Fréttablaðið - 19.05.2010, Qupperneq 13
MIÐVIKUDAGUR 19. maí 2010
„Stóra málið eru atvinnumálin,“ segir Andrea Hjálms-
dóttir, oddviti VG. „Eins og á landinu öllu horfum við
upp á mikið atvinnuleysi og þurfum að leita leiða
til að bregðast við því. Við leggjum áherslu á að
komið verði á fót samráðsvettvangi bæjaryfirvalda
og atvinnulífsins því bærinn sjálfur býr ekki til störf
heldur getur hann skapað umhverfi sem leiðir til
fjölgunar starfa.“ Efla þurfi vettvang fyrir einyrkja til
að koma af stað litlum rekstri og huga að málefnum
atvinnuleitenda.
Andrea segir mikilvægt að standa vörð um skólana
og heilbrigðisþjónustuna í bænum, forgangsraða verði
mjög vel í niðurskurðaraðgerðum og leggja áherslu
á að gæta að velferð fólksins. Nauðsynlegt sé að horfa á þau mál til lengri
tíma, ekki bara eitt kjörtímabil fram í tímann.
Andrea er ekki sátt við fjármálastjórn núverandi meirihluta. „Fjármálin líta
illa út eftir hagsældarskeiðið og þessa dagana erum við að rýna í þau og
finna leiðir til að spara í stjórnsýslunni. Hún þarf að vera faglegri, um leið
aukum við lýðræðið.“
Hún kveðst andvíg síki í miðbænum, telur hálfgerða móðgun við bæjar-
búa að svo mikið sem ræða þau mál þar sem ekki séu til peningar til fram-
kvæmdarinnar. Á hinn bóginn sé gott að til sé að verða heildstætt skipulag
fyrir miðbæinn sem hægt sé að vinna út frá.
Fjármálin líta illa út
„Atvinnumálin og að koma af stað fram-
kvæmdum eru okkar helstu mál,“ segir Sigrún
Björk Jakobsdóttir, oddviti sjálfstæðismanna.
„Nýverið var undirritaður samningur um hjúkr-
unarheimili fyrir aldraða sem mun skapa átta-
tíu ársverk og nýjustu atburðir sýna mikilvægi
þess að ráðast í stækkun flugstöðvarinnar og
flughlaðs. Það er mikilvægt að koma einhverju
af stað sem skapar störf.“
Sigrún segir bæinn byggja á sjávarútvegi,
matvælaframleiðslu, sjúkrahúsinu og háskólan-
um og mikilvægt sé að verja þær öflugu stoðir.
„Við búum við mjög gott velferðarkerfi
en verðum að hafa gott atvinnuástand til
að standa undir velferðarþjónustunni,“ segir
Sigrún.
Fjármálastöðuna segir hún góða, bærinn hafi
verið rekinn með góðum hagnaði á síðasta ári.
Að sögn Sigrúnar hafa verið settar fram
hugmyndir um að kosið verði almennri
íbúakosningu um síkið í miðbænum. Margar
athugasemdir hafi verið gerðar við miðbæjar-
skipulagið og mikilvægt sé að taka tillit til
þeirra og hafa ferlið opið og lýðræðislegt.
Atvinnumál og framkvæmdir helstu mál
SÉÐ YFIR BÆINN Þjónusta
við ferðamenn er ein af
meginstoðum Akureyrar.
SÍMI: 553 8050
Kringlukaststilboð
á Ecco skóm
1746300101
Stærðir: 36 - 42
Verð nú:
Áður: 13.995
9.776
Verð nú:
Áður: 16.995
11.896
Verð nú:
Áður: 16.995
11.896
Verð nú:
Áður: 10.995
7.696
Vloud
Black Lexi
4271401001
Stærðir: 41 - 47
Stærðir: 36 - 41 Stærðir: 22 - 32
Urban
Light Black Mask
4486354869
Life
White/Light Silver
7649100101
Victoria
Black Goat Leather
Notkun: Lóritín inniheldur virka efnið lóratadín 10 mg og er ætlað til meðferðar á einkennum ofnæmiskvefs og
langvarandi ofsakláða af óþekktum toga. Skömmtun: Fullorðnir og börn yfir 12 ára aldri: 1 tafla á dag. Börn 2 - 12 ára:
Með líkamsþyngd meiri en 30 kg: 1 tafla (10 mg) á dag. Börn með líkamsþyngd undir 30 kg: 1/2 tafla (5 mg) á dag.
Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 2 ára. Töfluna má taka hvenær sem er, án tillits til matmálstíma. Hefja ætti
meðferð hjá sjúklingum með verulega skerta lifrarstarfsemi með minni skammti. Frábendingar: Ofnæmi fyrir virka
efninu eða hjálparefnum. Varúðarreglur: Gæta skal varúðar ef Lóritín er gefið sjúklingum með mikið skerta
lifrarstarfsemi. Lyfið inniheldur laktósa. Langvarandi notkun getur leitt til aukinnar hættu á tannskemmdum vegna
munnþurrks. Notkun Lóritíns á meðgöngu og við brjóstagjöf er ekki ráðlögð. Í einstaka tilfellum finnur fólk fyrir syfju
sem getur haft áhrif á hæfni þeirra til aksturs eða notkunar véla. Aukaverkanir: Lóritín þolist almennt vel en
algengustu aukaverkanirnar hjá börnum á aldrinum 2-12 ára eru höfuðverkur, taugaveiklun og þreyta. Algengustu
aukaverkanirnar hjá 12 ára og eldri eru svefnhöfgi, höfuðverkur, aukin matarlyst og svefnleysi. Lesið vel
leiðbeiningar sem fylgja lyfinu. Sérlyfjaskrártexti samþykktur í desember 2005.
Ertu með ofnæmi?
Þekkir þú helstu einkenni ofnæmiskvefs?
Lóritín®
– Kröftugt ofnæmislyf án lyfseðils
· Kláði í augum og nefi
· Síendurteknir hnerrar
· Nefrennsli/stíflað nef
· Rauð, fljótandi augu
Einkennin geta líkst venjulegu kvefi og margir þjást af „kvefi“ á hverju
sumri áður en þeir átta sig á að um ofnæmiskvef er að ræða.
Lóritín er ætlað til meðferðar á einkennum ofnæmiskvefs og langvarandi
ofsakláða af óþekktum toga.
VIÐ LOKUM SKÍFUNNI LAUGAVEGI!
40% AFSLÁTTUR
AF ÖLLU!
ALLT Á
AÐ
SELJAS
T!
LAUGAVEGUR 26
Athugið! Gildir aðeins í Skífunni Laugavegi 26
Opið alla daga 12 - 18.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA