Fréttablaðið - 19.05.2010, Blaðsíða 37
MIÐVIKUDAGUR 19. maí 2010 21
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Miðvikudagur 19. maí 2010
➜ Tónleikar
20.00 Gerður Bolladóttir sópran,
Sophie Schoonjans hörpuleikari og
Victoria Tarevskaia sellóleikari flytja
trúarsöngva bandarískra blökkumanna
í Garðakirkju á Álftanesi. Enginn
aðgangseyrir er en tekið verður á móti
frjálsum framlögum.
20.00 Sinfóníuhljómsveit Vaasaborgar
og tónlistarhópurinn Caput verða með
tónleika í Íslensku óperunni við Ingólfs-
stræti. Þessi viðburður er hluti af Lista-
hátíð í Reykjavík sem stendur til 5. júní.
Nánari upplýsingar á www.listahatid.is.
20.00 Árnesingakórinn heldur tón-
leika í Guðríðarkirkju í Grafarholti. Á
efnisskránni verður tónlist eftir Sigfús
Halldórsson. Einsöngvarar verða Gissur
Páll Gissurarson og Val-
gerður Guðnadóttir.
21.00 Birgir Örn
Steinarsson og Tómas
R. Einarsson verða
með tónleika á Café
Rósenberg við Klapp-
arstíg. Húsið verður
opnað kl. 20.
➜ Leikrit
19.00 Fjölskyldusöngleikurinn Sarínó-
sirkusinn verður sýndur í Borgarleik-
húsinu við Listabraut. Þessi viðburður
er hluti af Listahátíðinni List án landa-
mæra. Nánari upplýsingar á www.list-
anlandamaera.blog.is.
➜ Listamannaspjall
17.30 Katrín Elvarsdóttir ræðir um
verk sín á ljósmyndasýningunni Equivo-
cal sem nú stendur yfir í Gallerí Ágúst
við Baldursgötu.
➜ Sýningar
Þar sem 70 ár eru liðin frá hernámi
Íslands hefur Minjasafn Reykjavíkur
opnað sýningu í því tilefni í Fógetastof-
um að Aðalstræti 10. Opið alla virka
daga kl. 9-21, lau kl. 10-17 og sun. kl.
12-17. Nánari upplýsingar á www.minja-
safnreykjavikur.is.
➜ Fyrirlestrar
13.15 Elisabeth Schüssler Fiorenza
flytur erindið Re-visioning Christian
Origins, hjá Háskóla Íslands. Fyrirlest-
urinn fer fram í Aðalbyggingu Háskólans
við Sæmundargötu (st. 229).
15.15 Marie Novotná flytur erindi sem
hún nefnir Þýtt úr fornnorrænu. Fyrir-
lesturinn fer fram í Háskóla Íslands,
Odda við Sturlugötu (stofu 202).
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
Fjórar viðurkenningar voru
veittar á Vorvindahátíð IBBY
á Íslandi fyrir gott framlag til
barnamenningar á Íslandi. Þeir
sem hlutu viðurkenningarnar
voru: Halldór Baldursson teikn-
ari, fyrir myndskreytingar á
barnabókum, Iðunn Steinsdóttir
fyrir rithöfundaferil sinn, Krist-
ín Arngrímsdóttir fyrir bók sína
Arngrímur apaskott og fiðlan og
Menningarmiðstöðin Gerðuberg
fyrir öflugt menningarstarf fyrir
börn. IBBY á Íslandi hefur veitt
viðurkenningar fyrir framlag til
barnamenningar frá árinu 1987.
Fjórir hlutu
IBBY-verðlaun
VERÐLAUNAHAFAR Frá vinstri: Halldór
Baldursson, Iðunn Steinsdóttir, Guðrún
Dís Jónatansdóttir, framkvæmdastjóri
Gerðubergs, og Kristín Arngrímsdóttir
ásamt dóttur sinni.
Blúshátíðin Norden Blues Festival 2010 verður
haldin í annað sinn í Rangárvallasýslu um kom-
andi hvítasunnuhelgi, eða dagana 21. til 24.
maí.
Allt að eitt hundrað tónlistarmenn koma
fram á hátíðinni í um það bil 25 hljóm-
sveitum eða tónlistarhópum. Á meðal
flytjenda verða Blue Ice Band, KK
Band, Skúli mennski, The Dirty
Deal og norska hljómsveitin
Vetrhus Bluesband. „Við erum
að reyna að tengja þetta svolítið
vítt og breitt um héraðið, þannig
að veitingahúsin njóti góðs af og
gestir og gangandi komi á þessa
staði,“ segir Sigurgeir Guðmundsson
hjá Heklu blúsfélagi. „Við erum pínu-
lítið að horfa í reynslubanka Norðmanna því þeir
eru mjög framarlega í þessu. Við fáum norska
hljómsveit og norska hljóðmenn. Vetrhus Blues-
band er eitt hressasta tón-
leikaband í Noregi.“
Sigurgeir hvetur alla
aldurshópa til að láta sjá
sig á hátíðinni og segir hana
gott tækifæri til að stappa
stálinu í heimamenn vegna
eldgossins í Eyjafjallajökli.
„Þetta er fyrsta alvöru ferðahelgi
sumarsins og þó að það hafi fallið
pínulítið ryk úr lofti í Rangárþingi ætla
ég allavega að flytja að heiman og gista
á tjaldsvæðinu eins og ég gerði í fyrra,“
segir hann. - fb
Spila blús þrátt fyrir öskuna
Þrjú söfn hafa verið tilnefnd
til Safnaverðlaunanna 2010:
Byggðasafn Skagfirðinga í
Glaumbæ, Heimilisiðnaðarsafn-
ið á Blönduósi og Nýlistasafnið
í Reykjavík. Meira en sjötíu
ábendingar bárust í ár en verð-
launin verða veitt á Bessastöð-
um á íslenska safnadeginum,
11. júlí.
Verðlaunin voru fyrst veitt
Síldarminjasafninu á Siglufirði
árið 2000 og eru nú veitt í sjö-
unda sinn. Síðast fékk Byggða-
safn Vestfjarða á Ísafirði viður-
kenninguna. - fb
Þrjú söfn fá
tilnefningu
KK Tónlistarmaðurinn
KK spilar á blúshátíð-
inni í Rangárvallasýslu
um hvítasunnuhelgina.