.is
Alþjóðaviðskipti – sonja@hr.is
Fjármál fyrirtækja – thorabe@hr.is
Fjárfestingarstjórnun – thorabe@hr.is
Reikningshald og endurskoðun – thorabe@hr.is
Stjórnun rekstrarbókhalds – thorabe@hr.is
AUKIN FÆRNI
STERKARI STAÐA
www.hr.is
Háskólinn í Reykjavík er framsækinn rannsóknarháskóli sem
býður nemendum persónulegt, kraftmikið og alþjóðlegt
starfsumhverfi. HR hefur skapað sér sérstöðu sem háskóli
atvinnulífsins og er jafnframt stærsti tækni- og
viðskiptaháskóli Íslands.
MEISTARANÁM
Í VIÐSKIPTAFRÆÐI
UMSÓKNARFRESTUR
ER TIL 31. MAÍ